Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 60
44 12. maí 2011 FIMMTUDAGUR Kvikmyndin Eldfjall verð- ur frumsýnd í Cannes á annað kvöld. Tveir af virt- ustu leikurum þjóðarinn- ar þreyta frumraun sína á rauða dreglinum við Mið- jarðarhafið. „Þetta er toppurinn á manns ferli að myndin sem maður er í sé frum- sýnd á Cannes,“ segir leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir. Hún og mótleikari hennar, Theódór Júlíusson, verða við- stödd frumsýningu kvikmyndar- innar Eldfjall í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar á Cannes-hátíðinni í Frakklandi á föstudagskvöld. Þau Elma Lísa Gunnarsdóttir og Þor- steinn Bachmann sem leika börn þeirra í myndinni verða einnig viðstödd og Elma Lísa verður Mar- gréti Helgu til halds og trausts í ferðinni. „Ég er eins og fjósakona sem er að fara út í heim en ég er svo heppin að hafa Elmu Lísu mér við hlið enda er hún heimsborgari.“ Þrátt fyrir langan leiklistarferil verður þetta fyrsta erlenda kvik- myndahátíðin sem Margrét Helga og Theódór fara á og hlakka þau að vonum mikið til. Þau léku einnig hjón í myndinni Englar alheims- ins og segja bæði að krefjandi hafi verið að leika í Eldfjalli. „Þetta er með því erfiðara sem ég hef gert og er af nógu að taka. En þetta var ótrúlega spennandi vinna. Rúnar er enginn venjulegur drengur. Ég er búin að vinna með mörg- um mjög góðum leikstjórum en hann hefur eitthvað einstakt,“ segir Margrét Helga, sem mun sjá myndina í fyrsta sinn í Cannes rétt eins og Theódór. Eldfjall er fyrsta myndin þar sem hann er í aðalhlutverki og leikur hann í nánast öllum atrið- um myndarinnar, enda snýst hún um hans persónu. Hann seg- ist vera fullur tilhlökkunar en einnig kvíða yfir því að fara til Cannes. „Maður er vanur að fara í Háskólabíó og sjá þessar mynd- ir sem maður hefur leikið í. Ég er alltaf hálf „nervus“ þegar ég er að sjá myndir í fyrsta skipti og þetta er dálítið stærra en Háskólabíó að fara á þessa frábæru hátíð í Cannes,“ segir Theódór. Fjölmargar kvikmyndastjörn- ur eru viðstaddar Cannes-hátíð- ina á ári hverju og Theódór segir það mikinn heiður að vera í þeirra hópi. „Að vera í hópi með stór- stjörnum heimsins. Ég átti ekki von á því að maður lenti í því á ferlinum en svona er þetta nú.“ Eldfjall keppir í tveimur flokk- um á hátíðinni. Annars vegar í Directors’ Fortnight, þar sem stór nöfn á borð við Martin Scor- sese og George Lucas komu fyrst fram á sjónarsviðið, og hins vegar um Camera d’Or eða fyrir bestu fyrstu kvikmynd leikstjóra. Þetta er í fyrsta skipti sem íslensk kvikmynd keppir í flokki Direc- tors’ Fortnight síðan 1984, þegar Atómstöðin eftir Þorstein Jónsson keppti fyrir Íslands hönd. Mar- grét Helga fór einmitt með lítið hlutverk í þeirri mynd. „Þá notaði ég allt aðra stærð af fötum,“ segir hún í léttum dúr. freyr@frettabladid.is Toppurinn á ferlinum að fara á frumsýningu í Cannes Kraumur tónlistarsjóður úthlutaði níu milljónum króna til fimmtán verkefna á sviði íslenskrar tónlist- ar á Faktorý Bar í gær. Hljómsveitirnar Pascal Pinon, sem er skipuð ungum tónlistarkonum, og Retro Stefson hlutu hæstu framlögin. Sú fyrrnefnda fékk 1,2 milljónir króna fyrir tónleikahald og kynningu á sinni fyrstu plötu erlendis á meðan Retro Stefson fékk eina milljón fyrir tónleikahald og kynningarstarf. Næstar á eftir komu hljómsveitirnar Árstíðir og Dikta með 800 þús- und krónur hvor og rokkararnir í Endless Dark sem fengu 700 þúsund í sinn hlut. Fjórir flytjendur fengu 600 þúsund, eða adhd, Kalli, Anna Þorvaldsdóttir og Who Knew. Kraumur hefur áður styrkt bæði Retro Stefson og Diktu við gerð hljómplatnanna Kimbabwe og Get