Fréttablaðið - 12.05.2011, Side 59

Fréttablaðið - 12.05.2011, Side 59
FIMMTUDAGUR 12. maí 2011 43 Tónlist ★★★★ The Drift Daníel Ágúst Það er nóg að gera í tónlistinni hjá Daníel Ágústi þessa dagana. Hann er áberandi á Gusgus-plöt- unni Arabian Horse sem er vænt- anleg eftir nokkra daga, Nýdönsk er á fullu og svo er sólóplata númer tvö nýkomin út. Fyrri plat- an, Swallowed a Star, kom út fyrir sex árum og hafði að geyma fram- sækna og sérstaka tónlist fram- leidda með strengjasveit, rödd, áslætti og hjóðeffektum. Nýja platan, The Drift, er allt öðruvísi, bæði poppaðri og hressari. The Drift er unnin með hópi þaulvanra hljóðfæraleikara, þ.á m. Jóni Ólafssyni sem spilar á hljóm- borð og bassasynta og gítarleik- urunum Stefáni Má Magnússyni og Guðmundi Péturssyni. Laga- smíðarnar á plötunni eru frekar hefðbundnar, en hljómur hennar og útsetningar eru sérstakar, ein- hvers konar sambland af gítar- rokki, sumstaðar kántrískotnu, og rafpoppi. Bassasyntinn setur sterkan svip svo og gítararnir, bæði kassa og rafmagns. Það er greinilegt að menn hafa legið yfir þessu og e i n s et t sér að búa til eitthvað sér- stakt. Útkom- an er ansi vel heppnuð og ólík f lestu öðru. Lögin eru mörg fín. Ég nefni t.d. Yeah, Yeah, Yeah, Slow Motion, Feel Like Dancing, Falling In Lust og titillagið The Drift, en í raun standa öll ellefu lögin alveg fyrir sínu. Svo má alveg nefna það líka að Daníel Ágúst er frábær söngvari og verður bara betri. Á heildina litið er The Drift flott poppplata. Sérstök, en líka skemmtileg og grípandi. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Fínar lagasmíðar og flottar útsetningar einkenna aðra plötu Daníels Ágústs. Fín lög og flottar pælingar Daníels Ágústs Það er ekki tekið út með sældinni að vera vinsælasta tánings- stjarna heims. Og á því meðali fékk Justin Bieber að bragða á tónleikum sínum á Filippseyjum á þriðjudagskvöld. Bieber ferðast nú um allan heim á tónleikaferða- laginu My World en babb kom í bátinn þegar hann fékk sýkingu í lungun. Læknir ráðlagði Bieber að hætta við tónleikana eða taka mjög stutta útgáfu af þeim en söngvarinn neitaði að hlusta og sagðist ekki ætla að svíkja sitt fólk. Hann sást kasta upp á milli laga á tónleikunum en sýndi af sér fádæma hörku og klár- aði sitt. „Þetta voru góðir tón- leikar en erfiðir. Er í alvörunni veikur. Verð að hvílast,“ skrif- aði ungstirnið á twitter-síðu sína skömmu eftir tónleikana. Kastaði upp á tónleikum HARÐUR Bieber lét sýkingu ekki á sig fá og hélt tónleika á Filippseyjum. Líf Britney Spears mun brátt birtast í myndasöguformi. Það er myndasögufyrirtækið Bluewater sem stendur fyrir því en það hefur áður gert sér mat úr hrak- fallasögu Lindsay Lohan, vel- gengni Lady Gaga og ástarsam- bandi Twilight-stjarnanna Robert Pattinson og Kristen Stewart. Britney hefur auðvitað lifað tímana tvenna og hefur verið undir stanslausri smásjá fjöl- miðla síðan smellurinn Hit Me Baby tröllreið heimsbyggðinni. Frægast er þó sennilega þegar hún virtist fá hálfgert tauga- áfall í beinni, rakaði af sér allt hárið og var að lokum flutt burt með sjúkrabíl af heimili sínu árið 2008. „Hún er miklu flókn- ari heldur en fólk gerir sér grein fyrir. Á bak við listamanninn er manneskja sem hefur þurft að glíma við ýmis vandamál og berj- ast fyrir tilverurétti sínum.“ Spears í myndasögu TEIKNAÐ LÍF Britney Spears verður brátt að myndasöguhetju þegar líf hennar verður teiknað upp í bókstaflegri merkingu. ER BARNIÐ ÞITT Í ÖRUGGUM HÖNDUM ? Forvarnir er besta leiðin! Ráðstefna á vegum Blátt áfram verður haldin í Háskólanum í Reykjavík dagana 19. og 20. maí 2011 Á ráðstefnunni verður sérstaklega vakin athygli á hegðunarmynstri þeirra sem beita börn og unglinga kynferðislegu ofbeldi. Til landsins kemur bandaríski, réttarsálfræðingurinn Carla Van Dam, Ph.D. og mun hún fjalla um aðferðir þeirra sem vilja tæla börn og hversu mikilvægt er að stöðva óviðeigandi samskipti, hvort sem þar á í hlut fullorðinn og barn, eða ef um er að ræða óæskilega hegðun milli tveggja barna. Auk Carla Van Dam, Ph.D. koma fram íslenskir fyrirlesarar og sérfræðingar. Ráðstefnan er samstarf eftirtalinna aðila: Barnaverndarstofa, Barnahús, Drekaslóð, SAFT, Háskólinn í Reykjavík, Starfs- endurhæfing Norðurlands, Samtökin Réttindi Barna og Blátt áfram. Skráning hafin á www.blattafram.is DREKASLÓÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.