Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 50
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR34 34
menning@frettabladid.is
Ásgerður Júníusdóttir messósópran
syngur lög eftir Gunnar Reyni
Sveinsson, Björk Guðmundsdótt-
ur og Magnús Blöndal Jóhanns-
son á hljómdisknum Langt fyrir
utan ystu skóga, sem nýkomin
er út. Tónskáldin þrjú eiga það
sameiginlegt að dansa á mörkum
klassískrar tónlistar og annarra
tónlistarstefna, til dæmi djass,
popps, leikhús-, kvikmynda- og
raftónlistar.
Á disknum koma út í fyrsta sinn
nýjar útsetningar Jónasar Sen á
sönglögum Bjarkar. Björk pant-
aði útsetningarnar sjálf og voru
þær unnar í samráði við hana, en
Jónas hefur leikið undir á hljóm-
plötum og á tónleikaferðalögum
með Björk. Einnig má á disknum
finna nýjan texta eftir skáldið Sjón
við fyrstu tónsmíð Bjarkar, lagið
Kjarval, sem kom út á hljómplötu
þegar hún var tólf ára.
Meðleikarar Ásgerðar á diskn-
um eru Jónas Sen og Sveitin, djass-
kvartett sem settur var saman
fyrir upptökur disksins en í honum
eru Pétur Grétarsson, Þórður
Högnason, Kjartan Valdemarsson
og Óskar Guðjónsson.
Langt fyrir utan ystu skóga er
þriðji hljómdiskur Ásgerðar Júní-
usdóttur. Á sínum öðrum diski, Í
rökkri, flutti hún sönglög Magn-
úsar Blöndal Jóhannssonar en hér
hafa þau verið sett í annan búning.
Þá eru lög Gunnars Reynis Sveins-
sonar flutt í nýjum djassútsetning-
um Péturs Grétarssonar og Sveit-
arinnar. Smekkleysa gefur diskinn
út.
Ásgerður flytur sönglög Bjarkar
JÓNAS OG ÁSGERÐUR Langt fyrir
utan ystu skóga er þriðji hljómdiskur
Ásgerðar. Þar syngur hún meðal annars
sönglög Bjarkar Guðmundsdóttur, sem
Jónas útsetti sérstaklega að beiðni
Bjarkar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í ritinu Að finna undraljós
má finna safn greina um
Þórberg Þórðarson. Berg-
ljót Kristjánsdóttir, annar
ritstjóra verksins, segir
að enn sé stöðugt verið að
gera nýjar uppgötvanir á
höfundarverki Þórbergs.
Greinasafnið Að skilja undraljós
kom út í fyrra en fór ekki í dreif-
ingu fyrr en nú. Það inniheldur
sextán greinar um Þórberg Þórðar-
son, verk hans og hugðarefni. Flest-
ar eiga þær rætur í fyrirlestrum
frá 2008 þegar þess var minnst í
Háskóla Íslands og á Þórbergssetri
í Suðursveit, að 120 ár voru liðin frá
fæðingu þessa sérstæða höfundar.
Hjalti Snær Ægisson og Bergljót
Soffía Kristjánsdóttir ritstýrðu
safninu, sem Bergljót segir að sé
um margt í anda Þórbergs.
„Að því leyti að það er horft
á hann frá ýmsum sjónar-
hornum, ekki bara þröngt svið
akademíunnar,“ segir hún.
Höfundarverk Þórbergs gekk
í endurnýjun lífdaga á áratugn-
um sem leið og má það eflaust
ekki síst þakka bókum Péturs
Gunnars sonar um skáldið, sem
og þeim aukna krafti sem hljóp í
rannsóknir til dæmis í sambandi
við 120 ára afmæli þess. Bergljót
segir að upp úr dúrnum hafi komið
að Þórbergur eigi sérstaklega upp
á pallborðið hjá ungu fólki í dag.
„Ungt fólk drekkur hann í sig.
