Fréttablaðið - 20.08.2011, Síða 92
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR52
Allra síðustu
sýningar!
Þetta er lífi ð
... og om lidt er kaffen klar!
E.B. Fréttablaðið J.V. V. DV. K.H.H.Fréttatíminn.
Mið. 14. sept kl. 20.00
Fös. 16. sept. kl. 20.00
Sun. 18. sept. kl. 20.00
Fim. 22. sept kl. 20.00
Miðasala á midi.is og í Iðnó s. 5629700
Grímutilnefning – Söngkona
ársins 2011.
Vegna fjölda áskorana verða 4 aukasýningar á
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
● Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra og starfar
samkvæmt lögum nr. 75/2007 um opinberan stuðning við tæknirannsóknir,
nýsköpun og atvinnuþróun.
● Tækniþróunarsjóður fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu
Vísinda- og tækniráðs.
● Umsækjendur geta verið fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og háskólar.
● Sjóðurinn veitir framlög til nýsköpunarverkefna sem eru til þess fallin að auka
samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
● Forsenda fyrir aðkomu sjóðsins er að fyrir liggi vel mótuð hugmynd um hagnýtt gildi
og líklegan ávinning sem þróun viðkomandi verkefnis getur leitt til.
● Tækniþróunarsjóður hefur skilgreint þrjá verkefnisflokka og er umsækjendum
bent á að kynna sér þá, ásamt reglum um viðurkenndan kostnað, á vefsíðu sjóðsins.
Umsækjendum gefst kostur á að senda inn myndband með umsókninni til að
kynna verkefnið sitt. Sjá nánar í leiðbeiningum sjóðsins.
● Umsóknarfrestur er til kl. 17.00 þann 15. september næstkomandi.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um Tækniþróunarsjóð
eru á heimasíðu Rannís, www.rannis.is
Tækniþróunarsjóður
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og
framkvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda-
og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s.
Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og
miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins.
Styrkir til nýsköpunar
Umsóknarfrestur er til 15. september 2011
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Starfslaun listamanna
Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 3. október 2011,
kl. 17.00.
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun listamanna
sem úthlutað verður árið 2012, í samræmi við ákvæði laga
nr. 57/2009.
Starfslaun eru veitt úr sex sjóðum, þeir eru:
1. launasjóður hönnuða
2. launasjóður myndlistarmanna
3. launasjóður rithöfunda
4. launasjóður sviðslistafólk
5. launasjóður tónlistarflytjenda
6. launasjóður tónskálda
Auk starfslauna er sjóðunum heimilt að veita ferðastyrki.
Sækja skal um listamannalaun á vef Stjórnarráðsins, vefslóðin
er: http://umsokn.stjr.is umsóknarfrestur er til kl. 17.00, mánu-
daginn 3. október 2011.
Rafrænt umsóknareyðublað fyrir listamannalaun verður
aðgengilegt innan tveggja vikna.
Fylgigögn með umsókn sem ekki er hægt að senda rafrænt
skulu berast skrifstofu stjórnar listamannalauna, Hverfisgötu 54,
101 Reykjavík, fyrir kl. 17.00, mánudaginn 3. október 2011, sé
um póstsendingu að ræða gildir dagsetning póststimpils.
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn því
aðeins tekin til umfjöllunar að framvinduskýrslu vegna fyrri
starfslauna hafi verið skilað til stjórnar listamannalauna, sbr.
ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009.
Einungis er unnt að sækja um starfslaun fyrir sama verkefni í
einn sjóð. Samkvæmt 3. gr. laga nr. 57/2009 er stjórn lista-
mannalauna heimilt að færa umsóknir á milli sjóða. Slíkt
verður gert í samráði við umsækjanda.
Lög um listamannalaun og reglugerð er að finna á heimasíðu
stjórnar listamannalauna: www.listamannalaun.is
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni í síma 562 6388.
Stjórn listamannalauna 18. ágúst 2011.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU ENGIN HÖFT
Í VIÐSKIPTUNUM Á VÍSI
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 20. ágúst
➜ Tónleikar
14.00 Fönduraðstaða fyrir börn á
skrifstofu Norræna félagsins, Óðins-
götu 7. Á sama tíma verða tónleikar
með Moses Hightower, Tríó Glóðir,
Tomten frá Seattle, færeysku söng-
konuna Guðrið Hansdóttur og norska
kórnum Fana Mannskor.
20.30 Andrea Gylfa og Bíóbandið
flytja perlur kvikmyndatónlistarinnar
á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 Helgi og Hljóðfæraleikararnir
með tónleika á Græna hattinum á
Akureyri. Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 KK og Maggi Eiríks spila blús
og aðra alþýðutónlist á Café Rosen-
berg.
23.00 Hljómsveitin Í svörtum fötum
leikur á sveitaballi á Sódóma. Miðaverð
er kr. 2.000.
23.59 Hljómsveitin Sálin hans Jóns
míns með tónleika á Nasa. Aðgangs-
eyrir er kr. 2.900.
➜ Opnanir
13.00 Tvær sýningar opna í Gallerí
Fold við Rauðarárstíg. Það er sýning
breska málarans Nikhil Nathan Kirsh
og sölusýning á verkum Errós. Tónleikar
verða á sama tíma. Allir velkomnir.
16.00 Sýning Huldu Vilhjálmsdóttur
Mynd af henni opnar í Gallerí Ágúst. Á
sýningunni verða til sýnis portrettverk.
Allir velkomnir.
