Faxi - 01.12.1960, Blaðsíða 36
180
F A X I
P A 'y | Ritstjóri og afgreiðslumaður: HALLGR. TH. BJÖRNSSON. Blað-
■" M A. I stjórn: HALLGR. TH. BJÖRNSSON, MARGEIR JÓNSSON, KRIST-
INN REYR PÉTURSSON. Gjaldkeri: GUÐNI MAGNÚSSON. — Auglýsingastjóri:
GUNNAR SVEINSSON. Verð blaðsins í lausasölu kr. 15.00. — Alþýðuprentsm. h.f.
V-----------------------------------------------------------------------------------------------
Úr gömlum annól
allra beztu menn, enda munu lýsingar
Mörtu Valgerðar Jónsdóttur í Faxa af fólki
úr Keflavík standast fullkomlega. Hef ég
mikið gaman af að lesa þær og þar fræðist
ég um margt, sem ég vissi ekki áður.
Keflavík er orðin mikið breytt frá því
er ég dvaldi þar. Er það aðallega fólgið
í hinum miklu íbúðarhúsabyggingum, er
stafar af þeim mikla fólksfjölda;, sem
þangað hefur flutzt. En það er eitt, sem
mér finnst stór ljóður á. Það er, að ekki
skuli vera byggð höfn innan sjálfrar
Keflavíkur. Það er eins og öll útgerð hafi
horfið úr Keflavík. Það sést ekki svo
mikið sem smá-bátskolla innan gömlu
hafnarinnar. Það hefði óneitanlega prýtt
staðinn mikið, ef allur bátaflotinn hefði
verið þar í myndarlegri höfn. En hér mun
ég sennilega tala af vanþekkingu. I fyrsta
lagi hefði slík höfn kostað offjár, sem e. t.
v. hefði orðið bæjarfélaginu ofviða og í
öðru lagi á bærinn sjálfsagt engar lóðir,
sem liggja að höfninni, og er það mikill
galli, ef svo er.
Að svo mæltu, mun ég slávbotninn í
þessi skrif. Nóg mun komið af svo góðu.
Bið ég þá, er lesa, að fyrirgefa. Þetta er
nefnilega ekki nútíma-lærður maður, sem
skrifar. Hef ekki svo mikið sem verið í
barnaskóla.
Eg mun halda áfram að koma til Kefla-
víkur, ef heilsa mín leyfir, því alltaf er
nóg af góðu, sem dregur mig þangað. Ég
hef iðulega verið í sumarfríi hjá dóttur
heiðurshjónanna, sem ég var lengst hjá,
Severínu Högnadóttur, og manni hennar,
Olafi Bjarnasyni. Og nú fyrir nokkru er
flutt til Keflavíkur mitt ágætasta mága-
fólk, Gústaf Anderssen og kona hans,
Sveinlaug Halldórsdóttir, sem er systir
konu minnar, Guðríðar, svo að mér er
ekki í kot vísað.
Að lokum þetta: Margir segja við mig,
er ég er að halda með Keflavík: „Það er
ekki hægt að vera í Keflavík. Þar er svo
ljótt.“ Verður mér þá á að segja: „Hvernig
ætlið þið að búa í ört vaxandi bæ, þar sem
venjulegast sést aðeins út í næsta hús, nema
búið sé í einhverjum turnum, sem upp úr
standa?“ En viðurkennt skal það, að
næsta nágrenni Keflavíkur er bæði grýtt
og gróðurlítið og er það víðar svo. Þannig
var það einnig í kringum Reykjavík. En
gangi maður út á Hólmsberg, upp í heiði
eða inn á Vatnsnes, í góðu veðri, er virki-
lega fallegur fjallahringur þaðan að sjá.
Skrifað í september 1960.
Helgi Jónsson.
Eftir handriti af óprentuðum annál í
i Eandsbó\asafninu eftir síra Eyjólf Jóns-
son lcerða á Völlum í Svarfaðardal (f 1745).
S\rifað upp úr Þjóðólfi.
1685. 9. Martii (eftir gamla stíl), sem
var Góuþrællinn, kom hræðilegt veður af
útsuðri, snögglega úr góðviðri, er mörgum
mönnum varð að bana. 7 skipstapar á
Stafnesi, drukknuðu 58 menn, hið (8?)
skipið þaðan gat hleypt inn í Hamar-
sund og bjargaðist við það. Flestir menn,
þeir er á þessum skipum létust, voru
norðan um land, og margir hverjir færir.
Nóttina og daginn eftir rak upp menn á
Skaga, og þar nærri 41 af þeim er týnzt
höfðu. Voru þeir allir færðir til Utskála-
kirkju í Garði, og grafnir þar í almenn-
ingi að kórbaki. Næsta dag, sem var mið-
vikudagur annar í föstu, 1 skiptapi á Gufu-
skálum, drukknuðu 6 menn, 1 skiptapi
í Njarðvík, drukknuðu 4 menn, 1 skip-
tapi á Eyrarbakka, drukknuðu 9 menn,
4 skiptapar í Vestmannaeyjum, drukknuðu
50 menn. Létust svo alls í því eina veðri
á sjó, 132 menn.
Um manntjónið árið 1700 segir svo í
sama annál: „8. Mardi, föstudaginn síð-
astan í Góu, snemma dags, kom úr góðu
veðri hastarlegt og hroðalegt stormviðri
af útsuðri, með öskufjúki, svo engri skepnu
mátti vært segjast utan húsa. Varð þá
mikill mannskaði suður um Nes. 3 skip-
tapar í Grindavík, 2 áttæringar og 1 sex-
æringur, drukknuðu 26 menn. 4. áttæring-
ur brotnaði þar í lendingu, komust af
menn allir, nema kaupmannspilturinn, er
þar var á, 2 skiptapar á Stafnesi, tíæringur
og sexmannafar, drukknuðu 18 menn, 2
menn tók út af áttæringi frá Býjaskerjum.
Bátstapi í Garði, drukknuðu 2 menn, í
Leiru 2, sinn af hvoru skipi, 3 bátstapar á
Vatnsleysuströnd, drukknuðu 6 menn, 7
bátstapar í Hraunum og á Alptanesi,
drukknuðu 14 menn. 12 skiptapar á Sel-
tjarnarnesi, 9 sexmannafara og 3 tveggja-
mannafara, drukknuðu 43 menn. 6 skip-
tapar fyrir Jökli, drukknuðu 22 menn.
Fórust svo alls í þessum eina byl 136
menn. Ekki varaði þetta veður mikið
yfir eykt“ ( þ. e. 3. kl.stundir).
Alls drukknuðu syðra á þessum vetri
153 menn, að vitni séra Eyjólfs, sem þessu
var manna kunnugastur, því að faðir hans,
Jón varalögmaður Eyjólfsson, bjó þá í Nesi
við Seltjörn og séra Eyjólfur, þá þrítugur
að aldri, og hefur haft af þessu sannar
sagnir, þótt ekki væri hann það ár syðra.
Arið 1685, þegar fyrra manntjónið varð,
þá var prestur á Utskálum séra Þorleifur
Kláusson, frá 1650—1699, 49 ár á staðn-
um (öll embættisár hans).
Arið 1700, þegar síðara manntjónið varð,
var séra Gísli Jónsson prestur á Útskálum,
frá 1699—1710. 11 ár prestur á staðnum.
Suðurnesjamenn!
Úrval af amerískum baðherbergisskápum.
í
HÁALEITI S.F. - Byggingarvöruverzlun
Hafnargötu 90 — Sími 1990