Faxi - 01.12.1960, Blaðsíða 6
150
F A X I
fóstra hennar leið, og hún sat alltaf í sama
sæti í kirkjunni.
Einkadóttir þeirra Kristínar og Einars
er Jóna Sigríður. Mun hún flestum Kefl-
víkingum kunn, því hún hefur í mörg ár
starfað við Sparisjóð Keflavíkur. Hún var
gift Stefáni tréskera og síðar sparisjóðs-
stjóra í Keflavík Björnssyni prests í Sand-
felli í Oræfum Stefánssonar og konu hans,
Jóhönnu Lúðvíksdóttur, er síðar giftist
Þorgrími lækni Þórðarsyni.
Börn þeirra eru: 1. Einar, útvarpsvirkja-
meistari í Keflavík, kvæntur Kristjönu
Jakobsdóttur. 2. Björn, skrifstofumaður,
kvæntur Helgu Kristinsdóttur, og 3. Jó-
hanna, hjúkrunarkona, gift Hafsteini
Magnússyni, lögregluþjóni í Keflavík.
Hinn 7. septembre 1944 andaðist Stefán
Björnsson sparisjóðsstjóri. Það sama haust
fluttist Kristín til Jónu dóttur sinnar og
seldi hús sitt. Dvaldist hún upp frá því á
heimili dóttur sinnar umvafin ástúð henn-
ar og dótturbarnanna, sem hún hafði unn-
að og hlúð að meðan kraftar entust. Krist-
ín andaðist 27. ágúst 1952.
Spakmæli.
Þegar maður þorir ekki að segja það, sem
maður hugsar, endar með því, að maður að
lokum hugsar annað en það, sem maður segir.
Zeno.
Betra er að vera þögull og talinn heimskur
en að vera síblaðrandi, svo að af taki allan efa.
Abraham Lincoln.
Lakir menn afsaka yfirsjónir sínar, góðir
menn kappkosta að losna við þær.
Ben Jonson.
Enginn getur verið ihaldssamur nema hann
hafi eitthvað að missa.
OPINBERUN
Hvert get eg, hugarklökkur,
hjarðsveinn í fjallakórnum,
lofsöngva lótið stíga
af Ijóðrœnum brennifórnum?
Elskaða vortíð,
ó, hvað mér er hœgt
um hérvistargöngu mína,
— þegar dimman í djúpið flýr
og dagarnir fara að skína.
Dagarnir skína,
og andvarans óst
fer ylheit um rjóðan vanga,
— þegar dimman í djúpið flýr
°g dagarnir fara að anga.
Dagarnir anga,
og lundin er létt
sem Ijóðskóldsins vasapyngja,
— þegar dimman í djúpið flýr
og dagarnir fara að syngja.
Hverfur mér Himnaríki?
Ó, hugur minn er svo feginn
innfjólgri opinberun
órdagsins — hérna megin.
Kristinn Reyr Pétursson.
(Úr Ijóðabókinni Suður með sjó, 1942).
Sigursæld vor er eigi í því fólgin, að vér
bíðum aldrei ósigur, heldur í því, að rísa
jafnan upp á ný.
Confucius.
Það er að lokum minnst um vert, hvað vér
hugsum, eða hvað vér vitum, eða hvað vér
höldum, — hið eina, sem allt veltur á, er hvað
við gerum.
Ruskin.
Aldrei hefur neinn getað verið nægilegt
mikilmenni til þess að geta verið einræðis-
herra, og svo er enn þann dag í dag!
Pearl Buck.
Það er auðveldast að blekkja sjálfan sig.
B. Lytton.
Velgengnin breytir mönnum ekki, heldur
afhjúpar þá.
Necker.
Grindyíkingar!
Höfum opnað útibú í veitingastofunni Mánaborg.
Sérstaklega hentugt fyrir fólk, sem ekki nær til síma.
I
AÐALSTÖÐIN H.F.
i
!
I
Sími 1515 — Keflavík