Fréttablaðið - 20.08.2011, Síða 110
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR70
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
Ásgrímur
Már
Friðriksson
Aldur: 28
ára.
Starf: Tilvon-
andi þátta-
stjórnandi,
fatahönnuður
og vinn einnig hjá Eskimo.
Fjölskylda: Pabbi minn heitir Frið-
rik, mamma mín Sigurlaug og stjúpi
minn heitir Arnar.
Búseta: Hverfisgatan.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Ásgrímur Már verður einn þáttastjórn-
enda Nýs útlits á Skjá einum.
„Ég er að lenda eftir kvöldið, sem var frábært í
alla staði,“ segir Harpa Einarsdóttir fatahönn-
uður, en hún bar sigur úr býtum í fatahönnunar-
keppninni Reykjavík Runway á fimmtudagskvöld.
Spurð hvort hún hafi átt von á sigrinum svarar
Harpa: „Já, ég var alveg búin undir það og hafði
mikla trú á verkefninu og sjálfri mér. Ég var búin
að leggja mikla vinnu í þetta og ætlaði mér hrein-
lega að vinna.“
Harpa fór heim með hálfrar milljónar króna
ávísun, boðskort á tískuvikuna í New York og
alhliða rekstraraðstoð frá fyrirtækinu Reykjavik
Runway næsta árið.
„Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem ég vinn
keppni, hef oft lent í öðru og þriðja sæti en nú
vann ég loksins.“
Mikið gekk á hjá Hörpu í aðdraganda keppninn-
ar, en mikil seinkun var á efnunum sem pöntuð
voru að utan. „Ég fékk efnin mín allt of seint og
ég svaf sama og ekkert í tvo sólarhringa fyrir
keppnina,“ segir Harpa, en nú tekur við mikil
vinna hjá henni. Fyrst á dagskrá er að búa til
bæklinga og panta flugfar til New York á tísku-
vikuna en þar er ætlunin að kynna merkið, Ziska,
fyrir útlendan markað.
Dorrit Moussaieff forsetafrú er verndari
Reykjavík Runway og afhenti Hörpu verðlaunin í
fyrrakvöld. „Hún er yndisleg og ég hef hitt hana
áður. Hún bað mig einmitt um að hringja í sig
þegar ég kæmi til New York svo við gætum hist.“
- áp
Ætlar að hitta Dorrit í New York
SIGURVEGARI Harpa Einarsdóttir vann fatahönnunarkeppnina
Reykjavik Runway en hér er hún að sýna dómnefndinni,
Bergþóru Guðnadóttur og Stefáni Svan Aðalheiðarsyni, kjól úr
eigin smiðju. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Það eru margir innan okkar
hóps, og þetta hefur verið rætt,
sem eru óánægðir með forsætis-
ráðherra og hvernig hún hefur
tekið á þessum málum, við hefð-
um viljað hafa hana virkari í okkar
réttinda baráttu og það er ekkert
leyndarmál,“ segir Árni Grétar
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Samtakanna ´78.
Hún vakti töluverða athygli,
frétt Fréttablaðsins um Frostrósa-
aðdáendurna Craig Murray og
Darryl Brown, sem ætla að koma
hingað í desember og fara á tón-
leika. Murray lýsti jafnframt yfir
miklum áhuga á að hitta Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra,
enda sagði hann þá hafa glaðst
ákaflega mikið yfir því þegar hún
gekk að eiga Jónínu Leósdóttur,
sambýliskonu sína til margra ára.
Hrannar B. A rnarsson,
aðstoðar maður Jóhönnu, sagði bón
Ástral anna ekki hafa borist inn á
borð ráðuneytisins. Embættinu
hefði hins vegar borist margvísleg
erindi frá ferðamönnum sem vildu
hitta Jóhönnu. „Ég hef ekki tölu á
því hversu margar fyrirspurnirn-
ar eru og þær snerta ekki allar
hjónaband hennar. Hún hefur hins
vegar ekki haft tíma til að verða
við slíkum erindum og ég á von á
því að þetta erindi verði afgreitt
með sama hætti.“
Árni Grétar segir Samtökunum
´78 hafa borist fjölda fyrirspurna
frá samkynhneigðu fólki hvaðan-
æva úr heiminum sem vilji fá að
hitta Jóhönnu, það hafi hins vegar
gengið bölvanlega að ná tali af
henni og koma á einhvers konar
fundum. „Hún er bara af gamla
skólanum og vill fá að halda sínu
einkalífi fyrir sig. Og við virðum
það auðvitað þó okkur þætti vænt
um að fá þennan liðstyrk. Ég veit
ÁRNI GRÉTAR JÓHANNSSON: DAUÐAFÆRI SEM EKKI HEFUR VERIÐ NÝTT
Samkynhneigðir ósáttir
við forsætisráðherrann
FÁ EKKI AÐ HITTA JÓHÖNNU
Craig Murray og Darryl Brown, Frostrósa-aðdá-
endurnir, fá ekki að hitta Jóhönnu Sigurðar-
dóttur ef marka má aðstoðarmann hennar.
