Fréttablaðið - 20.08.2011, Page 73
matur 5
Margt smátt
ALLT UM AUKAEFNI
Aukaefni eru
mjög algeng
í matvælum
nútímans.
Náttúran.is
hefur tekið
saman ítar-
legan lista
yf i r marg-
vísleg aukaefni á borð við litarefni,
þráavarnarefni og bindiefni. Efnin
eru æði misjöfn; meðan sum eru
bara ágæt geta önnur haft skað-
leg áhrif á heilsu manna. Á vefsíð-
unni natturan.is er að finna leitarvél
hægra megin á síðunni. Þar er hægt
að slá inn nöfn aukaefnanna og fá
upplýsingar um eiginleika þeirra.
UNDIRBÝR SIG FYRIR KEPPN-
INA
Ásgeir Sandholt mun keppa
til úrslita um titilinn
World Choco-
late Mast-
er 2011
(WCM)
sem ha ld-
in verður í París
17.-21. október næstkom-
andi. Vefsíðan freisting.is
mun fylgjast náið með keppninni
og hefur verið sett upp undirsíða
á Freistingu þar sem nálgast má
allar fréttir og upplýsingar á einum
stað. Undirbúningur slíkrar keppni
er kostnaðarsamur. Menn geta stutt
við bakið á Ásgeiri með því að kaupa
konfektkassa í Sandholti við Lauga-
veg 36. Þeir innihalda 12 konfekt-
mola af fjórum mismunandi gerð-
um sem eru sérstaklega lagaðir fyrir
þessa styrktarkassa. Hver kassi kost-
ar 2.500 krónur.
SÖLVAFJARA OG SUSHI
Ólafsdalsfélagið stendur í dag fyrir
námskeiðinu Sölvafjara og sushi.
Kynnt verður nýting sölva
og þara eins og hún
var í Ólafsdalsskólan-
um á 19. öld. Einn-
ig verður kynnt
hugmynda-
fræði slowfood-
hreyfingarinnar.
Gengið verður í
sölvafjöru og safnað þangi, þara
og sölvum. Sýnikennsla og kynn-
ing á hugmyndafræði og aðferð-
um sushi. Námskeiðið stendur frá
15 til 18.30 en á sama tíma verður
barnanámskeið um ströndina. Nánari
upplýsingar á www.olafsdalur.is.
SVEPPIR OG SVEPPATÍNSLA
Námskeið í sveppatínslu fer fram á
vegum Landbúnaðarháskóla Íslands
á Keldnaholti og í nágrenni laugar-
daginn 27. ágúst. Námskeiðið hent-
ar öllum þeim sem vilja fræðast um
sveppi sem finna má á Íslandi og
henta í matargerð og hvaða svepp-
ir henta ekki. Námskeiðið er blanda
af fyrirlestri og verklegri kennslu.
Nemendur fara út í nærliggjandi
skóglendi ásamt kennara og fá að-
stoð og kennslu við þær aðferðir
sem notaðar eru til að tína matar-
sveppi. Þá læra nemendur að greina
og hreinsa sveppi. Fjallað verður
um helstu geymsluaðferðir sveppa
og eins helstu nýtingarmöguleika.
Kennari er Bjarni Diðrik Sigurðsson,
skógfræðingur og pró-
fessor við LBHÍ.
Nánari upplýs-
ingar má nálgast
á www.lbhi.is
SAFARÍK UPPSKERA
Grænmetismarkaðir gleðja þá sem ekki búa svo vel að vera með mat-
jurtagarð í túnfætinum og eru þeir nokkrir í Reykjavík og nágrenni. Má
þar nefna Grænmetismarkaðinn að Mosskógum í Mosfellsdal sem er
opinn um helgar á sumrin og vel fram á haust. Þar má finna ný upptekið
grænmeti, spriklandi Þingvallasilung, íslenskt pestó, sultur, rósir, rabarbara og
jarðarber svo dæmi séu nefnd.
Á bílastæði Leikfélags Hveragerðis er grænmetismarkaður allar helgar fram á haust.
Þar er að finna nýtt grænmeti úr gróðuhúsum og nýupptekið útigrænmeti. Má þar
nefna tómata, gúrkur, papriku, salat, kál, rófur, gulrætur, kartöflur, hnúðkál, púrru,
sellerí og fleira.
Þá hefur bændamarkaður frú Laugu, að Laugalæk 6, upp á margt að bjóða og geta
viðskiptavinir gengið að því vísu að framboðið sé beint frá býli. Grænmetismarkaðurinn í Mosskógum.
Kl. 13:30
BYLGJUNNAR
Sveppi og Villi
Á móti sól
Hvanndalsbræður
Jón Jónsson og Friðrik Dór
Páll Óskar Hjálmtýsson
AFMÆLISTÓNLEIKAR
Sjáumst á Ingólfstorgi á Menningarnótt
Of Monsters and Men Steindi jr og félagar
Greifarnir
Ragnheiður Gröndal
Stebbi og Eyfi
Sigga Beinteins
Pálmi Gunnarsson
Egill Ólafsson
Björgvin Halldórsson
Bubbi Morthens
Sálin
Páll Óskar
Selma Björnsdóttir
Ellen Kristjánsdóttir
Jet Black Joe
Stjórnin
Kl. 20:00
Stjörnusveit Bylgjunnar og helstu söngvarar þjóðarinnar!