Fréttablaðið - 20.08.2011, Side 84
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR44
Hvað þarf til að verða góður í
skák? „Lesa skákbækur, æfa sig
í skákþrautum og tefla, meðal
annars í tölvunni.“
Hvenær lærðir þú mann-
ganginn? „Fyrir einu og hálfu
ári, þegar ég var sjö og hálfs.
Mamma byrjaði að kenna mér
og svo tók pabbi við.“
Hvernig finnst þér best að byrja
leik? „Með því að færa kóngs-
peðið á e4.“
Hvort er betra að vera með
svarta eða hvíta menn? „Hvíta
af því þá get ég byrjað skákina.“
Hugsarðu marga leiki fram í
tímann? „Já, það geri ég alltaf.
Marga leiki.“
Þykja þér skákþrautir skemmti-
legar? „Mjög. Ég er oft í þeim
heima á kvöldin.“
Áttu systkini? „Ég á einn bróð-
ur sem heitir Joshua, hann er
bara sex ára og kann alveg að
tefla en ég þarf að kenna honum
meira.“
Ert þú best í skák á heimilinu?
„Ég held það. Það getur að
minnsta kosti enginn unnið mig
í fjölskyldunni.“
Langar þig að tefla við ein-
hvern sérstakan andstæðing?
„Mig langar mest að tefla við
Magnus Carlsen, stórmeistara
í Noregi.“
Hvar ert þú fædd? „Ég er fædd
á Íslandi og hef alltaf átt heima
hér en foreldrar mínir eru kín-
verskir.“
Ferðu oft til Kína? „Ég fer
þangað stundum í heimsókn
á sumrin og bý þá hjá móður-
ömmu minni.“
Þekkir þú einhverja krakka í
Kína? „Bara frænku mína og
frænda sem eru vinir mínir.“
Talarðu kínversku? „Já, ég tala
kínversku en mér finnst flókið
að skrifa kínverska stafi.“
krakkar@frettabladid.is
44
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
LANGAR MEST AÐ TEFLA
VIÐ MAGNUS CARLSEN
Hin níu ára Nansý Davíðsdóttir hefur vakið athygli undanfarið fyrir snilli sína í
taflmennsku. Hún er Íslandsmeistari stúlkna í skák 2011, er á leið á Norðurlanda-
mót og stefnir á að verða skákmeistari þegar hún verður stór.
„Mér finnst betra að vera með hvíta menn en svarta því þá get ég byrjað skákina,“
segir Nansý og kveðst alltaf hugsa marga leiki fram í tímann. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Einn leikmanna er risi, annar kóngur og hinir
eru menn kóngs. Risinn tekur sér stöðu alllangt
frá kóngi og mönnum hans sem eru innan
markalínu. Kóngur sendir einn af mönnum
sínum með skilaboð til risans sem krýpur á
annað hnéð. Sendimaður kastar kveðju á ris-
ann, tekur í vísifingur hans, stígur ofan á tær
hans og segir: „Kóngur segist skulu láta hengja
þig ef þú heyir ófrið í landinu.“ Risinn sprettur á
fætur og hleypur á eftir sendimanni sem reynir
að komast inn fyrir markalínu kóngs. Ef risinn
nær kóngsmanni er sá skyldugur til að ganga
honum á vald og hjálpa honum að handsama
aðra kóngsmenn sem allir eru sendir sömu
erinda. Þegar risinn hefur náð þeim öllum fer
kóngur sjálfur og glímir við risann en aðrir eru
hlutlausir. Sá þeirra verður kóngur næst sem
ber hærri hlut í glímunni.
Heimild/Æskan 2. tbl. 1961
Risaleikur úr fortíðinni
Kóngurinn og menn hans eiga risa fyrir óvin.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ég á einn
bróður
sem heitir
Joshua, hann er
bara sex ára og
kann alveg að
tef la en ég þarf
að kenna
honum meira
Hefurðu séð Kínamúrinn? „Nei,
ekki ennþá, en ég ætla að fara
einhvern tíma og skoða hann.“
Teflir fólk mikið í Kína? „Ekk-
ert mjög mikið. Ég hef að
minnsta kosti aldrei séð kín-
verskt fólk tefla.“
Tekur þú þátt í skákmóti á
næstunni? „Ég fer til Danmerk-
ur með skáksveit úr Rimaskóla
á Norðurlandamót sem verður
8. til 11. september. Það verður
gaman.“
Hvað gerir þú helst þegar þú ert
ekki að tefla? „Bara fer í legó
með bróður mínum og leik mér
líka úti.“
Horfir þú stundum á sjón-
varpið? „Ég horfi mikið á
teiknimyndir og annað barna-
efni en ekkert á fullorðins-
myndir.“
Hvert er mesta skammarstrik
sem þú hefur gert? „Ég geri
aldrei skammarstrik.“
Hvaða sælgæti þykir þér best?
„Kirsuberjabrjóstsykur.“
Vaknarðu snemma á morgn-
ana? „Á veturna vakna ég
snemma til að fara í skólann en
annars svona klukkan níu.“
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? „Skákmeistari.“
Af hverju hætti tannlæknirinn
störfum?
Hann reif kjaft.
Tveir strákar að spjalla
saman:
Ég heyrði nýjan brandara um
daginn! Var ég búinn að segja
þér hann?
Ég veit það ekki. Er hann
fyndinn?
Já!
Þá hefur þú ekki sagt mér
hann!
Í matarveislunni hvíslar
mamman að syni sínum:
Hvers vegna lagðir þú engin
hnífapör við diskinn hjá Jóa
frænda?
Sonurinn segir upphátt:
Ég hélt að Jói þyrfti engin
hnífapör. Þú sagðir að hann
borðaði eins og svín!
Jói: Það er góð lykt af þér í
dag, varstu að fá nýjan rak-
spíra?
Jón: Nei, ég fór í hreina
sokka!
WWW.NI.IS Heimasíða Náttúrufræðistofnunar Íslands er full af
fróðleik. Þar má til dæmis lesa sér til um þá fugla sem verpa á Íslandi og
hvaða bergtegundir er að finna á landinu.
Á Vísi er hægt að horfa
á myndskreyttan upp-
lestur úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið
1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið
endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl-
enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum
börnum í tugi ára.