Fréttablaðið - 20.08.2011, Side 62
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR16
Hlutverk Orkustofnunar er að vera stjórn-
völdum til ráðuneytis um orku og
auðlindamál, standa fyrir rannsóknum
á orkubúskap og orkulindum þjóðar-
innar, safna og miðla gögnum um
orkumál, vinna áætlanir til lengri tíma
og stuðla að samvinnu á sviði orkumála
og rannsókna innan lands og utan.
Á Orkustofnun starfa sérfræðingar með
umfangsmikla reynslu og byggir stofnunin
á víðtækri færni og menntun þeirra.
Orkugarður
Grensásvegi 9
108 Reykjavík
www.os.is
TVÖ STÖRF Á BESSASTÖÐUM
Embætti forseta Íslands auglýsir laus til
umsóknar tvö 100% störf á Bessastöðum.
RÁÐSMAÐUR / RÁÐSKONA
Starfið felur í sér umsjón með húshaldi og hvers konar
viðburðum á Bessastöðum sem og undirbúning þeirra; vinnu
við móttöku gesta, þjónustu, matseld, þrif; öflun aðfanga og
umsjón með birgðum og húsbúnaði; ráðningu lausráðins
aðstoðarfólks og stjórn á vinnu þess. Jafnframt ýmis önnur
verkefni tengd Bessastöðum og embætti forseta, svo sem
leiðsögn fyrir gesti, skráningu gripa og fleira.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi umtalsverða
reynslu af matseld, sé með bílpróf, lipur í samskiptum, hafi
gott vald á ensku og hreint sakavottorð.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af stjórn viðburða.
Íbúðarhúsnæði á Bessastöðum fylgir starfinu og er til
þess ætlast að starfsmaðurinn búi þar.
Vinnutími getur verið nokkuð óreglulegur og eru laun
greidd á grundvelli kjarasamnings ríkisins við SFR. Starfið
er laust frá 1. október 2011.
STARFSMAÐUR
Í starfinu felst vinna við þjónustu, móttöku gesta, þrif,
matseld og annað sem tengist húshaldi og rekstri á
Bessastöðum.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi reynslu af heimilis-
störfum og matseld, sé með bílpróf, sé lipur í samskiptum
og hafi almennt vald á ensku og hreint sakavottorð.
Vinnutími getur verið nokkuð óreglulegur og eru laun
greidd á grundvelli kjarasamnings ríkisins við SFR. Starfið
er laust frá 1. október 2011.
Nánari upplýsingar um þessi störf má fá hjá Örnólfi Thorssyni
forsetaritara og Árna Sigurjónssyni skrifstofustjóra hjá embætti
forseta Íslands (sími 540 4400, forseti@forseti.is). Umsóknir
skulu hafa borist í síðasta lagi mánudaginn 29. ágúst 2011
og skal senda þær til skrifstofu forseta að Sóleyjargötu 1,
150 Reykjavík, merktar (a) Ráðsmaður / Ráðskona eða (b)
Starfsmaður, eftir því sem við á. Einnig má senda umsóknir
í rafrænu formi á netfangið umsokn@forseti.is. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
Bær
TRÉSMIÐIR,
LÆRLINGAR, VERKAMENN
ÓSKAST
Ans ehf.
www.ans.is
- Sköpun að verki
564 1920 ivar@ans.is