Fréttablaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 7. júlí 2011
Ný herralína frá Sruli Recht hlaut
frábærar viðtökur þegar hún var
frumsýnd á tískusýningu í París á
dögunum. Troðið var út að dyrum
meðan á henni stóð og vöktu ljós-
myndir Marinós Thorlacius af
línunni sérstaka athygli sýning-
argesta.
Á meðal þeirra var enginn
annar en tónlistarmaðurinn
heimskunni Lenny Kravitz, sem
heillaðist svo af hönnun Sruli
að hann gerði sér lítið fyrir
og keypti heilu bílfarmana af
munum úr línunni, jakka, leður-
skyrtur, skartgripi og fleira.
Kravitz hyggst klæðast þeim á
tónleikaferðalagi sínu um Evr-
ópu í ár, í kjölfar útgáfu á níundu
hljóðversplötu sinni Black and
White America. Tónleikaferða-
lagið verður því án efa ein besta
kynning sem starfandi hönnuður
á Íslandi hefur fengið.
Nýstárlegar nálganir við notk-
un á efnivið hafa vakið athygli
á hönnun Sruli og er nýja línan
þar engin undantekning. Þann-
ig er leður úr hákarlaskrápi eitt
af þeim hráefnum sem notuð eru
í tískulínuna en línan saman-
stendur af hvorki meira né minna
en hundrað hlutum og er innblást-
ur sóttur í íslenska náttúru.
Hún er því ein sú stærsta sem
hefur verð gerð hérlendis og heil-
mikil vinna sem liggur að baki
henni.
„Við vorum hálft ár að ganga
frá línunni en ef öll forvinna, það
er hugmyndavinnna og fleira er
tekin með í reikninginn spannar
ferlið fjórtán ár,“ útskýrir Sruli,
en til gamans má geta að einn
jakkinn kallast Fjórtán ár og á
heiti hans að endurspegla fjórtán
ára reynslu hönnuðarins sjálfs af
mynsturgerð.
Við tekur nú mikil vinna við
að ganga frá pöntunum og seg-
ist Sruli reikna með að þurfa að
fjölga starfsfólki til að anna eft-
irspurn.
„Satt best að segja sárvantar
mig fleira saumafólk á vinnu-
stofuna mína og er að leita að
menntuðum reynsluboltum til að
aðstoða mig.“ roald@frettabladid.is
Hákarlinn sló í gegn
Allt ætlaði um að koll að keyra þegar Sruli Recht frumsýndi nýja herralínu í París á dögunum. Meðal við-
staddra var hinn heimsþekkti Lenny Kravitz, sem keypti aðklæðnað fyrir væntanlegt tónleikaferðalag.
Leðurskór úr hákarlaskrápi.
Sruli Recht er óhræddur við að fara ótroðnar slóðir í hönnun sinni.
MYNDIR/MARINO THORLACIUS
Íslensk náttúra veitti Sruli innblástur.
Fjórtán ár kallast þessi frumlegi jakki.
ferðatöskum, leðurhönskum og vönduðum
göngustöfum svo fátt eitt sé nefnt.
Þú getur litið við í verslun okkar eða farið á
slóðinawww.th.is þar sem hægt er
að skoða úrvalið og gera góð kaup!
Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is
SUMARTILBOÐ Í 3 DAGA
FRÁ FIMMTUDEGI TIL LAUGARDAGS
20% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM
AUSTURSTRÆTI 8–10 • SÍMI 534 0005
ALLIR
SANDALAR
Á 7.800 KR.
Í GYLLTA KETTINUM
OPIÐ ALLA
DAGA!!!