Faxi - 01.12.1960, Blaðsíða 37
F A X I
181
Nætur- og helgidagalæknar í Keflavíkur-
hcraði í desember 19G0 og janúar 19G1.
19. des. Kjartan Ólafsson.
20. des. Arnbjörn Ólafsson.
21. des. Björn Sigurðsson.
22. desember Guðjón Klemenzson.
23. desember Jón Jóhannsson.
24. -25. des. Kjartan Ólafsson.
26. des. Arnbjörn Ólafsson.
27. des. Björn Sigurðsson.
28. des. Guðjón Klemenzson.
29. des. Jón Jóhannsson.
30. des. Kjartan Ólafsson.
31. des. 1960—1. jan. 1961 Arnbjörn Ólafsson.
2. jan. Björn Sigurðsson.
3. jan. Guðjón Klemenzson.
4. jan. Jón Jóhannsson.
5. jan. Kjartan Ólafsson.
6. jan. Arnbjörn Ólafsson.
7. —8. jan. Björn Sigurðsson.
9. jan. Guðjón Klemenzson.
10. jan. Jón Jóhannsson.
11. jan. Kjartan Ólafsson.
12. jan. Arnbjörn Ólafsson.
13. jan. Björn Sigurðsson.
14. —15. jan. Guðjón Klemenzson.
16. jan. Jón Jóhannsson.
17. jan. Kjartan Ólafsson.
18. jan. Arnbjörn Ólafsson.
19. jan. Björn Sigurðsson.
20. jan. Guðjón Klemenzson.
21. —22. jan. Jón Jóhannsson.
23. jan. Kjartan Ólafsson.
Héraðsbúar eru beðnir að leggja sér vel á
minni, að næturvaktir hefjast á virkum dög-
um kl. 6 að kvöldi og enda kl. 8 að morgni
næsta dags. Á laugardögum hefjast nætur-
vaktirnar kl. 1 e. h. og er þá sami læknir
venjulega á vakt til kl. 8 á mánudagsmorgni.
Á þriðjudögum kl. 9-—10 hefur héraðslækn-
ir sértíma fyrir allar ónæmisaðgerðir. Sími
hans er 1700.
Vélskipið Hclga sökk.
Aðfaranótt föstudagsins 25. nóv. sökk vél-
skipið Helga frá Rvik sunnan við Reykja—
nes. Helga var á síldveiðum með hringnót og
voru skipverjar nýlega búnir að háfa inn
rúmlega 600 tunnur. Austan kaldi var á og
nkokur ylgja í sjó. Var skipið lagt á stað til
hafnar með síldarfarminn, er því hvolfdi. Bar
slysið að með skjótum hætti, er skipið var
statt 4—6 sjómílur suður- af Reykjanesi. —
Ahöfnin, 10 manns, bjargaðist í gúmmíbát og
varð hún að hírast í bátnum 1—2 klst., eða
þar til þýzki togarinn Weber frá Bremer-
haven tók þá upp og flutti til Reykjavíkur.
Frá því að skipverjar urðu varir við að halli
var að koma á bátinn, sem skipstjórinn, Ár-
mann Friðriksson, álítur að geti hafa stafað
af því að síldin hafi runnið til í lestinni, og
þar til báturinn sökk, munu aðeins hafa liðið
um 15 mínútur, enda höfðu skipverjar ekki
ráðrúm til neins annars en að forða sér í
gúmmíbátinn. Voru þó allir ofan þilja, nema
matsveinninn, sem svaf niðri. Komst hann
namulega og fáklæddur í bátinn. Má af þessu
slysi marka, hve oft er skammt milli lífs og
dauða hjá sjómönnum og því lífsnauðsyn, að
hið ágæta björgunartæki, gúmmíbáturinn, sé
til staðar í hverju skipi og að um það sé
stöðugt hugsað, að allt sem honum viðkemur
sé í góðu lagi.
Átthagafélag Sléttuhrepps.
Átthagafélag Sléttuhrepps hefur gefið út
smekkleg jólakort, sem það hyggst selja nú
fyrir jólin til styrktar söguskráningu Sléttu-
hrepps. Er hér um fjórar mismunandi gerðir
af kortum að ræða, sem öll eru skreytt svip-
miklum myndum úr hinu stórbrotna lands-
lagi Hornstranda. Meðfylgjandi vísur hefur
Sigmundur Guðnason ort fyrir þessa útgáfu,
en hann er Hornstrendingur að ætt og upp-
runa.
Hin eydda byggð er ekki gleymd,
sem áður veitti skjólin,
við höfum enn í hjarta geymd
hlýju bernskujólin.
