Fréttablaðið - 25.06.2011, Page 28
25. júní 2011 LAUGARDAGUR28
Þ
egar leikkonan Diane
Keaton lék titilhlut-
verk í kvikmynd-
inni Annie Hall eftir
Woody Allen tók
tískuheimurinn and-
köf. Árið var 1977 og herralegur
fatnaður aðalleikkonunnar vakti
mikla athygli. Stíll Keaton í mynd-
inni einkenndist af jakkafötum,
síðum pilsum, vestum, bindum,
slaufum og flatbotna herraskóm.
Þessi sami stíll er kominn aftur
en jakkaföt með öllum sínum
einfaldleika halda innreið sína í
tískuna.
Tískuhús á borð við Derek Lam,
Celine, Michael Kors og Chloé
hafa verið með jakkaföt á konur
í línum sínum fyrir sumarið og
komandi vetur. Ekki skiptir miklu
máli hvort fötin eru svört, drapp-
lituð, hvít eða í skærum litum.
Síðir jakkar hjá Celine og stutt-
ir hjá Chanel. Víðar skálmar hjá
Derek Lam og glitrandi buxur frá
Michael Kors.
Stjörnurnar eru þegar farnar
að skipta síðkjólum út fyrir sam-
stæðar buxur og jakka á rauða
dreglinum enda óneitanlega
þægileg og einföld samsetning.
Fyrir konur með
einfaldan smekk
Jakkaföt, skyrtur og bindi er fatnaður sem alla
jafna einskorðast við herratískuna en samstæðar
buxur og jakki á kvenmenn eru í lykilhlutverki
tísku ársins 2011.
GRÁTT Jakka-
föt og einfalt
hálsmen frá
Michael Kors.
CHANEL
Víðar buxur
og stuttur
jakki.
DEREK LAM Hneppt upp í háls á
sýningu Derek Lam. NORDICPHOTOS/GETTY
BRAUTRYÐJANDINN
Það eru ekki margir sem vita að Diane Keaton notaði föt úr sínum
eigin fataskáp í myndinni Annie Hall.
Búningarstýra myndarinnar var ekki
par ánægð þegar Keaton gekk inn á
settið, klædd í vesti og skyrtu með
bindi.
Hún fór til leikstjórans, Woody Allen,
og sagði „Þú verður að segja henni að
hún geti ekki klæðst þessum fötum í
myndinni. Þetta er alltof flippað.“
Allen leit á Keaton og svaraði „Láttu
hana vera. Hún er snillingur. Leyfðu
henni að klæða sig eins og hún vill.“
LITRÍK
Jakki og
buxur
þurfa ekki
að vera í
sama lit til
passa saman
en það sýndi Jill
Sander í sumar-
línu sinni.
SKYRTA
Girt ofan í
hátt mitti í
sumarlínu
Dereks
Lam.
GLAMÚR Glitrandi
buxur og síður jakki
frá Michael Kors.
GULT
Sumarleg
jakkaföt.
EINFALT Leik-
konan Tilda
Swinton snyrti-
leg á rauða
dreglinum.