Faxi - 01.12.1960, Blaðsíða 27
F A X I
171
J arð vinnsluvélar
að verki
í Keflavík
nú er unnið að framlengingu Skólavegar-
ins frá Háholti að gamla flugvallarvegin-
um. Þó þessi framlenging verði ekki tekin
með því, sem malbikað verður á næsta
sumri, þá er hún hin mesta samgöngubót,
t. d. fyrir starfsfólk á flugvellinum og
aðra, sem þaðan eiga erindi til Keflavík-
ur. Getur þetta fólk nú komizt beint og
krókalaust til heimila sinna eftir þessari
nýju götu, en við það léttir mjög á aðal-
umferðargötum bæjarins, t. d. Hafnargötu
og Hringbraut, sem ekki er vanþörf.
— Hvenær verður þessi gata ökufær?
— Eg reikna með, að hún verði það um
svipað leyti og þetta blað berst lesendum.
— Já, og nú er byrjað á nýjum vegi til
Reykjavíkur. Finnst þér það ekki ánægju-
leg tilhugsun?
— Jú, vissulega. En eftir því sem fregn-
ir herma, munum við mega bíða hans
næstu þrjú árin. En eins og máltækið seg-
ir: — Hálfnað er verk þá hafið er.
— En svo við víkjum aftur að okkar
viðfangsefnum hér heima. Eitthvað fleira
munt þú hafa í pokahorninu af fram-
kvæmdum bæjarins?
— Vatnstankurinn var byggður á þessu
ári, en hann kom létt við mig, því verkið
var boðið út og Verktakar Suðurnesja h.f.
byggðu tankinn og sáu um allar fram-
kvæmdir þar að lútandi. Þá hefur kirkju-
garðurinn verið stækkaður mikið. Stein-
veggur hefur verið steyptur umhverfis
viðbótina, sem liggur til norðurs úr gamla
garðinum. Er nú búið að fullgera nokkurn
hluta þessa nýja svæðis og mun verða
haldið áfram við hinn hlutann næsta sum-
ar. Þá hefur safnaðarstjórn ákveðið, að í
garðinum verði byggð kapella og verk-
færageymslur, sem er mjög æskilegt að
ekki dragist lengi.
— Hvað hefur bærinn eignazt af vinnu-
vélurn og verkfærum síðan þú byrjaðir?
— Á fjárlögum yfirstandandi árs er á-
kveðið, að verja til verkfærakaupa rösk-
lega einni milljón króna. Er nú búið að
kaupa fyrir þetta fé stóra og afkastamikla
jaðrýtu og veghefil, sem ég tel að hafi ver-
ið eitt hið þarfasta verkfæri, sem bærinn
hefur keypt. Munu göturnar bera þess ljós-
ast vitni. Þá hefur einnig verið keypt 75
kw. rafmagnsstöð, sem verður notuð sem
varastöð til að drífa vatnsdælurnar, ef raf-
orkan bilar. Hér var reyndar til mótor, er
átti að sinna þessu hlutverki og gerði það,
þar til nú fyrir skömmu, að dælurnar voru
stækkaðar til muna. Varð mótorinn þá ó-
nógur. Með hinni nýju rafmagnsstöð hefur
fengizt úr þessu bætt og er hún nægjan-
lega kraftmikil til að sjá bænum fyrir nógu
vatni, þó rafmagnið bili, sem er mjög þýð-
ingarmikið fyrir bæjarbúa.
Á undanförnum árum hafa verið hér
nokkuð tíðar rafmagnsbilanir, sem skiljan-
lega befur leitt til notkunar á olíu- og
kertaljósum, en það bauð aftur á móti
íkveikjuhættunum heim. Hin nýja rafstöð
á að geta leyst þennan vanda og er því hin
mesta öryggisbót fyrir fólkið í bænum.
Verkstæði bæjarins hefur verið aukið mjög
að vélabúnaði og er því starfi sínu betur
vaxið en áður var. Samt stendur þar ýmis-
legt enn til bóta.
— Það hefur verið unnið að gangstétta-
lagningu. Verður því verki haldið áfram?
— Já, það var lögð gangstétt meðfram
Hafnargötunni í sumar og munum við
hefja þá vinnu aftur með næsta vori.
— Manstu að nefna mér fleiri bæjar-
framkvæmdir?
— Jú, margt mætti nú sjálfsagt nefna,
sem gert hefur verið á árinu, ef grannt
væri út í það farið. Á s. 1. vetri var svæðið
sunnan stóru blokkarinnar við Faxabraut
undirbúið fyrir nýbyggingar. En það mun
eiga að verða aðalbyggingarsvæðið á næstu
árum. Þó götulýsing heyri ekki undir mín
störf, má geta þess hér, að hún hefur verið
stórbætt á árinu, eins og allir hljóta að sjá.
— Hvað verður gert til að prýða bæinn
nú fyrir þessi jól?
— Jólatré verða sett upp á sömu stöðum
og í fyrra: á Vatnsnestorgi, við barnaskól-
ann, sjúkrahúsið, kirkjuna og ef til vill
víðar. Þá verður og símstöðvarturninn
upplýstur eins og að undanförnu.
— Þið hafið steypt undirstöðugarð aust-
anvert við Sólvallagötu ?
— Já, það stendur til að girða skrúð-
garðssvæðið í vor og er þetta byrjunin á
því verki. Það þykir nú sýnt, að blóma-
skrúð né trjárækt verði ekki aukin þar til
muna, nema landið sé fyrst vel girt og
friðað.
— Og nú er hafin bygging gagnfræða-
skólans.
— Það var grafið fyrir grunni skólans
í fyrra haust. Byggingarframkvæmdir hóf-
ust hins vegar ekki fyrr en nú í sumar.
Þórarinn Ólafsson tók að sér byggingu
skólans, en verkstjóri er Georg Helgason.
Verk þetta er f umsjá byggingafulltrúa
bæjarins, Þorsteins Ingólfssonar.
H. Th. B.
Valtýr Guðjónsson tekur sæti á Alþingi.
Valtýr Guðjónsson, forstjóri í Keflavík, for-
maður Málfundafélagsins Faxi og ritstjóri
Faxa, fyrsta árið sem hann kom út, hefur nú
tekið sæti á Alþingi um stundarsakir, í for-
föllum Jóns Skaftasonar, 4. þingm. Reykja-
neskjördæmis, sem dvelur erlendis. Undir-
ritaði Valtýr eiðstafinn á fundi í Sameinuðu
þingi laugardaginn 19. nóvember s. 1.
Sovét-skrítlur.
í gamansögum þeim, sem berast frá Sovét-
ríkjunum, er þrásinnis eins mikið af raun-
verulegum sannleika eins og af gamansemi og
hugmyndaflugi. — Ein sagan er á þessa leið:
Gömul kona og fátæk kom stafrandi eftir
götu í Leningrad, kengbogin undir þungri
byrði. Vingjarnlegur strætisvagnsstjóri kallar
til hennar og segir: „Heyrðu, Babúshka mín,
hoppaðu upp í;“ og stöðvar um leið vagn
sinn. — „Nei, þakka þér annars fyrir,“ tautaði
hún. „Ég þarf að flýta mér!“