Fréttablaðið - 20.08.2011, Page 98
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR58
Sýningar á sjónvarpsþátt-
unum Game of Thrones
hefjast á Stöð 2 annað
kvöld. Óhætt er að segja
að mikil eftirvænting ríki
fyrir þáttunum og því var
mikil spenna í Bíói Paradís
í gær þar sem sérstök for-
sýning var á fyrstu tveimur
þáttunum.
Game of Thrones-þættirnir hafa
fengið fantagóðar viðtökur í
Bandaríkjunum og víðar þar sem
þeir hafa verið sýndir. Þættirnir
voru tilnefndir til 13 Emmy-verð-
launa þegar tilnefningar voru
kynntar í síðasta mánuði. Fyrsti
þátturinn er á dagskrá Stöðvar 2
klukkan 21.55 annað kvöld.
Fengu forskot á Game of Thrones sæluna
TIL Í SLAGINN Sölvi Steinn Helgason og Sævar Snær Gunnlaugsson voru eldhressir og spenntir fyrir forsýningu á
Game of Thrones í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHEM
Gísli
Einarsson,
sem stýrir
versluninni
Nexus, var
að sjálf-
sögðu
meðal
gesta.
Jóhann Óskarsson og Karl Árnason.
Hera Hallsdóttir og Ásgerður Ósk.
Ingi Steinn og Brynjar Már.
Kristján Friðjónsson og Marta Sigurðar-
dóttir.
Alexandra og Bragi Ólafsson.
Karlakórinn Fóstbræður vill bæta við sig söngmönnum
í allar raddir fyrir næsta starfsár, 2011–2012, sem hefst
í september nk.
Þú þarft að hafa góða söngrödd, tónheyrn og vera
yngri en 45 ára.
Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur V. Snævarr
í síma 898 7050, gsnaevarr@simnet.is.
Karlakórinn Fóstbræður hefur starfað óslitið í hart nær hundrað ár. Kórinn er
metn að ar fullur í verk efna vali og hefur komið reglu lega fram með Sinfóníu-
hljóm sveit Íslands, frum flutt íslensk verk fyrir karla kóra, hald ið tón leika með
Stuð mönn um og tekið þátt í Frost rós um frá upp hafi, svo dæmi séu tekin.
Á þessu ári söng kór inn með Högna Egils syni og Davíð Þór Jóns syni í Hörpu
en þeir tón leik ar fengu afar góða um sögn gagn rýn enda. Þá vöktu tón leik ar
kórs ins á allra sálna messu sl. haust verð skuld aða athygli. Kórinn hefur gefið
út marga geisla diska og vinnur nú að útgáfu fjög urra geisla diska þar sem
kórinn er í aðal hlut verki á þrem þeirra.
Kórinn syngur fjöl breyti lega tón list og kapp kostar að vinna með bestu tón-
listar mönn um lands ins. Stjórnandi Fóstbræðra er Árni Harðarson.
KARLAKÓRINN
FÓSTBRÆÐUR
Langar þig til að syngja í karlakór
sem hefur mikinn metnað?
Stórleikarinn Jeff Bridges hefur
verið kvæntur konu sinni, Susan
Geston, frá árinu 1977 og eiga þau
hjónin saman þrjár dætur. Í nýlegu
viðtali sagði Bridges að lykillinn
að farsælu hjónabandi væri ást og
nóg af kynlífi.
„Maður verður fyrst og fremst
að vera ástfanginn. Vinátta er
einnig mikilvæg og fólk verður í
alvöru að líta á maka sinn sem sinn
betri helming og notfæra sér það.
Svo þarf maður að geta deilt til-
finningum sínum með makanum
en líka að gefa hvort öðru rými til
að anda,“ sagði leikarinn geðugi.
„Og annað gott ráð, fullt, fullt af
góðu kynlífi,“ sagði hann að lokum.
Gott kynlíf lykillinn
að góðu hjónabandi
HAMINGJUSAMUR Jeff Bridges hefur
verið hamingjusamlega giftur Susan
Geston í þrjátíu og fjögur ár.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ný kærasta leikarans George
Clooney, Stacy Keibler, er sögð
hrifnari af besta vini Clooney en
honum sjálfum. Vinurinn sem um
er rætt mun vera enginn annar en
Brad Pitt.
„George er myndarlegur en
Stacy finnst Brad myndarlegri.
Hún er hrifin af George en menn
hafa velt því fyrir sér hvort hún sé
aðeins með honum til að komast í
tæri við Brad. Hún hefur jafnvel
sagt í gríni að um leið og Brad og
Angelina Jolie hætta saman muni
hún reyna við hann,“ var haft eftir
heimildarmanni.
Keibler mun ekki hafa farið
leynt með aðdáun sína á Pitt því
hún skrifaði eitt sinn á Twitter-
síðu sína að það yrði seint leiði-
gjarnt að horfa á hann alla daga
það sem eftir væri. Keibler er
fyrrverandi glímukona og sló í
gegn árið 1999 undir nafninu Miss
Hancock. Hún og Clooney hafa
þekkst í nokkur ár og tóku saman
fljótlega eftir að hann sleit sam-
bandi sínu við ítölsku sjónvarps-
konuna Elisabettu Canalis.
Hrifin af besta vini
kærasta síns
HRIFIN Stacy Keibler er ný kærasta
Georges Clooney en er sögð vera hrifn-
ari af vini Clooneys en honum sjálfum.
NORDICPHOTOS/GETTY