Árni Grétar Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Samtakanna ´78, segir marga samkynhneigða
vera óánægða með hversu lítinn þátt forsætis-
ráðherra hafi tekið í réttindabaráttunni eftir að
hún tók við sínu embætti.
hins vegar til þess að það eru
stórar myndir af henni uppi á
veggjum á réttindaskrifstofum
samkynhneigðra í Afríku þar sem
staða þessa hóps er hvað verst.“
Árni Grétar líkir þessu við
dauðafæri sem ekki hafi verið
nýtt og hann er ekkert sérstak-
lega bjartsýnn á framhaldið, að
forsætisráðherrann verði áberandi
í réttindabaráttunni. Hann bindur
hins vegar vonir við stjórnarskrár-
breytingarnar, ekki síst ef Alþingi
bæti kynvitund inn í stjórnar-
skrána, slíkt gæti fleytt Íslandi í
fremstu röð á þessu sviði. „Hins
vegar er ekkert launungarmál að
sú staðreynd; að Ísland hafi sam-
kynhneigðan forsætisráðherra,
hefur hjálpar hinsegin ferða-
mennskunni og margir horfa til
Íslands sem hálfgerðs drauma-
lands af þeim sökum.“
freyrgigja@frettabladid.is
Listaverkið (Stóra sviðið)
Fyrsta sýning Kl. 16:00 Önnur sýning Kl. 19:30
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 2.9. Kl. 19:30 Br. sýngart.
Lau 3.9. Kl. 19:30 Br. sýngart.
Fös 9.9. Kl. 19:30
Lau 10.9. Kl. 19:30
Fös 16.9. Kl. 19:30
Lau 17.9. Kl. 19:30
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Sun 18.9. Kl. 19:30
Fös 23.9. Kl. 19:30
Lau 24.9. Kl. 19:30
Sun 25.9. Kl. 19:30
Fös 30.9. Kl. 19:30
Lau 1.10. Kl. 19:30
Sun 2.10. Kl. 19:30
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 28.8. Kl. 14:00
Sun 4.9. Kl. 14:00
Sun 11.9. Kl. 14:00
Sun 18.9. Kl. 14:00
Sun 25.9. Kl. 14:00
Blaðamenn frá helstu fjölmiðlum
heims eru staddir í Reykjavík til
að fylgjast með því þegar glerhjúp-
ur Hörpunnar verður lýstur upp.
Þegar hafa birst ítarlegar grein-
ar í Newsweek og Time Out en
blaðamenn frá New York Times,
Vanity Fair, Wall Street Journ-
al, danska ríkissjónvarpinu, Die
Zeit, The Observer, Guardian og
Monocle eru meðal þeirra sem
ætla að vera viðstaddir blaða-
mannafundinn í Hörpunni klukk-
an tíu í dag. Þá sendi færeyska
ríkissjónvarpið starfsmenn frá
bæði útvarps-og sjónvarpssviði.
Á blaðamannafundinum sitja fyrir
svörum Steinunn Birna Ragnars-
dóttir, tónlistarstjóri hússins og
Ólafur Elíasson auk arkitekta
hússins.
Anna Margrét Björnsson, upp-
lýsingafulltrúi Hörpunnar, segir
erlenda fjölmiðla vera mjög áhuga-
sama um Hörpuna. Blaðamanna-
stóðið fer út að borða á Kolabraut-
inni, veitingastað Hörpunnar, í
kvöld og ætlar síðan að gera sér
glaðan dag á Menningarnótt í
Reykjavík sem væntanlega fær
töluverða athygli fyrir vikið í
heimspressunni. Þeir ætla síðan
að snæða hádegisverð á Munn-
hörpunni á morgun, borða á Fiski-
markaðinum annað kvöld og munu
eflaust njóta þess á besta stað
þegar árleg flugeldasýning lýsir
upp himininn yfir Reykjavík. - fgg
Heimspressan fylgist
með opnun Hörpu
ATHYGLISVERÐ Vígsla Hörpu hefur dregið að blaðamenn frá helstu fjölmiðlum
heims. Wall Street Journal, New York Times, DR og Die Zeit eru meðal þeirra blaða
sem ætla að fylgjast með. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Piparúða var sprautað inni á
skemmtistaðnum Kaffibarnum
nú á fimmtudagskvöld með þeim
afleiðingum að nokkrir gestir
fengu ertingu í háls og augu. Sam-
kvæmt starfsmanni Kaffibarsins
var atvikið þó ekki alvarlegt og
engan sakaði.
Margir voru á Kaffibarnum
þetta kvöld og var danski plötu-
snúðurinn Djuna Barnes að þeyta
skífum þegar atvikið átti sér stað.
Að sögn starfsmanna staðarins olli
þetta svolitlum óþægindum hjá
þeim er stóðu næst úti dyrunum
en annars hafi þetta gengið yfir
á stuttum tíma og gestir hald-
ið áfram að skemmta sér. Einn
starfsmaður Kaffibarsins hafði
svo á orði að atvikið væri vissu-
lega óvenjulegt en að margt skrítn-
ara en þetta gerðist í næturlífinu.
Talið er að sömu aðilar hafi
verið að verki á Kaffibarnum
og á Laugavegi en piparúða var
sprautað framan í vegfaranda
sama kvöld. Vísir greindi frá því
að maðurinn hefði verið á gangi
þegar hópur manna hefði komið
að honum. Einn úr hópnum hefði
sprautað úðanum í andlit manns-
ins og svo hefði hópurinn haldið á
brott. Lögregla mætti á staðinn og
leitaði að mönnunum en sú leit bar
engan árangur.
- sm
Piparúða sprautað inni á Kaffibarnum
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÓVENJULEGT
ATVIK Piparúða
var sprautað
inni á skemmti-
staðnum
Kaffibarnum
síðasta fimmtu-
dagskvöld.
Gestir fundu
fyrir nokkrum
óþægindum.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.