It Together en styrkurinn í þetta sinn er veittur til að kynna þær á erlendum vettvangi. Tónlistarhátíðirnar Eistnaflug og Aldrei fór ég suður fengu einnig sinn skerf, rétt eins og tónleika- ferðin Póst rokk & ról, tónskáldið Guðmundur Steinn Guðmundsson, Sjóræningjahúsið á Patreksfirði og myndbandaverkefnið Sleepless In Reykjavík. Alls bárust 233 umsóknir um styrk frá Kraumi í ár. Frá því sjóðurinn hóf starfsemi sína hafa yfir sjö- tíu flytjendur hlotið stuðning, þar á meðal Amiina, Bang Gang, Hjaltalín og Ólöf Arnalds. -fb Pascal Pinon fékk 1,2 milljónir BARA GÓÐAR MYNDIR www.bioparadis.is ROUTE IRISH KURTEIST FÓLK BOY A WOMAN, A GUN AND A NOODLE SHOP DÍS (MEÐ ENSKUM TEXTA) BRIM (MEÐ ENSKUM TEXTA) MAÐUR EINS OG ÉG (MEÐ ENSKUM TEXTA) 17:50, 20:00,22:10 18:00, 20:00 18:00, 20:00, 22:00 22:00 18:00 20:00 22:00 MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS BAR & CAFÉ FAST AND FURIOUS 5 7 og 10 POWER THOR 3D 5, 7.30 og 10 RIO - ISL TAL 3D 5 YOUR HIGHNESS 10 HOPP - ISL TAL 6 KURTEIST FÓLK 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar T.V. -KVIKMYNDIR.ISA.E.T. -MBL POWE RSÝNI NG KL. 10. 00 T.V. - kvikmyndir.is www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar ÁLFABAKKA EGILSHÖLL 12 12 12 12 12 12 12 12 KRINGLUNNI SELFOSS AKUREYRI FAST FIVE kl. 5:20 - 8 - 10:40 (Powersýning kl.10:40) FAST FIVE Luxus VIP kl. 5:20 - 8 - 10:40 SOMETHING BORROWED kl. 6 - 8:20 - 10:40 THOR 3D kl. 5:40 - 8 - 10:20 ARTHUR kl. 5:40 - 8 - 10:20 CHALET GIRL kl. 5:50 UNKNOWN kl. 8 SOURCE CODE kl. 10:40 FAST FIVE kl. 5:20 - 8 - 10:10 -10:40 Powersýning kl.8) SOMETHING BORROWED kl. 5:50 - 8 THE LINCOLN LAWYER kl. 8 - 10:20 RED RIDING HOOD kl. 5:50 SOMETHING BORROWED kl. 8 THE LINCOLN LAWYER kl. 10:20 ARTHUR kl. 8 - 10:20 FAST FIVE kl. 5:20 - 8 - 10:40 (Powersýning kl.10:40) THOR kl. 5:40 - 8 - 10:30 16 L L L L L L 7 7 7 7 7 7 V I P HÖRKUSPENNANDI ÞRILLER MEÐ MATTHEW MCCONAUGHEY, WILLIAM H. MACY, MARISA TOMEI OG RYAN PHILLIPE LINCOLN LAWYER BOXOFFICE MAGAZINE  BOXOFFICE MAGAZINE - IN TOUCH STÆRSTA OPNUN Í USA Á ÞESSU ÁRI RÓMANTÍSK GAMANMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR. ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND SEM ÞÚ MUNT ELSKA! THOR 3D kl. 5.20 - 8 - 10.30 SOMETHING BORROWED kl. 5.30 - 8 - 10.20 LINCOLN LAWYER kl. 8 - 10.30 ARTHUR kl. 5.20 - 8 RIO 3D ísl.Tal kl. 5.30 isoibMAS . t þér miða á gðu ygr “Brjáluð afþreyingarmynd sem mun gefa þér nákvæmlega það sem þú sækist eftir, hvort sem þú ert aðdáandi seríunnar eða hasarfíkill almennt.” SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA Á MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Í 3-D FAST FIVE KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 FAST FIVE Í LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 THOR 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 SCREAM 4 KL. 5.40 - 10.30 16 HANNA KL. 8 - 10.25 16 RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 - 5.45 L RIO 2D ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 L HOPP ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 L FAST FIVE KL. 5.40 - 8 - 10.25 12 THOR 3D KL. 5.40 - 8 - 10.15 12 A.E.T - MBL MBL FAST FIVE KL. 5.20 – 9 12 HÆVNEN KL. 5.40 – 8 – 10.20 12 THOR 3D KL. 6 - 9 12 HANNA KL. 8 - 10.20 16 RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 6 L Á LEIÐINNI ÚT Margrét Helga og Theódór pakka saman föggum sínum fyrir ferðalagið til Cannes. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON AFHENDING Kraumur úthlutaði níu milljónum króna til fimm- tán verkefna á Faktorý Bar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.