Fréttablaðið - 12.05.2011, Síða 33
GRENSÁSVEGI 10 108 Reykjavík www.rizzo.is 577-7000
Sérblað • fimmtudagur 12. maí 2011 • Kynning
Rizzo pizzeria er matsölustaður
þar sem hægt er að setjast inn,
taka með eða fá sent heim
að dyrum. Matseðillinn er
fjölbreyttur og inniheldur ekki
bara pizzur.
„Eldbakaðar pizzur eru okkar sér-
grein en í dag eru einnig grill og
grænir réttir stækkandi hluti af
rekstrinum,“ segir Sigfús Aðal-
steinsson, framkvæmdastjóri veit-
ingastaðarins og heimsendiþjónust-
unnar Rizzo pizzeria.
Rizzo pizzeria fagnar sjö ára
starfsafmæli í ár en fyrsti staður-
inn var opnaður í Hraunbæ árið
2004. Árið 2007 voru kvíarnar
færðar út og tveir staðir opnaðir til
viðbótar, í Bæjarlind og á Grensás-
vegi, en árið 2009 keypti Bjarni
Ásgeir Jónsson og fjölskylda hans
stærstan hluta fyrirtækisins og
rekur það í dag.
Sigfús segir einvala starfslið
eiga stærstan heiðurinn að vel-
gengni fyrirtækisins gegnum árin
en hátt í 60 manns starfa hjá Rizzo
Pizzeria. Eins sé áhersla lögð á ís-
lenskt hráefni sem geri gæfumun-
inn.
„Það hefur alltaf verið markmið
okkar að selja hágæða vöru og ekki
sakar að hana er hægt að gera að
mestu úr íslensku hráefni,“ segir
Sigfús. „Við notum til að mynda ís-
lenska osta og íslenskt grænmeti í
matargerðina og einungis það besta
og ferskasta hverju sinni. Eins
notum við íslenskt hráefni þegar
kemur að öðrum þáttum í rekstri
fyrirtækisins, allt frá kössunum
utan um pizzurnar og til viðarins
sem brennur í pizza ofninum. Þessi
atriði gera þessa farsæld ad verk-
um,“ segir Sigfús en fyrirtækið
veltir hátt í fjögurhundruð milljón-
um á ári. „Reksturinn hjá okkur er
skuldlaus og hjá okkur vinna hátt í
sextíu starfsmenn í ýmsum starfs-
hlutföllum.“
Veitingastaðurinn Græni ris-
inn var stofnaður af eigendum
Rizzo pizzeria árið 2009 þar sem
áhersla var lögð á heilsu samlegan
og ferskan mat. Græni risinn var
sameinaður undir nafni Rizzo
pizzeria í lok ársins 2010 og bætt-
ust þar með hollir réttir risans við
matseðil Rizzo.
„Á matseðlinum okkar eru ekki
bara pizzur heldur er þar að finna
grillrétti, hamborgara, vefjur og
salöt, fisk og heilsupizzur, bakað-
ar úr spelti, auk hinnar rómuðu eld-
bökuðu Rizzo pizzu,“ segir Sigfús og
bætir við að auk þess að geta borðað
matinn á staðnum eða heima í sófa
sé hægt að bjóða upp á Rizzo þegar
gestum er boðið heim en Rizzo
pizzeria rekur einnig veisluþjónustu
fyrir hópa sem telja fleiri en 10.
Til að kynna sér matseðilinn og
veisluþjónustuna má fara inn á síð-
una www.rizzo.is.
Ekki bara pizzur á matseðli
Sigfús Aðalsteinsson segir íslenskt hráefni gera gæfumuninn á Rizzo pizzeria. MYND/GVA
● OPNA VEITINGASTAÐ
Á SPÁNI Rizzo mun opna
veitingastað á Spáni um næstu
mánaðamót í bænum Dona
Pepa, rétt við Torrevieja. Þar
verða eldbakaðar Rizzo-pizzur í
hávegum hafðar, sem og heilsu-
réttir, steikur og grillréttir. Eftir
margar ferðir eigenda Rizzo á
þessar slóðir fannst þeim tími til
kominn ad kynna heimamönn-
um og ferðalöngum matargerð
Rizzo, sem og að veita Íslend-
ingum aðgang að þessum sí-
vinsæla matsölustað.
●RIZZO EXPRESS Rizzo ex-
press var stofnað árið 2009 til
að koma til móts við óskir við-
skiptavina um hraða og ein-
falda þjónustu. Heimsendingar
voru teknar út og vörum fækk-
að á matseðli en með því var
hægt að lækka verð verulega og
koma til móts við viðskiptavini.
Breytingarnar voru gerðar fyrst
í Bæjarlind og svo í Hraunbæ
nokkrum mánuðum seinna. Á
Rizzo express er notað sama
hráefni og uppskriftir og á Rizzo
pizzeria