Fréttablaðið - 25.06.2011, Side 64
25. júní 2011 LAUGARDAGUR40
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. endir, 6. eftir hádegi, 8. sæ, 9.
draup, 11. hljóm, 12. ólögl. innfluttn-
ingur, 14. skot, 16. pot, 17. sauðaþari,
18. útsæði, 20. golf áhald, 21. lokka.
LÓÐRÉTT
1. flík, 3. þys, 4. spariföt, 5. næði,
7. safna, 10. ætt, 13. eldsneyti, 15.
slepja, 16. skammstöfun, 19. pípa.
LAUSN
Eruð þið hrifnir
af þessu? Þetta
er nýi farsím-
inn minn...
LÁRÉTT: 2. lykt, 6. eh, 8. sjó, 9. lak,
11. óm, 12. smygl, 14. snafs, 16. ot,
17. söl, 18. fræ, 20. tí, 21. laða.
LÓÐRÉTT: 1. pels, 3. ys, 4. kjólföt, 5.
tóm, 7. hamstra, 10. kyn, 13. gas, 15.
slím, 16. ofl, 19. æð.
Veistu hvað
Fríða og Bjarni
hafa haft fyrir
stafni?
Nei,
segðu
mér!!!
Þetta er algjör-
lega óásættanleg
hegðun, Palli!
Þú verður að bæta
þína framkomu
töluvert og það strax!
Ef faðir þinn væri
dauður myndi hann
snúa sér í gröfinni!
Einmitt þegar ég hélt að
líf mitt gæti ekki verið
verra þá opnar mamma
mín munninn.
Má ég fá
plástur? Ég
meiddi mig á
hendinni?
Má ég sjá Þetta
er bara
skráma, þú
þarft ekki
plástur á
þetta.
Ok. Ef það
kemur ein-
hver sýking
og ég fæ
stórt ör þá
get ég alltaf
húðflúrað
yfir það.
Á ferðum mínum um heiminn hef ég stundum rekið augun í skilti þar sem
varað er við vasaþjófum. Þegar ég sé
þau fyllist ég samstundis tortryggni og
aðgæti hvort ég sé ekki örugglega enn
með veskið í vasanum. Þetta endurtek ég í
hvert sinn sem mér verður það á að rekast
utan í aðra manneskju. Ef ég væri vasa-
þjófur myndi ég því stunda iðju mína alls
staðar annars staðar en einmitt þar sem
svona skilti eru. Ályktunargáfa mín segir
mér nefnilega að óvíða sé minni hætta
á að hitta fyrir vasaþjófa en í námunda
við skilti þar sem varað er við þeim.
En kannski eru vasaþjófarnir skrefi
á undan, vita að svona hugsar fólk og
sækja því í staði með skiltum af þessu
tagi. Þannig að þau eiga fullan rétt á
sér. Eða hvað?
ÉG HEF einu sinni orðið fyrir barðinu
á vasaþjófi. Það var í Barcelona
fyrir allmörgum árum. Ég
var á gangi eftir Römbl-
unni og einstaklega vel
lá á mér. Óþarfi er að
draga fjöður yfir að það
stafaði ekki síst af því
að ég var góðglaður af
völdum víns, þótt það sé í
sjálfu sér aukaatriði. En
þar sem ástand mitt mátti
vera hverjum manni aug-
ljóst lá ég kannski sérlega vel við höggi.
Á miðri Römblunni mætti ég ungum pilti
sem svipað virtist vera ástatt um. Hann
var reikull í spori og söng gleðisöngva út
í bláinn drafandi röddu. Þegar við mætt-
umst fagnaði hann mér hjartanlega, faðm-
aði mig og kyssti og steig meira að segja
við mig nokkur dansspor, geislandi af kát-
ínu og áhyggjuleysi æskumannsins sem
er að sletta úr klaufunum. Við kvöddumst
með virktum og hann skildi við mig upp-
veðraðan af þeim hlýhug og tæru lífsgleði
sem mér hafði verið sýnd. En sælan stóð
stutt. Eftir u.þ.b. tíu skref áttaði ég mig
á því að rassvasi minn var tómur, veskið
mitt var horfið. Og ekki bara veskið. Pilt-
urinn, sem ekki hefði átt að vera í mikið
meira tíu skrefa fjarlægð, var líka horf-
inn veg allrar veraldar.
FYRST VARÐ ég gramur út í strákinn og
síðan út í sjálfan mig. Loks fylltist ég þó
aðallega samviskubiti. Ég gat nefnilega
ekki varist aðdáunar á þjófnum. Hann
plataði mig fullkomlega upp úr skónum.
Leikræn tilþrif hans voru slík að ekki
hvarflaði að mér að efast um einlægni
hans. Mér fannst hann eiga meira skilið
fyrir þessa snilldarframmistöðu en snjáð-
an seðlaveskisbleðil með engu í nema
innistæðulausu debetkorti. Satt best að
segja leið mér eins og það hefði verið ég
sem snuðaði hann.
Þegar ég hitti vasaþjófinn
Telma Róbertsdóttir
Löggiltur fasteignasali
telma@husin.is
Ólafur Sævarsson
Sölumaður
oli@husin.is
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.