Fréttablaðið - 25.06.2011, Síða 30

Fréttablaðið - 25.06.2011, Síða 30
heimili&hönnun2 ● Forsíðumynd: VitraHaus, Herzog & de Meuron © Vitra (www.vitra. com) Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@ frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Auglýsingar: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir s. 512- 5462 Útlitshönnuður: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is. heimili& hönnun  SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM HÍBÝLI  júní 2011 Salan tekur kipp Aukin sala hefur verið í húsgögnum og raftækj- um síðustu mánuði. Forsvarsmenn verslana segja fólk bæði endur- nýja gamla hluti og skipta út græjum fyrir aðrar nýrri. SÍÐA 2 Almennur áhugi á hönnun Sigríður Heimisdóttir segir frá stór- skemmtilegum hönnunarnámskeiðum í Boisbuchet í Frakklandi. SÍÐA 4 VITRAHAUS, HERZOG & DE MEURON © VITRA WWW.VITRA.COM UNDRAHEIMUR VITRA VitraHaus í Basel, sem hannað er af Herzog & DeMeuron, hýsir heimilislínu Vitra. BLS. 6 1920x1080p UPPLAUSN BETRA ALLTAF VERÐ REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR SEX VERSLANIR 21.5 LCD skjár með HD 1920x1080 upplausn, 20.000:1 skerpu, 5ms viðbragðstíma, VGA, TN filmu o.fl. 21,5” 21.990 VIKUTILBOÐ Á LCD Sterkar vísbendingar eru um það að einkaneysla þjóðarinnar sé á leið upp á við en velta í ákveðnum þáttum sér- vöruverslunar, húsgögnum og raftækj- um, hefur aukist um tugi prósenta síð- ustu mánuði samkvæmt smásöluvísutölu Rannsóknarseturs verslunarinnar. „Verslun í sérvöru er yfirleitt það fyrsta sem dregst saman í efnahags- kreppu og húsgagnaverslanir hafa átt í miklu basli frá hruni. Íslendingar voru mjög duglegir í húsgagnakaupum þar til hrunið varð og mikil uppsveifla varð á þeim markaði í lok ársins 2007. Velta í húsgagnaverslun minnkaði svo um helm- ing frá árinu 2008 til 2009. Frá áramót- um hefur þessi sérvöruverslun hins vegar verið að þokast aftur upp þannig að fólki virðist vera farið að vanta hús- gögn,“ segir Emil B. Karlsson, forstöðu- maður Rannsóknaseturs verslunarinnar. Samkvæmt Rannsóknarsetri versl- unarinnar hefur sérvöruverslun glæðst það sem af er þessu ári frá sama tíma- bili í fyrra. Velta raftækjaverslana jókst um 31,5 prósent á föstu verðlagi og 16 prósent aukning varð í veltu húsgagna- verslunar á sama tíma. Verðlag á þess- um tegundum sérvöru hefur haldist nokk- uð óbreytt á milli ára, nema á raftækjum en þau hafa lækkað tölu- vert í verði, um 11,9 prósent frá maí 2010. IKEA hefur síðustu árin verið ein vinsæl- asta húsgagnaverslun- in hérlendis en framkvæmdastjóri henn- ar, Þórarinn Ævarsson, segir hægan bata hafa orðið í húsgagnaverslun síð- ustu tólf mánuðina eftir að botninum hafi verið náð vorið 2010. „Uppsveifl- an hefur verið nokkuð jöfn yfir allar vörulínur, allt frá barnahúsögnum upp í skrifstofuhúsgögn, en þó minnst í dýr- ustu húsgögnunum,“ segir Þórarinn. Framkvæmdastjórar tveggja rótgró- inna raftækjaverslana hérlendis segj- ast báðir merkja aukningu í sölu stærri heimilistækja. „Fólk er að endurnýja stærri heimil- istæki, svo sem þvottavélar, uppþvotta- vélar og kæliskápa, og virðist hafa beðið með það síðustu árin. Þá er líka góð hreyfing á dýrari raftækjum svo sem hátæknisjónvörpum. Það sama erum svo að sjá í sölu á innréttingum,“ segir Andrés B. Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Bræðranna Ormsson en fyrirtæk- ið hefur einnig sérhæft sig í sölu baðher- bergis- og eldhúsinnréttinga. Auk þess sem Andrés merkir aukna einkaneyslu verður hann var við að verktakar fái út- hlutað stærri verkum og þurfi að fjár- festa í innréttingum í blokkum upp á tugi íbúða. Innkaupastjóri Elko, Óttar Örn Sigur- bergsson, tekur í sama streng og Andr- és og segir greinilegt að sala á stærri heimilistækjum sé á mikilli siglingu. „Fólk er ekki bara að endurnýja lykil- vörurnar heldur er það líka að skipta út tækjum sem eru kannski í góðu lagi en þá er oftast um að ræða hágæðatækni- vörur, svo sem sjónvarpstæki. Inn í þessa auknu sölu spila þó líka fleiri at- riði, svo sem fyrirtækjamarkaðurinn. Það þarf ekki annað en að nýtt hótel opni til að það hafi áhrif á heildarútkomuna.“ Einkaneysla eykst á ný ● Sala á húsgögnum og raftækjum hefur tekið kipp síðustu mánuði. Forsvarsmenn verslana hér í bæ segja fólk bæði vera að endurnýja það sem sé úr sér er gengið og skipta um græjur og fá sér aðrar betri. Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar. Sala á stærri heimilistækjum er á góðri siglingu þessa dagana. MYND/NORDICPHOTOS ●50% SAWDUST Ísraelska hönnunartvíeykið Kulla Stud- io, sem skipað er Adi Shpigel og Keren Tomer, kynnti nýverið borð- lampa úr línu sinni 50% sawdust. Lamp- arnir eru hluti af húsgagnalínu úr endurunnu efni, sagi og plastpokum. Saginu og kurluðum plastpokum er blandað saman, blandan sett í mót og bökuð og er útkoman hart efni. Litirn- ir í plastpokunum mynda skemmti- legt munstur í efnið. Nánar á www. kulladesign.com. UNDIR SÓLINNI... ●NOTADRJÚGT STURTUHENGI Winterch- eck Factory í Brooklyn hann- aði nýlega sniðugt sturtuhengi. Hengið er hannað fyrir þröng baðherbergi íbúða í New York og er með áföstum vösum fyrir sjampó, rakvél og tannbursta. Vasarnir hleypa vatninu í gegn- um sig og geta tekið allt að átta sjampó og sápubrúsa. Eins eru tvær lykkjur á sturtuhenginu þar sem hengja má handklæðið. Nánar á wintercheckfactory.com. ●NEWSPAPERWOOD Dagblaðavið- ur eða NewspaperWood er afrakstur samvinnu vöruhönnuðarins Mieke Meijer og hollenska hönnunarfyrirtækisins Vij5. Viðinn sýndu þau á Salone Del Mobile sýningunni í Mílanó nú í vor. Hugmyndin að baki viðarins er að endurvinna dagblöð. Mörg lög af pappír eru pressuð saman og mynda línur, svip- aðar árhringj í tré. Dagblaðaviðinn er hægt að vinna eins og hvern annan við, saga hann niður, pússa og smíða úr honum. Nánar á www.vij5.nl. b m va ll a .is Smellinn forsteyptar einingalausnir frá BM Vallá Einingahúsin henta vel sem einbýlishús, orlofshús, hesthús, skrifstofur, gistihús ... möguleikarnir eru óendanlegir. Einar Ólafsson verðlaunaarkitekt hefur fjölbreytta reynslu af hönnun einingahúsa. Frábær byggingakostur „Forsteyptar einingar gefa frelsi í hönnun og ég get verið viss um gæði steypunnar. Þess vegna vel ég forsteyptar einingar í margar af byggingunum sem ég hanna.“ BM Vallá ehf. Bíldshöfða 7 110 Reykjavík Sími: 412 5000 Fax: 412 5001 sala@bmvalla.is Helstu kostir SMELLINN húseininga: Styttri byggingartími Steypt við bestu aðstæður Yfirborð frágengið Gott einangrunargildi Minni fjármagnskostnaður Smellinn einingahús eru traustur og fljótlegur kostur fyrir fólk í framkvæmdahug. Húsin eru steypt við bestu mögulegu aðstæður, reist og tilbúin á stuttum tíma og hafa í för með sér lægri fjármagnskostnað.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.