Þó að streymi elfa’ að ós
og eyðist heilsustyrkur,
við greinum enn hin gömlu ljós
gegnum tímans myrkur.
Eru Hornstrendingar og aðrir áhugamenn
um söguskráningu þessa byggðarlags vinsam-
lega beðnir að styrkja málefnið með því að
kaupa kortin, sem eru til sölu hjá Sigurði
Sturlusyni, Austurgötu 22, Keflavík, sími 1393.
Hafnar framkvæmdir við Suðurnesjaveg.
Hafnar eru nú framkvæmdir á hinum nýja
fyrirhugaða Suðurnesjavegi, sem hér var lítils-
háttar minnzt á í tveim síðustu blöðum. —
Föstudaginn 25. nóvember bauð vegamála-
stjóri, Sigurður Jóhannsson, fréttamönnum
útvarps og blaða að skoða byrjunarfram-
kvæmdir við þennan nýja veg, sem nú eru
nýskeð hafnar í Kapelluhrauni sunnan Hafn-
arfjarðar. Skýrði hann frá mælingum, er
gerðar hafa verið og rannsókn á umferðar-
þunga um Suðurnesjaveg. þá gaf hann lýs-
ingu á þeim hluta vegarins, sem lokið er að
mæla fyrir. Ennfremur sagði vegamálastjóri:
— Við athugun, sem gerð var 1955, á umferð
um Hafnarfjarðar- og Suðurnesjaveg, mæld-
ist umferðin um Fossvog 5125 bílar á dag, um
Kópavog 2600 og um Kapelluhraun 730. Með-
altal umferðarinnar í júlí—okt. 1960 reyndist
á sömu stöðum sem hér segir: Um Fossvog
10630 bílar á dag, um Kópavog 5250 og um
Kapelluhraun 1055. Á Hafnarfjarðarvegi hef-
ur umferðin því tvöfaldazt, en á Suðumesja-
vegi hefur hún að tiltölu aukizt mun minna.
Þá gat vegamálastjóri þess, að hinn nýi vegur
mundi hafa meiri afkastagetu en Hafnarfjarð-
arvegur hefur nú og mætti umferðin því
meira en tífaldast.
Akreinar vegarins verða tvær og steypa
þarf hann frá Engidal að bæjarmörkum Kefla-
víkur, sem eru alls 38 km. og í það fara um
22 þús. lestir af sementi, sem lætur nærri að
vera fimmti hluti af ársframleiðslu íslenzku
sementsverksmiðjunnar, miðað við núverandi
afköst hennar. Að áætlunargerð og mæling-
um vegarins vinnur, auk vegamálastjóra, Sig-
urður Markússon verkfræðingur. — Dagleg
verkstjórn er í höndum Björns Jóhannssonar
vegaverkstjóra Suðurnesja.
Að mælingum þessa verks, kvað vegamála-
stjóri ennfremur, hafa verið unnið á síðast-
liðnu sumri. Vegarstæðið er nú ákveðið frá
Hafnarfirði suður fyrir Hvassahraun. Á Hval-
eyri, sunnan Hafnarfjarðar, tengist þessi
væntanlegi vegur við áður byggðan veg ofan
Hafnarfjarðar. Frá Hvaleyrarholti og suður
undir Hvassahraun liggur veglínan norðan
núverandi vegar. Ákvarðast val vegstæðisins
á þessum kafla fyrst og fremst af því sjónar-
miði, að vegurinn komi ekki í bága við hugs-
anlega flugvallarbyggingu í Kapelluhrauni.
Samkvæmt þeim mælingum og teikningum,
er fyrir liggja, á vegurinn til Keflavíkur að
geta stytzt um tæpa 2 km. Breidd vegarins
verður 11,50 m. að ofan, steypt akbraut 7,50
m. á breidd og 2 m. breiðir vegkantar hvoru
megin. Beygjur verða allar mjög rúmar og
allt miðast við, að óhætt sé að aka með 80—
100 km. hraða á klst. Áætlun um kostnað við
þessar framkvæmdir liggur enn ekki fyrir,
enda er undirbúningsmælingum ekki lokið að
fullu.
Skautasvell á íþróttavellinum.
Að tilhlutan bæjarins og undir verkstjórn
bæjarverkstjórans, Árna Þorsteinssonar, var
í fyrstu frostum þessa veðurmilda vetrar, sem
ekki gerðu þó vart við sig fyrr en eftir 20.
nóvember, sprautað vatni á íþróttavöllinn í
Keflavík og búið þar til hið æskilegasta
skautasvell fyrir unga fólkið, sem notfærði
sér þessa hugulsemi bæjarins dyggilega.