Fréttablaðið - 20.08.2011, Qupperneq 36
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR36
Tígrisdýr, býflugur
og gömul sófasett
Knattspyrnuáhugamenn hafa oft og tíðum afar ákveðnar skoðanir
á treyjunum sem leikmenn eftirlætisliðanna þeirra klæðast. Kjartan
Guðmundsson rifjaði upp nokkrar fótboltatreyjur sem skiptar skoðan-
ir hafa verið um í gegnum tíðina, en þó aðallega á tíunda áratugnum.
TREYJA
TÍGURSINS
Aðalbúningur
Hull City árið
1992 var
innblásinn
af gælunafni
liðsins,
„tígrarnir“.
Hönnunin
vakti óhug
hjá flestum
knattspyrnu-
aðdáendum.
SÆTIR Í BLEIKU Hinir skærbleiku varabúningar Everton
á síðustu leiktíð voru umdeildir. Einhverra hluta vegna
sætta margir knattspyrnuunnendur sig illa við þennan
tiltekna lit. NORDICPHOTOS/AFP
ENGAR ERMAR Frá örófi alda hafa knatt-
spyrnumenn leikið í treyjum með ermum.
Kamerúnar reyndu að breyta reglunum í
undanfara HM 2002 en FIFA bannaði liðinu
að spila í ermalausu búningunum sínum á
mótinu. Gripið var til þess ráðs að sauma
þröngar svartar ermar á treyjurnar, sem
losnuðu auðveldlega af í hita leiksins.
NORDICPHOTOS/GETTY
TILRAUNASTARFSEMI Varatreyja Arsenal
frá 1991, sem hlaut viðurnefnið „kreisti
bananinn“, lét jafnvel goðsagnir á borð við
markahrókinn Ian Wright líta illa út á velli.
NORDICPHOTOS/GETTY
Á rin í kringum 1980 voru gullöld fótboltatreyjanna en á tíunda áratugnum hófst mikið hnignunartímabil. Ljótu treyjurnar frá þeim áratug eru svo
margar að það er varla hægt að velja eina úr,“ segir Eiríkur Gunnsteinsson
lögfræðingur, sem er mikill áhugamaður um fótboltatreyjur og hefur safnað
þeim í áraraðir.
Hann segir treyjuna sem hann valdi sem þá ljótustu, búning bandaríska
knattspyrnuliðsins Colorado Caribous frá síðari hluta áttunda áratugarins,
í raun vera svo fáránlega ljóta að hún fari hringinn og verði flott aftur. „Á
þessum tíma voru ótalmargar flottar treyjur á boðstólum, meira að segja
í gömlu bandarísku deildinni NASL {North American Soccer League), sem
lognaðist reyndar út af um miðjan níunda áratuginn. En svo tókst Colorado Caribous að bera
þetta viðrini á borð. Líklega hefur þetta kögur um miðjan búninginn átt að vera svakalega
töff, en gerir það að verkum að treyjan líkist helst gömlu sófasetti. Efri hlutinn er hvítur
og neðri hlutinn er húðlitaður, með kögrinu á milli, þannig að hvítu leikmennirnir í hópnum
líta út eins og magadansmeyjar. Þetta er algjörlega magnað fyrirbæri og ég gæfi aðra hönd-
ina fyrir að eiga upprunalega útgáfu af svona treyju,“ segir Eiríkur.
■ ALGJÖRLEGA MAGNAÐ FYRIRBÆRI
Mexíkóski landsliðs-
maðurinn Jorge Campos er
einn af litríkari leikmönnum
fótboltasögunnar í bók-
staflegum skilningi. Ekki
var nóg með að hann væri
jafnfær um að spila stöðu
markmanns og sóknar-
manns, jafnvel í einum
og sama leiknum, heldur
hannaði hann sína eigin
markmannsbúninga sem
vöktu athygli um allan heim
fyrir litadýrð og óvenjulega
sídd á ermunum.
Á HM í Frakklandi árið
1998 var Campos að venju
skrautlegur í marki mexí-
kóska liðsins. Útileikmenn-
irnir klæddust hins vegar
stórfurðulegum treyjum sem
á voru myndir sem vísuðu í
þjóðararfinn. Kannski hefur
ætlunin verið að hræða líf-
tóruna úr andstæðingunum
á þennan óvenjulega hátt.
■ SKRAUTLEGIR MEXÍKÓAR
JORGE CAMPOS OG LUIS HERNÁN-
DEZ Í leik með Mexíkó á HM ´98.
NORDICPHOTOS/GETTY & AFP
Það vakti gríðarlega athygli þegar KR-ingar stigu í fyrsta sinn
út á völlinn í Býflugnatreyjunni svokölluðu sumarið 1989, þar
sem hvítu röndunum í hinum fræga KR-búningi hafði verið
skipt út fyrir gular. Þótti mörgum samsetningin jaðra við guð-
last eða þaðan af verra, meðan öðrum fannst treyjan minna
fullmikið á Skagamenn og enn aðrir býsnuðust hreinlega yfir
fagurfræðilegum eiginleikum treyjunnar. Býflugnabúningurinn
hefur skotið upp kollinum á leikjum KR-liðsins af og til í
gegnum tíðina og hefur öðlast eins konar „költ-status“ meðal
margra stuðningsmanna liðsins.
■ „VIÐ ERUM SVARTIR, VIÐ ERUM GULIR!“
L íf Magneu-dóttir vara-
borgarfulltrúi
telur annan vara-
búning Manch-
ester United, sem
liðið klæddist af og til á
árunum 1992 til 1994,
fremur bjánalegan.
„Þessi treyja minnir
helst á eitthvað sem írskir barþjónar
gætu klæðst á degi heilags Patreks.
Það vantar bara klunnalega háhattinn
með smáranum. Þessi gula og græna
tvískipting er líka dálítið trúðsleg.
Auk þess hljóta þessar reimar í háls-
inn að vera óþægilegar,“ segir Líf.
■ TRÚÐSLEGUR BARÞJÓNABÚNINGUR
Bæði þessi búningur [sem sést á mynd-inni] og sá sem íslenska landsliðið leikur
í núna eru mjög líklega ljótustu búningar
sem ég hef séð,“ segir fatahönnuðurinn
Guðmundur Jörundsson þegar hann er
beðinn um að nefna fótboltatreyju sem
er honum lítt að skapi. „Búningar
geta verið ljótir á skemmtilegan hátt,
en þessi er einhvern veginn leiðinlega
ljótur. Ef þessi búningur væri mann-
eskja myndi hann búa í Svíþjóð, svo leiðinlegur er
hann. Það sér hvert mannsbarn að lið í þessum bún-
ingi mun tapa, líklega illa. Einnig mættu treyjurnar
vera nálægt því að vera í réttri stærð. Sjálfur myndi
ég halda landsliðsþjálfaranum. Liðið kemst á EM
2012 í nýjum búningum, ekki með nýjum þjálfara,“
segir Guðmundur.
■ LIÐ Í SVONA BÚNINGI TAPAR ILLA
Hinn goðsagnakenndi grái
varabúningur Manchester United
leiktíðina 1995 til 1996 var
hannaður með það fyrir augum
að passa vel við gallabuxur, enda
vinsældir ensku deildarinnar á
hraðri uppleið um allan heim og
fótboltatreyjur orðnar ásættan-
legur hluti af hversdagsklæðnaði
fólks.
Frægt varð þegar stjórinn Alex
Ferguson fann upp á hugsanlega
verstu afsökun allra tíma, þegar
hann skipaði piltunum sínum
að skipta úr gráu treyjunum yfir í
bláar í hálfleik þegar liðið var 3-0
undir gegn Southampton vegna
þess að leikmennirnir gætu ekki
séð hver annan á vellinum í gráu
búningunum. Southampton
vann leikinn 3-1 og leikmenn
Manchester United klæddust
treyjunum aldrei aftur, sem vakti
úlfúð meðal foreldra sem höfðu
eytt stórfé í treyjurnar handa
börnum sínum.
■ ÓSÝNILEGI VARABÚNINGURINN
NORDICPHOTOS/GETTY