Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 6
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR6 Innanríkis ráðherrar Evrópu- sambandsríkjanna hittast í dag til að ræða tillögu framkvæmda- stjórnar sambandsins um breyt- ingar á Schengen-samkomulag- inu. Þær verða svo afgreiddar á fundi leiðtogaráðs sambandsins í júlí. Ágreiningur er milli aðildar- ríkja Schengen um nýjar heim- ildir einstakra landa til að taka upp tímabundið landamæra- eftirlit, sem Frakkar og Ítal- ir leggja mikla áherslu á vegna flóttamannastraums frá Norður- Afríku. José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnarinnar, ber reyndar til baka fullyrðingar um að breytingarnar séu gerðar eingöngu til þess að bregðast við nýtilkomnum vanda Frakka og Ítala vegna flóttamanna frá Norð- ur-Afríku. Hann segir þetta allt saman hafa verið í undirbúningi síðan á síðasta ári, að því er fram kemur á fréttasíðunni Euractiv. com. Hann gagnrýnir hins vegar Frakka fyrir að fara í kringum núgildandi reglur og hafa í reynd tekið einhliða upp landamæra- gæslu. Við þessu þurfi að bregð- ast með því að styrkja sameigin- legu reglurnar. „Ef við styrkjum ekki núver- andi reglur munu aðildarríkin halda áfram að grípa til eigin ráðstafana,“ er haft eftir honum á Euractiv. Fyrir utan víðtækari heimildir til að taka upp vegabréfaeftirlit er gert ráð fyrir að loksins verði lokið við að móta sameiginlega stefnu í málefnum hælisleitenda. Ríkin við norðanvert Mið- jarðarhafið, svo sem Grikkland, Spánn og Ítalía, hafa lengi kvart- að yfir því að Schengen-kerfið láti þau sitja ein uppi með þann vanda að þurfa að leysa úr málum flótta- manna frá Afríku og Mið-Austur- löndum. Hundruð þúsunda manna hafa flúið frá Líbíu vegna átakanna þar síðustu mánuði, flest til nágrannalandanna, einkum Túnis og Egyptalands, en tugir þúsunda hafa farið yfir Miðjarðarhafið til Ítalíu og hundruð þeirra farist á leiðinni. Stór hluti þeirra sem hafa farið til Ítalíu hefur reynt að komast áfram til Frakklands, enda eiga margir þeirra ættingja þar. Frönsk stjórnvöld hafa hins vegar vísað mörgum til baka til Ítalíu. Upp úr þessu sprettur ágrein- ingur Ítala og Frakka, sem ýtti undir sameiginlega tillögu þeirra um að breytingum á Schengen- samstarfinu yrði nú hraðað. Þá hefur danska stjórnin ákveð- ið að hefja reglulegt eftirlit á landamærastöðvum til að hindra för glæpamanna og ólöglegra inn- flytjenda. Allt verður það innan ramma Schengen-kerfisins, enda verður eftirlitið byggt á handa- hófskenndum athugunum á ferða- fólki. gudsteinn@frettabladid.is FRÉTTASKÝRING Er Schengen-samstarfið í uppnámi? Agreement abolishes internal borders, enabling passport-free movement across member countries Non-EU nationals with Schengen visa can travel freely throughout area for up to three months within six-month period Signatories may reinstate border controls for short period if necessary for “public policy or national security” reasons Immigration checks carried out on zone’s single external border under single set of police rules Police and judicial co-operation enhanced – shared information database on wanted or undesirable people and stolen objects EU moots new Schengen rules ightening rules allowing free movement within the Schengen zone when faced with extraordinary flows of migrants. The move reflects concern about the arrival in Italy of some 25,000 illegal migrants fleeing unrest in North Africa Non Schengen EU: UK and Ireland comply with some Schengen provisions but maintain border checks Expected to join in coming years Schengen states: Incorporates 25 European countries – 22 EU members plus Switzerland, Iceland and Norway KEY PROVISIONS OF SCHENGEN France and Italy want revision of Schengen after France closed border to trains carrying African migrants from Italy Switzerland Tunisia Libya Norway Iceland UKIreland Bulgaria Cyprus Romania France Italy Migrants fleeing unrest in North Africa y g Tillaga um að herða reglur um ferðafrelsi á Schengen-svæðinu verða ræddar á fundi innanríkisráðherra ESB í dag. Tilefnið er flóttamannastraumur frá Norður-Afríku til Ítalíu og þaðan áfram til annarra Schengen-ríkja. Schengen-ríki Aðildarríkin eru 25, nefnilega 22 ESB-ríki ásamt Íslandi, Noregi og Sviss. ESB-ríki utan Schengen Bretland og Írland standa utan Sche gen, hal a uppi andamæra- eftirliti en eru þó þátttakendur í lögreglusamstarfi. Stefna að aðild á næstu árum Frakkar og Ítalir vilja endurskoða Schengen-ákvæðin. Frakkar hafa stöðvað ferð norður- afrískra flóttamanna frá Ítalíu. H LSTU ÁKVÆÐI SC EN Inn i landamæri afnumi , sem felur í sér h imild til vegabréfalausra f rða milli aðildarríkjanna. Innflytjendaeftirlit er á yt i landamærum svæði ins og lýtur samræm um reglum. Samstarf eflt í lögreglu- g dóms- málum með am iginlegu gag abanka um eftirlýst eða óæskilegt fólk og stolna muni. Ríkisborgar r utan EES með Schengen- egabréfsáritun g ta ferðast ó indrað um svæðið í allt að þrjá mánuði in an sex mánaða ímabils. Aðild rrík n get sett upp landamæra- eftirlit í takmarkaðan tíma e nauðsynlegt þykir vegna stefn stjórnvalda eða af þjóð röryggi ástæðum. Ísland Noregur Írland Bretland Frakkland Sviss Túnis Líbía Ítalía Rúmenía Búlg rí Kýpur Flóttamenn flýja ólguna í Norður- Afríku ESB ræðir nýjar Schengen-reglur Lj ós m yn d: G et ty Im ag es Heimild: Framkvæmdastjórn ESB © Graphic News Deila um Schengen Frakkar og Ítalir vilja hraða breytingum á Schengen vegna flóttamannastraums. José Manuel Barroso segir breytingarnar hafa verið lengi í undirbúningi. Ísland er aðili að Schengen-samstarfinu ásamt Noregi, Sviss og 22 af 27 ríkjum Evrópusambandsins. Vegna þess að Ísland stendur utan ESB hefur það engan ákvörðunarrétt um breytingar á Schengen-reglunum, en er heldur ekki skuldbundið til að taka þær upp í innlend lög. Íslendingar hafa samt sem áður meiri rétt til afskipta af Schengen-reglum á mótunarstigi en flestum öðrum lagagjörðum Evrópusambandsins, vegna þátttöku í sameiginlegri nefnd og þátttökuréttar á ráðherrafundum um Schengen-samstarfið, þótt atkvæðisréttur fylgi ekki. Íslendingar hafa síðan samviskusamlega tekið upp flestar nýjar reglur um Schengen nokkuð fljótt, og hraðar en mörg önnur aðildarríkin. Ísland og Schengen Lexus notaðir bílar SC 430 Nýskr.: 04.07 Ek.: 7.000. km. 4,3 bensín Sjálfskiptur 7.790.000. kr. IS 250 Nýskr.: 05.08 Ek.: 23.000. km. 2,5 bensín Sjálfskiptur Tilboð: 3.990.000. kr. GS 430 Luxury Nýskr.: 04.05 Ek.: 71.000. km. 4,3 bensín Sjálfskiptur Tilboð: 3.890.000. kr. IS 250 Nýskr.: 09.09 Ek.: 6.000. km. 2,5 bensín Sjálfskiptur 5.890.000. kr. RX 400h EXE Nýskr.: 08.07 Ek.: 60.000. km. 3,3 bensín Sjálfskiptur Tilboð: 5.690.000. kr. IS 250 Luxury Nýskr.: 08.06 Ek.: 80.000. km. 2,5 bensín Sjálfskiptur 3.790.000. kr. DÓMSMÁL Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Lands- bankans, þarf ekki að endurgreiða 100 milljónir króna sem voru greiddar í séreignalífeyrissjóð hans rétt fyrir hrun. Þetta er niður- staða Héraðsdóms Reykjavíkur. Héraðsdómur vísaði máli sl itastjórnar Landsbankans gegn Halldóri frá dómi í gær. Slitastjórnin stefndi honum vegna 100 milljóna greiðslu Landsbank- ans í séreignalífeyrissjóð hans. Greiðslan var gerð 19. september 2008. Slitastjórnin taldi að bankinn hefði verið orðinn ógjaldfær þegar greiðslan var innt af hendi og Hall- dóri bæri að greiða milljónirnar til baka. Verjandi Halldórs krafðist frá- vísunar á grundvelli þess að beiðni um matsmenn og gögn, sem áttu að styðja málatilbúnað slitastjórnar- innar, hefði komið of seint fram. Matsmenn áttu að sýna fram á að bankinn hefði verið ógjaldfær. Héraðsdómur féllst á málatil- búnað verjandans og vísaði málinu frá dómi. Slitastjórn Landsbankans hyggst áfrýja til Hæstaréttar. - þeb Héraðsdómur vísaði kröfu slitastjórnar á hendur fyrrverandi bankastjóra frá: Þarf ekki að borga 100 milljónir HALLDÓR J. KRISTJÁNSSON Fyrrverandi bankastjóri Landsbankans þarf ekki að endurgreiða slitastjórn 100 milljónir króna samkvæmt héraðsdómi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þingsályktunartillaga liggur nú fyrir Alþingi um að gerð verði úttekt á Schengen-samstarfinu. Ekki eru fyrirhugaðar breytingar á samstarfinu af Íslands hálfu að svo stöddu en Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra styður tillöguna um að gerð verði úttekt. „Við horfum til umræðunnar í Noregi og víðar þar sem menn hafa áhyggjur af því að Schengen takmarki rétt okkar til að fylgjast með fólki sem hefur misjafnt mjöl í pokahorninu.“ Ögmundur segist hafa áhyggjur af Schengen-samstarfinu, því þrátt fyrir ýmsa kosti Schengen í samvinnu lögreglu og dómsyfirvalda til að fylgjast með skipulagðri glæpastarfsemi þá hafi það líka mikla ókosti og takmarki möguleika á að fylgjast með ferðum til landsins og stöðva endurkomu dæmdra glæpamanna. Stendur til að gera úttekt á Schengen Hefur þú áhyggjur af yfirvof- andi læknaskorti hér á landi? Já 75,9% Nei 24,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Horfðir þú á undankeppni Eurovision á þriðjudag? Segðu þína skoðun á vísir.is. ÖGMUNDUR JÓNASSON KJÖRKASSINN DÓMSMÁL Silkibindamálið svokall- aða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í annað sinn í gær. Hæstiréttur hafði ómerkt dóm héraðsdóms yfir manni sem reyndi að smygla Rolex-úri, silki- hálsbindum, silkihálsklútum og leðurhandtösku í gegnum tollinn. Verðmæti góssins nam ríflega einni milljón króna. Sakborningur kvaðst hafa verið ákærður fyrir tiltekið ákvæði tollalaga en dæmdur eftir öðru ákvæði. Því vísaði Hæstiréttur málinu heim í hérað á ný. - jss Dómur hafði verið ómerktur: Silkibindamálið þingfest aftur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.