Fréttablaðið - 12.05.2011, Side 56
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR40
bio@frettabladid.is
> MÆÐRADAGURINN MIKILVÆGUR
Mun meira var um að fjölskyldur
færu í bíó í Bandaríkjunum á
hinum ameríska mæðradegi en
kvikmyndaver höfðu gert ráð fyrir.
Þótt stórmyndin Þór hafi notið
mestra vinsælda þá nutu róm-
antískar gamanmyndir á borð við
Something Borrowed og Jumping
the Broom einnig góðs af deginum
og rufu 10 milljón dollara markið.
Varla líður sú vika að Rachel Weisz sé
ekki orðuð við eitthvert stórhlutverkið í
Hollywood. Síðast var það vonda nornin
í Oz í kvikmynd Sam Raimi og nú er
það aðalkvenhlutverkið í The Bourne
Legacy, sjálfstæðu framhaldi af þrí-
leiknum um Jason Bourne. Matt Damon
hefur sem kunnugt er tilkynnt að hann
hyggist ekki leika í fleiri kvikmyndum
um minnislausa njósnarann og því hefur
verið gripið til þess ráðs að búa til hliðar-
sögu út frá seríunni með Jeremy Renner
í hlutverki leyniþjónustumanns. Hann
verður úti í kuldanum hjá mun hættu-
legri stofnun en þeirri sem Matt Damon
mátti glíma við.
Ráðgert er að Tony Gilroy muni leik-
stýra myndinni og að tökur hefjist
í september. Það gæti hins vegar
stefnt þátttöku Weisz í tvísýnu þar
sem hún mun þá að öllum líkind-
um vera að leika í Oz-myndinni.
Rachel Weisz er sem kunn-
ugt er hætt með leikstjór-
anum Darren Aronofsky og
hefur í kjölfarið sökkt sér
í vinnu. Á næstunni má sjá
hana í kvikmyndum á borð
við The Deep Blue Sea og þá
er hún að vinna með leik-
stjóranum Fernando Mei-
relles í kvikmyndinni 360
ásamt Jude Law, Anthony
Hopkins og Ben Foster.
Framhald af Bourne í bígerð
SAMAN Í BOURNE Rachel Weisz er
orðuð við ansi mörg hlutverk þessa
dagana, það síðasta er í fjórðu
Bourne-myndinni ásamt Jeremy
Renner.
Fjársjóðsleit stórmynda-
framleiðandans Jerry
Bruckheimer skilaði sér
þegar hann ákvað að gera
mynd um sjóræningja.
Fjórða myndin um Jack
Sparrow var frumsýnd á
Cannes í gær.
Það var mikið um dýrðir þegar
stjörnum prýddur leikarahóp-
ur Pirates of The Caribbean: On
Stranger Tides rölti niður rauða
dregilinn í Cannes. Fjórða mynd-
in í sjóræningjamyndaflokki
Jerry Bruckheimer er orðin að
veruleika með eilitlum breyt-
ingum þó. Orlando Bloom, Keiru
Knightley og leikstjóranum Gore
Verbinski var sparkað frá borði
en í þeirra stað eru komin Ósk-
arsverðlaunaleikkonan Penélope
Cruz, sem þykir taka sig vel út
í sjóræningjabúningi, og Ósk-
arsverðlaunaleikstjórinn Rob
Marshall. Fjórða myndin fjallar
reyndar um kunnuglegt stef, hún
segir frá leit Jack Sparrow og
félaga hans að Æskulindinni. Bar-
bossa, í meðförum Geoffry Rush,
er aldrei langt undan og nýr óvin-
ur, Blackbeard, er rétt við sjón-
deildarhringinn (þeirri persónu
hefur reyndar brugðið fyrir í ansi
mörgum sjóræningjamyndum og
-þáttum).
Flestir kvikmyndaspekúlantar
voru sammála um Jerry Bruck-
heimer hlyti annaðhvort að vera
klikkaður eða hefði einfaldlega
ekki séð Cutthroat Island eftir
Renny Harlin þegar framleiðand-
inn tilkynnti að hann hygðist gera
sjóræningjamynd. Innblástur-
inn fékk hann frá skemmtigarði í
Disney World. Sömu spekúlantar
hafa sennilega skellt upp úr þegar
Bruckheimer tilkynnti að Johnny
Depp myndi leika aðalhlutverkið.
En framleiðandinn fékk byr í öll
segl því fyrsta myndin, Pirates of
the Caribbean: The Curse of the
Black Pearl, sigldi á fullri ferð í
efstu hæðir miðasölunnar. Hún
skilaði 514 milljónum dollara í
gróða og öllum var ljóst að Bruck-
heimer ætlaði ekki að fella seglin
og liggja fyrir akkeri.
Að sjálfsögðu var um að ræða
þríleik og þremur árum seinna
birtist Dead Man‘s Chest. Áhorf-
endur flykktust í bíó, elskuðu
Johnny Depp í hlutverki hins
óskiljanlega Sparrow og dáðust
að hinni hugrökku Elizabeth og
undarlegu ástarsambandi hennar
og Williams. Enda fór það svo að
myndin skilaði 840 milljóna doll-
ara gróða. Dómarnir voru reynd-
ar ekkert sérstakir, gagnrýnend-
ur voru sammála um að númer
tvö bæri þess glögg merki að vera
einhvers konar forleikur að síðasta
kaflanum.
Bruckheimer sparaði heldur
ekkert krónurnar í þriðju mynd-
ina, At World‘s End, hún kostaði
300 milljónir í framleiðslu. En hún
olli sárum vonbrigðum, krafturinn
sem hafði einkennt fyrstu myndina
var víðsfjarri, söguþráðurinn rugl-
ingslegur og ótrúverðugur (eins
gáfulega og það kann að hljóma um
sjóræningjamynd). Gróðinn varð
engu að síður umtalsverður, 660
milljónir dollara. Myndirnar þrjár
hafa því skilað tveimur milljörð-
um dollara í gróða sem er stjarn-
fræðileg upphæð í íslenskum krón-
um talið: 227 milljarðar. En það er
ámóta mikið og ríkið hefur eytt í
að endurreisa fjármálafyrirtæki
og tryggingarfélög síðustu tvö ár.
freyrgigja@frettabladid.is
Fjársjóður frá Hollywood
GULLNÁMA Johnny Depp og Penélope Cruz sem Jack Sparrow og Angelica ásamt Ian McShane í hlutverki Blackbeard, hins
goðsagnakennda sjóræningja.
Flestar táningsstúlkur og mæður þeirra
þekkja Robert Pattinson eða vampíruper-
sónuna hans, Edward Cullen, úr Twilight-
myndunum. En um helgina gefst fólki tæki-
færi til að sjá þennan mikla hjartaknúsara
21. aldarinnar í nýju hlutverki í ástarmynd-
inni Water for Elephants. Myndin segir frá
Jacob, nema í dýralækningum, sem hættir
námi og fer í sirkus eftir að foreldrar hans
deyja. Þar kynnist hann hinni undurfögru Mar-
lenu, eiginkonu sirkusstjórans, og verður um leið
ástfanginn. Meðal annarra leikara í mynd-
inni má nefna Christoph Waltz og Reese
Witherspoon.
Paul Bettany var spáð miklum
frama í Hollywood þegar hann
hreppti hlutverk munksins Silas
í The Da Vinci Code sem Ing-
var E. Sigurðsson reyndi einu
sinni við. En hann hefur ekki
alveg náð að fylgja því eftir og kvikmyndin
Priest gefur ekki mikla ástæðu til bjart-
sýni. Myndin segir frá presti á miðöld-
um sem hyggst bjarga systur sinni frá
vampíruhópi.
Þriðja mynd helgarinnar er síðan enn
ein b-myndin frá Nicholas Cage og heitir
Drive Angry. Eins ótrúlega og það kann
að hljóma segir myndin frá Milton , föður
í hefndarhug, sem snýr aftur til jarðar eftir
vist í helvíti.
HJARTAKNÚSARI Robert
Pattinson leikur aðalhlutverkið í
rómantísku kvikmyndinni Water
for Elephants.
Woody Harrelson hefur
samþykkt að leika í hasar/
drama-kvikmyndinni The
Hunger Games eftir leik-
stjóra Seabiscuit, Gary
Ross. Myndin er byggð á
samnefndri bók Suzanne
Collins sem notið hefur
mikilla vinsælda og segir
frá ansi blóðugri keppni
þar sem verðlaunin eru
lífið sjálft.
Harrelson mun leika Haymitch
Abernathy, drykkfelldan kepp-
anda sem hefur yfir sér
goðsagnakenndan blæ. Meðal
annarra leikara í mynd-
inni má nefna Elizabeth
Banks, Liam Hemsworth
og Stanley Tucci en aðal-
hlutverkin verða í höndun-
um á Josh Hutcherson og
Jennifer Lawrence. Har-
relson hefur smám saman
verið að koma ferli sínum
aftur á réttan kjöl eftir
smá brotsjó og leikur á
næstunni í kvikmyndun-
um Friends with Benefits með þeim
Milu Kunis, Justin Timberlake og
Rampart. The Hunger Games er
væntanleg í kvikmyndahús 2012.
Harrelson í hasar
Alec Baldwin hefur verið látinn fara úr
söngleikjamyndinni Rock of Our Ages.
Engar ástæður eru gefnar fyrir brotthvarfi
Baldwin en hann átti að leikan skemmti-
staðaeigandann Dennis Dupree. Baldwin
hefur auðvitað farið á kostum í 30 Rock og
átt ágætis kvikmyndir inn á milli, meðal
annars The Departed, en leikstjórinn
Adam Shankman hefur augljóslega ekki
haft trú á hæfileikum leikarans.
Hvort brotthvarf Baldwins tengist því að
nýlega var tilkynnt að Tom Cruise, Russell
Brand, Malin Akerman, Paul Giamatti og
Catherine Zeta-Jones hefðu bæst í hópinn skal
hins vegar ósagt látið.
Ekkert rokk fyrir
Alec Baldwin
ALEC BALDWIN
WOODY
HARRELSON
Vampíruleikari á nýjum slóðum
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA AF LANDSBYGGÐINNI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.