Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 58
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR42 folk@frettabladid.is Charlie Sheen hefur gefið út lagið Winning á i-Tunes. Meðal þeirra sem koma við sögu í laginu eru Snoop Dogg og gítarleikari Korn, Rob Patterson. Þetta kemur fram í bandaríska blaðinu Los Angeles Times. Lagið er nefnt eftir frægum frasa leikarans og fór á netið á þriðjudag- inn. Gítarleikarinn Patterson lét hafa eftir sér í samtali við Times að lagið væri gott. „En í alvöru talað, ekki taka þetta of alvarlega, þetta á að vera fyndið og skemmtilegt.“ Charlie Sheen sjálfur sparaði ekki stóru orðin á twitter-síðu sinni. „Fólk á eftir að elska lagið, hver vill ekki vera í sigurliðinu,“ skrif- aði Sheen og vitnaði í titil lagsins. Sheen hefur þegar tilkynnt að allur ágóði af sölu lagsins muni renna til fórnarlamba hvirfilbylj- anna í Bandaríkjunum. Sheen gefur út Winning Í SIGURLIÐI Charlie Sheen hefur gefið út smáskífu sem heitir að sjálfsögðu Winning. Bandaríski leikarinn Will Smith vill hafa það gott á tökustað, ef marka má nýlegar fréttir New York Post, því hann hefur leigt sér tveggja hæða færanlegan íbúðarvagn til að geta slakað á milli takna. Smith er nú staddur í New York þar sem tökur á MIB 3 eða Menn í svörtu 3 standa yfir og hefur komið íbúðarvagninum sínum fyrir í miðju SoHo-hverfinu. Nágrannar tökustaðarins kvarta sáran undan ferlíkinu í viðtöl- um við New York Post. „Þetta er algjörlega fáránlegt, ég kann vel að meta Will Smith en hvað varð um alla hógværðina? Þetta fyrir- bæri er stærra en íbúðin mín,“ hefur blaðið eftir Brigette Moreno. Myrna Reisman bætir því við að hún hafi aldrei séð annað eins. „Hvernig þætti Will Smith ef ég legði einhverju svona á lóðinni hans?“ Smith, sem er vanalega meðal tekjuhæstu leikara Hollywood, lætur sig ekki muna um að punga út níu þúsund dölum í leigu á fer- líkinu, sem skartar meðal annars litlum bíósal með hundrað tommu skjá, fullkomnu eldhúsi, risa- stóru svefnherbergi og vel útbúnu baðherbergi. 55 feta einkalíkamsræktarstöð Smiths er síðan lagt rétt hjá en hún er líka á hjólum. Lúxuslíf Will Smith á tökustað STJANAR VIÐ SIG Will Smith er mikill nautnaseggur og hefur á leigu tveggja hæða íbúðarvagn á meðan hann leikur í MIB 3. Lady Gaga, söngkonan vinsæla, tróð upp á góðgerðatónleikum í New York á mánudagskvöld og aðstoðaði við að safna 47 millj- ónum dollara til styrktar góðu málefni. Eins kaldhæðnislega og það kann að hljóma heitir góðgerða- sjóðurinn sem réð Lady Gaga til verksins Hrói höttur og eru það helst bankamenn sem greiða him- inháar upphæðir fyrir að sitja á besta stað og hlýða á heims- frægar poppstjörnur. Hápunkt- urinn var hins vegar uppboð sem Fergie úr Black Eyed Peas stóð fyrir en sá sem bauð hæst fékk að semja lag og taka það upp með samstarfsfélaga hennar úr hljóm- sveitinni, Will I.Am. Meðal ann- arra sem komu fram voru Tony Bennett og Kid Rock og úti í sal voru þau Sarah Jessica Parker, Michael J. Fox, Naomi Watts og Gisele Bundchen. Að lokum má geta þess að öll söfnunin rann til styrktar sér- stökum samtökum sem styðja við og hjálpa fátæku fólki í New York-ríki. Hjálpar til við góð- gerðamál SÖNG Lady Gaga kom fram á góðgerða- tónleikum þar sem 47 milljónir söfnuðust. Gjöfin þín Ef þú verslar vörur frá Estée Lauder fyrir 5.900 krónur eða meira, dagana 11. - 18. maí í Debenhams. Gjöfin inniheldur: Advanced Night Repair – viðgerðardropa, 7ml TimeZone Crème – Fyrirbyggjandi krem við línum og hrukkum, 15ml Advanced Night Repair Eye – Augnkrem fyrir öll vandamál augnsvæðisins, 5ml Pure Color Lipstick – Varalit, litur – candy Pure Color Eyeshadows – Augnskuggabox með tveimur augnskuggum Sumptuous Mascara – Svartan maskara Stóra og góða snyrtitösku ásamt spegli * Verðgildi gjafarinner er ca. 22.650.- * meðan birgðir endast Það er eins og augnhárin margfaldist, þéttist og lengist í það óendanlega. Sumtuous Extreme Lash Multiplying Volume Mascara. Nýr og árangursríkur maskari sem þykkir augnhárin og gerir þau glæsilegri. Þrjár tegundir trefja stuðla að þéttingu sem jafnast næstum á við fölsk augnhár. Lash Advancing Vitamin Complex nærir og styrkir augnhárin. Glitaðir litir gæða augun einstöku bliki og seiðmagni. pund kostar nóttin á villunni á Seychelles-eyjum sem Vilhjálmur Bretaprins og Katrín, hertogaynja af Cambridge, gista á í brúðkaupsferð sinni. Það gerir 755 þúsund íslenskar. 4000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.