Ég held að það sé rétt sem Pétur
Gunnarsson segir að þegar Þór-
bergur skrifaði Suðursveitarbæk-
urnar, var hann að fjalla um sam-
félag sem samtíðarmenn hans
þekktu og þótti því ekkert merki-
legt að fá lýsingu á. Hins vegar
stendur ungt fólk nú til dags uppi
með lýsingar af samfélagi sem það
ætti ekki ef Þórbergs nyti ekki
við.“
Bergljót segir yngra fólk einnig
lesa í verk Þórbergs með öðrum
hætti en þeir eldri.
„Það má til dæmis lesa í grein-
um Atla Antonssonar og Sigrúnar
Margrétar Guðmundsdóttur, sem
bæði lesa hann í ljósi erlendra
áhrifa en eru ekki föst í gömlu
klisjunum um að Þórbergur hafi
verið þessi þjóðlegi og allt að því
sjálfskapaði snillingur.“
Benedikt Hjartarson setur Þór-
berg einnig í erlent samhengi og
sýnir hvernig jaðarþjóðir í Evrópu
komust í tengsl við framúrstefnu-
hreyfingar í gegnum esperanto.
„Það er leið sem engum hafði
dottið í hug.“
Kristján Eiríksson ritar grein
um Þórberg og esperanto en hann
hefur þýtt efni sem Þórbergur
skrifaði á því máli.
„Og þess er beðið með mik-
illi eftirvæntingu,“ segir Berg-
ljót, „því í ljós kemur að á fjórtán
ára tímabili, sem gjarnan hefur
verið álitið eyða í hans höfundar-
ferli, var Þórbergur sískrifandi á
esperanto.“
Rannsóknum og nýjum upp-
götvunum er því síst lokið að sögn
Bergljótar.
„Til dæmis er Soffía Auður
Birgisdóttir með stóra bók í smíð-
um um Þórberg, sem ég vona að
komi út á þessu ári.“
bergsteinn@frettabladid.is
Klisjan um séríslenska
snillinginn á undanhaldi
Út er komið ritið Ást er
þjófnaður eftir Eirík Örn
Norðdahl; safn ritgerða
um höfundarétt, þjófnað
og framtíðina í ótal hlut-
um, eins og segir í til-
kynningu frá Perspired
by Iceland sem gefur ritið
út.
Bókin var samin, brot-
in um og prentuð á einum
mánuði. Fyrstu greinina
birti Eiríkur Örn á vef-
svæði sínu, norddahl.org,
11. apríl en bókin kom út
sléttum mánuði síðar.
Ást er þjófnaður fæst
hjá perspiredbyiceland.
com og norddahl.org –
sem rafbók eða pöntuð
sem prentuð bók í vasa-
broti, á 156 síðum.
Þjófnaðarbálkur Eiríks
KODDU LÝKUR Myndlistarsýningunni Koddu lýkur næstkomandi sunnudag. Á sýningunni rýna listamenn í góðærið á Íslandi
og hrunið sem fylgdi. Sýningin olli nokkru fjaðrafoki vegna leyfislausrar notkunar á bókinni Flora Islandica eftir Eggert Pétursson,
sem taldi brotið á sæmdarrétti sínum. Sýningin er í Nýlistasafninu við Skúlagötu og í Alliance-húsinu við Grandagarð.
EIRÍKUR ÖRN
NORÐDAHL
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
10 árum yngri á 10 vikum
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Matur sem yngir og grennir
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Konan í búrinu - kilja
Jussi Adler Olsen
Mundu mig, ég man þig - kilja
Dorothy Koomson
Sláttur - kilja
Hildur Knútsdóttir
Ég man þig - kilja
Yrsa Sigurðardóttir
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
04.05.11 - 10.05.11
Engan þarf að öfunda - kilja
Barbara Demick
Sjálfstæð þjóð
Eiríkur Bergmann
Skurðlæknirinn - kilja
Tess Gerritsen
Handbók um íslensku
Jóhannes B. Sigtryggsson ritst.
BERGLJÓT KRISTJÁNSDÓTTIR Segir yngra fólk lesa Þórberg Þórðarson með öðrum hætti en þeir eldri, til dæmis lesa yngri greinar-
höfundar bókarinnar hann í ljósi erlendra áhrifa frekar en að viðhalda klisjunni um hvað Þórbergur hafi verið þjóðlegur.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN