Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 48
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR32
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. æsa, 6. tveir eins, 8. hækkar, 9.
bein, 11. ekki, 12. kappsamt, 14. ota,
16. nudd, 17. þvottur, 18. mælieining,
20. sjúkdómur, 21. ævintýri.
LÓÐRÉTT
1. sálda, 3. tveir eins, 4. ríki í
Suðaustur-Asíu, 5. flýtir, 7. duttlungar,
10. fley, 13. ílát, 15. eldhúsáhald, 16.
tangi, 19. tveir eins.
LAUSN
Ég sagði þér það
síðast, púttaðu! Þú
nærð því í þetta sinn.
Blessaður
Palli, þú getur
ekki verið á
móti öllu sem
ég segi.
Jú, víst,
það er bara
lögmál
náttúrunnar.
Varst þú ekki á
móti öllu sem
mamma þín sagði
á mínum aldri.
Það var á þeim tíma
og mamma mín var
ekki jafn „svöl“ og ég.
Ég er ekki
sammála
skilgreiningu
þinni á orðinu
„svöl“.
Hvar er
mamma
þín?
Inní svefnherbergi
Þú verður
að vera
nákvæm-
lega
svona
stór til að
komast
inn.
Þetta er
bara einn
af þessum
dögum.
LÁRÉTT: 2. örva, 6. tt, 8. rís, 9. rif, 11.
ei, 12. ákaft, 14. trana, 16. nú, 17. tau,
18. erg, 20. ms, 21. saga.
LÓÐRÉTT: 1. strá, 3. rr, 4. víetnam, 5.
asi, 7. tiktúra, 10. far, 13. fat, 15. ausa,
16. nes, 19. gg.
Ég var ein af þeim sem áttu ekki til orð yfir öllum þeim milljörðum sem kostn-
aður við byggingu Hörpunnar fór fram úr
áætlun. Fussaði og sveiaði yfir bruðli og
flottræfilshætti og fór í fýlu í hvert sinn
sem ég keyrði framhjá byggingarsvæðinu
við höfnina. „Réttast hefði verið að jafna
kumbaldann við jörðu,“ tautaði ég með
sjálfri mér.
GEGNUM árin hef ég ekki verið tíður
gestur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands og einungis nokkrum sinnum
farið í Óperuna, þá í ódýrustu sæti
uppi undir rjáfri. Sýninganna
naut ég þó til hins ýtrasta og
fékk gæsahúð á hæstu tónum.
Þegar salurinn stappaði niður
fótum og æpti „bravó“ að sýn-
ingu lokinni, svo gömlu svalirn-
ar léku á reiðiskjálfi, fór um mig
hrollur af spenningi.
ENDA var ég heldur
aldrei á þeirri skoðun
að ekki væri þörf á
sérstöku tónleika-
húsi og hef aldrei séð
eftir einni krónu sem
fer í að borga Sinfóníu-
hljómsveit Íslands laun, í
henni sitja hljóðfæraleik-
arar á heimsmælikvarða.
Ég var bara súr yfir öllum
milljörðunum. Þeir sem ætluðu að reisa
bygginguna, auk hótels og höfuðstöðva
Landsbankans á sama stað, reyndust ekki
borgunarmenn fyrir reikningnum svo við
hin þurftum að taka við.
FYRSTU tónleikar Sinfóníuhljómsveitar-
innar í Hörpunnar fóru svo fram 4. maí
fyrir troðfullu húsi. Ég reyndi ekki að fá
mér miða. Sat bara í eldhúsinu og dundaði
mér í tölvunni þetta kvöld eins og svo oft
áður. Mundi ekki fyrr en undir lok tón-
leikanna að þeim væri útvarpað beint og
kveikti þá á tækinu, bara til að vera við-
ræðuhæf meðal fólks daginn eftir.
GÆSAHÚÐINNI sem læstist um mig get
ég varla lýst, þegar Óðurinn til gleðinnar
flæddi inn í eldhúsið hjá mér á fullum
styrk. Fagnaðarlætin sem á eftir fylgdu
komu mér næstum til að skæla og ég vildi
að ég hefði staðið sjálf í síðkjól með perlu-
festi og klappað frá mér allt vit. Öll súr-
heit yfir kostnaði ruku út í veður og vind
og ég steingleymdi öllum yfirlýsingum
um flottræfilshátt og bruðl. Hvað eru ein-
hverjar krónur til eða frá þegar upp er
staðið, hugsaði ég með mér og rótaði í fata-
skápnum að heppilegum kjól.
UM helgina er opið hús í Hörpunni. Allir
velkomnir og ókeypis inn. Sparikjóllinn og
perlufestin hanga tilbúin á herðatrénu, ég
á bara eftir að pússa skóna.
Húsið okkar hún Harpa
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is