Fréttablaðið - 12.05.2011, Page 12
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR12
VELKOMIN Á BIFRÖST
Upplifðu Bifröst
Komdu í heimsókn og kynntu þér námið í
1 dag til að fullvissa þig um að það henti þér.
Á sama tíma geturðu skoðað líkamsræktina,
kaffihúsið, leikskólann, golfvöllinn og fleira
sem háskólasvæðið hefur upp á að bjóða.
Nánari upplýsingar á bifröst.is.
Opinn
dagur
21. maí
Opið fyrir umsóknir á bifrost.is
HHS - heimspeki,
hagfræði og
stjórnmálafræði
HHS undirbýr nemendur fyrir atvinnumarkað þar
sem gerðar eru miklar kröfur og þróun er hröð.
Námið er einnig góður undirbúningur fyrir fjölbreytilegt framhaldsnám á sviði
hug- og félagsvísinda. Í því fléttast saman þrjár grunngreinar hug- og félagsvísinda
sem oftast eru kenndar hver í sínu lagi. Með því að blanda saman aðferðum
heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði verður til óvenjulegt og innihaldsríkt
grunnnám sem býr til óvænt og gagnleg sjónarhorn.
Aðalfundur félagsins haldin miðvikudaginn 18. maí
kl. 16.00, á skrifstofu félagsins að Haukanesi 23,
210 Garðarbæ.
Dagskrá aðalfundar:
Venjuleg aðalfundarstörf.
AÐALFUNDUR
www.blattafram.is
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt.
Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing
GRAFIÐ EFTIR MÓNU LÍSU Í klaustri
heilagrar Úrsúlu í borginni Flórens á
Ítalíu er nú hafin leit að jarðneskum
leifum Lísu Gherardini svo ganga megi
úr skugga um hvort hún hafi verið
fyrirmynd málverks Leonardos da Vinci
af Mónu Lísu. NORDICPHOTOS/AFP
UMHVERFISMÁL Heilbrigðisnefnd
Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis
mótmælir þeirri fullyrðingu Orku-
veitunnar að jarðhitanýting við
Gráuhnúka muni engin áhrif hafa
á loftgæði.
Skipulagsstofnun fól heilbrigðis-
nefndinni að veita umsögn um
frummatsskýrslu Orkuveitunnar
vegna fyrirhugaðrar vinnslu jarð-
hita við Gráuhnúka fyrir Hellis-
heiðarvirkjun.
Nefndin segir að viðhald loft-
gæða og endurheimt loftgæða
hafi ekki fengið þá umfjöllun í
frummatsskýrslu eins og óskað
hafi verið eftir. Minna sé gert úr
umhverfisáhrifum en efni standi
til. Brennisteinsvetni í andrúms-
lofti hafi bein áhrif á heilsu og
umhverfisgæði almennings í
landinu. Tryggja verði lífsgæði
almennings.
„Ekki er hægt að fallast á
að loftmengun frá virkjunum
á Hellisheiði og Nesjavöllum
verði til frambúðar við og yfir
heilsuverndarmörkum í íbúð-
ar- eða frístundabyggðum í
Kópavogi,“ segir heilbrigðis-
nefndin og bendir á að lögum
um umhverfisáhrif sé ætlað að
draga eins og kostur sé úr nei-
kvæðum umhverfisáhrifum
framkvæmdar.
Frummatsskýrslan fullnægir
ekki þeim skilyrðum og því ætti
Skipulagsstofnun að skikka Orku-
veituna til endurskoða skýrsl-
una frá grunni. Vegna sam-
legðaráhrifa og ófyrirséðra
umhverfisáhrifa ætti að skoða
ítarlega hvort ástæða sé til að
setja orkuvinnslu og virkjana-
staði á Hellisheiðarsvæðinu í
sameiginlegt umhverfismat. - gar
Heilbrigðisnefnd mótmælir niðurstöðu OR:
Óttast loftmengun
frá Gráuhnúkum
HELLISHEIÐARVIRKJUN Orkuveitan vill nýta jarðhita við Gráuhnúka í Hellisheiðar-
virkjun og kveður þá vinnslu engin áhrif munu hafa á loftgæði. Heilbrigðisnefnd
Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis vill að fyrirtækið vinni nýja frummatsskýrslu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNSÝSLA Þjóðkirkjan og hús-
næði tengd heilbrigðisþjónustu
eru einu stofnanir lands-
ins sem þurfa ekki að greiða
gatnagerðargjöld samkvæmt
lögum. Alþingi, ráðuneytin og
opinberar byggingar á vegum
ríkis og sveitarfélaga þurfa að
greiða gjöldin, sem og eigendur
annarra lóða.
Fréttablaðið komst að þessu
þegar rætt var við Ágúst Jóns-
son, framkvæmdastjóra eigna-
sviðs Reykjavíkurborgar,
vegna umfjöllunar um svæðið í
kringum flugvöllinn í Vatnsmýri,
en eigendur svæðisins hafa verið
undanþegnir greiðslu á gatna-
gerðargjöldum síðan árið 1989.
Í samþykkt um gatnagerðar-
gjald í Reykjavíkurborg segir
að borgin innheimti gjaldið af
fasteignum í þéttbýli innan lög-
sagnarumdæmisins. Gjaldskylda
er óháð eignarhaldi á lóðum eða
mannvirkjum.
Samkvæmt lögum um kristni-
sjóð, frá árinu 1970, er sveitar-
félögum kaupstaða skylt að
leggja til ókeypis lóðir undir
kirkjur og undanskilja þær
gatnagerðargjaldi.
Samkvæmt lögum um heil-
brigðisþjónustu, frá árinu 2007,
er sveitarfélögum einnig skylt
að láta í té lóðir undir byggingar,
ríkissjóði að kostnaðarlausu og
án greiðslu gatnagerðargjalda og
lóðarleigu.
Að öllu jöfnu er gatnagerðar-
gjald fimmtán prósent af bygg-
ingarkostnaði fermetra í vísitölu-
húsi fjölbýlis eins og hann er
hverju sinni samkvæmt útreikn-
ingum Hagstofu Íslands. - sv
Þjóðkirkjan og heilbrigðisstofnanir eru undanþegnar gjaldtöku samkvæmt lögum:
Þurfa ekki að greiða gatnagerðargjöld
KIRKJAN Á SELTJARNARNESI Samkvæmt
lögum þurfa sveitarfélög að láta þjóð-
kirkjunni lóðir í té án gatnagerðargjalds,
bæði fyrir byggingu kirkna og heimili
presta í umdæminu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA