Fréttablaðið - 20.08.2011, Side 88
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR48
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
SEGÐU
MÉR
MAÐUR!
Hvernig
var þetta?
Hvað get ég sagt?
Ég hef alveg átt
mína draumóra
en þetta tók
öllu fram. Við
pössuðum full-
komlega saman!
Úff úff úff!
Þannig að
þú kláraðir
verkið?
Óóójá!
Trúðu mér! Ég hef
aldrei verið jafn
fullnægður! Og ég
er með myndir
því til sönnunar!
VÁ!
Sérðu hvernig
ég leyfi
fingrunum að
leika sér...
Var
þetta
dýrt?
Já! En þegar
þú eyðir fimm
hundruð spírum
í strokleður, þá
færðu GÆÐI!
Kannski
einhverjir
gagnrýn-
endur.
Flott þemalag
samt.
Ég ætla að taka raf-
hlöðurnar úr þessu svo
ég fái smá frið og ró!!!
Þetta er
betra!
LÁRÉTT
2. lítið, 6. skammstöfun, 8. árkvíslir,
9. kóf, 11. stöðug hreyfing, 12. grátur,
14. digurmæli, 16. átt, 17. hyggja, 18.
tugur, 20. utan, 21. laun.
LÓÐRÉTT
1. strit, 3. tveir eins, 4. garðplöntuteg-
und, 5. hestaskítur, 7. fugl, 10. ferð,
13. garðshorn, 15. klasi, 16. stykki, 19.
tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lágt, 6. al, 8. ála, 9. kaf,
11. ið, 12. snökt, 14. grobb, 16. sv, 17.
trú, 18. tíu, 20. án, 21. kaup.
LÓÐRÉTT: 1. baks, 3. áá, 4. glitbrá,
5. tað, 7. langvía, 10. för, 13. kot, 15.
búnt, 16. stk, 19. uu.
Má bjóða þér
franskar
með þessu?
... æ afsakið.
... er komið að
táningnum sem
gagnrýnendur halda
ekki vatni yfir!
Oooog
núúúnaa...
Skell!
BAMM!
BAMM!
BAMM!
BAMM!
BAMM!
Bílalúga
Kasha Jacqueline Nabagesera á við vandamál að stríða. Hún er lesbía.
Það er samt ekki vandamálið. Vandamálið
er að hún er frá Úganda. Í Úganda er
samfélagið gegnsýrt af hómófóbíu. Sam-
kynhneigð varðar við lög og ævilangur
fangelsisdómur liggur við „ítrekaðri sam-
kynhneigð“. Árið 2009 var frumvarp enn
fremur lagt fyrir þing Úganda þar sem
krafist var dauðarefsingar yfir samkyn-
hneigðum. Vegna alþjóðlegs þrýstings var
frumvarpið þó dregið til baka.
FRUMVARPIÐ naut samt víðtæks stuðn-
ings í Úganda. Hommahatrið er svo
viðurkennt að í fyrra vogaði úgandska
tímaritið Rolling Stone (sem ekki má
rugla saman við alþjóðlega popptíma-
ritið) sér að birta myndir af hundrað
yfirlýstum hommum, kalla þá „þjóðar-
skömm“ og hvetja til þess að þeir yrðu
allir hengdir. Í janúar á þessu ári var
einn þeirra, David Kato, síðan
myrtur á heimili sínu í Kam-
pala. Morðingjarnir sáust
flýja af vettvangi í bif-
reið. Lögreglan hefur
skráningarnúmerið undir
höndum en morðingjarn-
ir ganga enn lausir. Rit-
stjóri tímaritsins þrætir
enn fyrir að samband sé á
milli morðsins og greinar-
innar.
ÞAÐ ER AUÐVELT að fallast hendur
frammi fyrir þessari grimmd. Það er auð-
velt að gefast upp fyrir illsku heimsins. Það
er of auðvelt. Það er líka auðvelt að fyllast
vanþóknun og krefjast þess að þróunar-
aðstoð við Úganda sé dregin til baka þang-
að til ofsóknunum linni. En hvað leiðir það
af sér? Skort á almennilegri fullorðins-
fræðslu einmitt þar sem hennar er mest
þörf. Bandarísk trúfélög með höfuðstöðvar
í biblíubeltinu, sem reka meint hjálparstarf
en einkum þó áróður gegn samkynhneigð-
um, yrðu þá ein um hituna í Úganda. Það
myndi ekki hjálpa Köshu og vinum hennar,
það myndi gera illt verra fyrir þau.
ÞAÐ ER LÍKA AUÐVELT að búa til stutt-
ermaboli og skilti gegn hommaofsóknum í
Úganda og hafa hátt úti á götum á Vestur-
löndum. Ég vil ekki gera lítið úr mórölskum
stuðningi, en það sem gerir málstaðnum
þó mest gagn er að Kasha og vinir hennar
njóti verndar gegn ribbaldaflokkum, hafi
öruggt húsnæði fyrir réttindabaráttu sína
og – það sem hljómar í okkar eyrum of ein-
falt og sjálfsagt til að okkur hugkvæmist að
það geti haft úrslitaáhrif – óheftan aðgang
að ljósritunarvél. Allt þetta veitir Amnesty
International Köshu og félögum hennar í
Úganda.
EF þú vilt raunverulega hjálpa geturðu
gerst félagi á heimasíðu Íslandsdeildar-
innar.
Lessurnar í Úganda
Það skiptir máli hvaða blað fólk gefur sér tíma til að
lesa. Ný Prentmiðlakönnun Capacent Gallup staðfestir
að lesendur á aldrinum 12-59 ára gefa sér lengri tíma
til að lesa Fréttablaðið en Morgunblaðið. Við hlökkum
til að færa ykkur fleiri góðar stundir í framtíðinni.
Lesendur gefa
sér góðan tíma
í Fréttablaðið
Allt sem þú þarft...
MBL
FBL
12-14
ára
15-19
ára
20-24
ára
25-29
ára
30-34
ára
35-39
ára
40-44
ára
45-49
ára
50-54
ára
55-59
ára 20 mín
15 mín
10 mín
5 mín
0 mín
Meðal lestími
í mínútum
á hvert eintak*
*Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. Mældur er tími sem fer í lestur hvers eintaks
Morgunblaðsins og Fréttablaðsins hjá lesendum á aldrinum 12-59 ára á öllu landinu.