16.00 Hulda Hlín og Katrín Þorvalds-
dóttir opna samsýninguna Persona
á Tjarnargötu 40, Reykjavík. Allir
velkomnir.
17.00 Anna Hallin og Olga Bergmann
opna sýninguna Gárur í Kling og Bang
gallerí. Allir velkomnir.
➜ Uppákomur
14.00 Sérstök menningarnæturdag-
skrá verður á Kex Hostel í boði þeirra
og Kimi Records. Hljómplötumarkaður,
matarmarkaður, myndlistarsýning og
tónleikar með Sóley, Hermigervli,
Loja og Just Another Snake Gult. Allir
velkomnir.
14.00 Listviðburðurinn Festisvall í
boði gogoyoko og Frafl verður haldinn
í annað skipti á Menningarnótt. Lista-
sýning opnar í Hjartagarðinum ásamt
tónleikum. Tónleikaraðir verða einnig á
Ellefunni og Hemma og Valda.
17.00 Skáldin og fjöllistamennirnir
Einar Már Guðmundsson og Bjartmar
Guðlaugsson lesa upp úr nýjum
bókum sínum, flytja ljóð og taka lagið
ásamt tríóinu Blágresi á Sjávarbarnum
við Grandagarð 9. Allir velkomnir.
➜ Markaðir
12.00 Popup-markaður verður í port-
inu á milli laugavegs 19 og 21. Hönn-
uðir sem selja eru Fafu Toys, Færid,
Milla Snorrason, Elva, Svava Halldórs,
Oktober, Hellicopter, Baby K, Mokomo,
Rakel Sólrós, Kow, Erna Design, Luka
Art&Design, Iba, Björg Guðmunds,
Another Scorpion og Organella.
➜ Dans
17.15 Frásagnir um kúbanskan dans
og danssýning með Önnu Richards,
Camilo, Urði og Áka Sahr. Aðgangseyrir
er kr. 1.000.
Sunnudagur 21. ágúst
➜ Síðustu forvöð
10.00 Sýningarlok sýningarinnar Jór!
Hestar í íslenskri myndlist á Kjarvals-
stöðum. Aðgangseyrir er kr. 1.000,
námsmenn yngri en 25 ára greiða kr.
500. Aðgangur er ókeypis fyrir börn
yngri en 18 ára, öryrkja og eldri borgara.
10.00 Sýningum
Errós í Hafnarhúsi,
Erró - Klippi-
myndir og Erró
- Samtíningsverk
/ Þrívíddarsam-
klipp lýkur um
helgina. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.000,
námsmenn yngri
en 25 ára greiða
kr. 500. Aðgangur
er ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára,
öryrkja og eldri borgara.
13.00 Síðasti sýningardagur á samsýn-
ingu Höfuðverks, Bábilja og hindurvitni
í Deiglunni, Akureyri. Allir velkomnir.
13.00 Síðasti sýningardagur á mál-
verkasýningu Hrafnhildar Ingu
Sigurðardóttur í Ketilhúsinu, Akureyri.
Allir velkomnir.
➜ Söfn
14.00 Búningadagur barna haldin
á Árbæjarsafni. Börn frá Þjóðdans-
afélagi Reykjavíkur mæta í búningum
og dansa. Sýning á íslenskum þjóð-
búningum barna og kynning á mis-
munandi búningum og námskeiðum í
gerð þeirra. Aðgangseyrir er kr. 1.000 en
ókeypis aðgangur fyrir börn til 18 ára
aldurs, eldri borgara og öryrkja.
➜ Tónleikar
14.00 Íslensk
þjóðlög verða flutt
í Hólakirkju af
Gerði Bolladóttur
sópran og Victoriu
Tarevskaia selló-
leikara. Aðgangur
er ókeypis.
16.00 Helga
Laufey Finnbogadóttir og Guðjón Þor-
láksson leika á flygil og kontrabassa á
Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
17.00 Ragnheiður Gröndal og Ylf-
ingarnir leika djass í Þjóðmenningar-
húsinu á Jazzhátíð Reykjavíkur 2011.
Aðgangseyrir er kr. 2.000.
20.00 Tenórsaxófónleikararnir Ólafur
Jónsson og Stefán S. Stefánsson leika
á tónleikum á vegum Jazzklúbbsins
Múlans í Norræna húsinu. Með-
leikarar eru Agnar Már Magnússon
á píanó, Þorgrímur Jónsson á bassa
og trommuleikarinn Einar Scheving.
Aðgangseyrir er kr. 2.000.
➜ Sýningarspjall
14.00 Stefan Mayen Briem, list-
fræðingur, með leiðsögn um sýninguna
KONA / FEMME - LOUESE BOURGEO-
IS í Listasafni Íslands. Aðgangseyrir er
kr. 800, eldri borgarar og öryrkjar greiða
kr. 500 og ókeypis aðgangur fyrir börn
yngri en 18 ára.
15.00 Vegna sýningarloka sýningar-
innar Myndin af Þingvöllum í Lista-
safni Árnesinga mun Einar Garibaldi
Eiríksson ræða við gesti um sýninguna.
Aðgangur er ókeypis.
15.00 Eiríkur Þorláksson, list-
fræðingur, leiðir gesti um sýninguna Frá
hugmynd að höggmynd - Teikningar
Ásmundar Sveinssonar í Ásmundar-
safni Listasafns Reykjavíkur. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.000, námsmenn yngri
en 25 ára greiða kr. 500. Aðgangur
er ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára,
öryrkja og eldri borgara.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is