Fréttablaðið - 20.08.2011, Síða 28
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR28
Þ
að var of einfalt
að velja bara hefð-
bundnar landslags-
myndir og of mikil
klisja,“ segir banda-
ríski ljósmyndafræð-
ingurinn Celina Lunsford, sem er
myndritstjóri bókarinnar Ný nátt-
úra – myndir frá Íslandi. Bókin er
gefin út í tengslum við sýningu á
verkum íslenskra samtímaljós-
myndara og samtímalistamanna
sem nota ljósmyndir í verkum
sínum í Frankfurter Kunstverein
í Frankfurt am Main í Þýskalandi.
„Við sýnum einungis myndir sam-
tímaljósmyndara þar en í bókinni
er fjöldi eldri mynda sem sýna
hvernig íslenskt
landslag hefur verið
myndað frá því að
ljósmyndun hófst
á Íslandi fyrir 140
árum. Í henni kemur
glöggt fram hvernig
borgarlandslag er
orðið mikilvægur
hluti af íslenskum
landslagsmyndum.“
Celina kom til Íslands og
valdi myndirnar í bókina úr fjölda
mynda íslenskra ljósmyndara.
Tveimur myndum er teflt saman
á hverri opnu, hvorri eftir sinn
ljósmyndarann og hvorri frá
sínu tímabilinu, rétt
eins og dæmin hér
að ofan sýna. „Mig
langaði ekki til þess
að búa til enn eina
bókina sem væri of
hefðbundin, ég vildi
búa til bók sem endur-
speglaði Ísland eins
og ég upplifði það;
Forvitnilegt land þar
sem býr áhugavert fólk með kald-
hæðinn húmor, þar sem melankólía
helst í hendur við sköpunargleði og
hvatvísi.“
Í bókinni eru yfir 140 myndir
eftir 50 íslenska ljósmyndara. For-
lagið Crymogea gefur bókina út en
ensk/þýska útgáfan er í samstarfi
við Kehrer Verlag.
Í dag gefst tækifæri til að skoða
hluta myndanna sem komið hefur
verið fyrir í miðbænum í tengslum
við Menningarnótt. Upplýsing-
ar um sýninguna er að finna á
vef Crymogeu www.crymogea.is.
Bókin er til sýnis í bókaverslunum
Eymundsson en kemur í sölu eftir
helgi.
Hundrað andlit íslenskrar náttúru
1. Spessi, 1999. Úr myndaröðinni Bensín. 2. Magnús Ólafsson, 1930. Bifreiðastöðin og bensínsalan Bifröst við Hverfisgötu í Reykjavík. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. 3. Anna Schiöth, 1878-1885. Við Pollinn á Akureyri.
4. Ólöf Nordal, 2005. Íslenskt dýrasafn – Hrafn. Diasec prentun. 5. Einar Falur Ingólfsson, 2009. Kirkjufell í Grundarfirði (27.06.2009). 6. Guðmundur Ingólfsson, 1983. Myndir eru birtar með leyfi Crymogeu.Ljósmyndarar
1 2
3 4
5 6
Íslenskum náttúruljós-
myndum úr 140 ára sögu
ljósmyndunar á Íslandi er
safnað saman í væntan-
legri bók sem ber heitið
Ný náttúra – myndir
frá Íslandi. Celina Luns-
ford sagði Sigríði Björgu
Tómas dóttur frá því
hvernig bókin varð til.