Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1960, Qupperneq 33

Faxi - 01.12.1960, Qupperneq 33
F A X I 177 vegar vera búinn a3 ráða allt o£ marga menn og muni tæplega koma þeim öllum í einhver störf og biður mig, ef ég mögu- lega geti, að ráða mig hjá einhverjum öðr- um. Hann skuli borga mismun á kaupi, e£ einhver verði. Sagðist hann hafa heyrt um einn, sem mundi vanta mann. Væri það Agúst Jónsson í Höskuldarkoti í Ytri- Njarðvík. Þegar ég seinna kynntist þessum Agústi, sá ég eftir að hafa ekki farið að ráðum Jóns, en skiljanlega gat ég illa treyst honum, eftir það sem á undan var gengið. Er ég í Gerðum um nóttina og legg svo af stað um morguninn inn með sjó, heldur leiður yfir þessum endalokum. Byrja ég í Leirunni og ætlaði auðvitað að ganga þar fyrir hvers manns dyr, svo skemmtilegt sem það er, og frétta, hvort þar vantaði ekki mann. Von bráðar hitti ég á stað, þar sem vantaði mann, og þorði ég ekki að sleppa því starfi, þótt lágt kaup væri í boði. Þetta var hjá Jóni Bjarnasyni í Melbæ í Leiru. Heimilið virtist vera frekar fátækt, enda börnin mörg, sex eða sjö, að mig minnir. Þarna leið mér eftir atvikum prýðilega, enda var kona Jóns, Margrét Ingjaldsdóttir, ágæt húsmóðir og börnin voru góð. I Melbæ var ég aðeins þessa einu vertíð. Um þessar mundir hafði ég ákveðið, að fara frá heimilinu, sem ég hafði alizt upp á og hafði ráðið mig sem vinnumann til Stokkseyrar, þar sem ég reri næstu vertíð. Ekki féll mér vistin þar og réði ég mig þá sem vinnumann upp í Hrunamanna- hrepp í Arnessýslu. En alltaf var það sama sagan. Þótt maður væri í sveit, þurfti ég ætíð að fara eitthvað til sjávar á vetrum. Þetta átti sinn þátt í því að fólkið fór úr sveitunum. Var nú enn einu sinni lagt af stað til Suðurnesja. Mun það hafa verið árið 1911. Var ég ekki kominn lengra en suður á Kolviðarhól, er Sigurður Daníelsson gest- gjafi segir mér, að hann hafi verið beðinn að ráða mann til Keflavíkur, til Arna Geirs Þóroddssonar og spyr mig, hvort ég vilji ekki fara til hans. Af því að ég var búinn að vera þarna suður frá, hafði ég heyrt talað um Arna Geir sem mikinn formann og bezta dreng. Tók ég því boði hans. Sigurður sagði mér, hvar Arna Geir væri að hitta í Reykjavík, og gekk greið- lega að finna hann, er suður kom. Tók hann mér höfðinglega og sagði mér, að við gætum farið til Keflavíkur með Botníu, MINNING Frú Kristólína Jónsdóttir Vík, Grindavík F: 16. júní 1880 - D: 29. desember 1952 Sem aldrei áður fyrr eg ek í Víkurhlað að kveðja. Kveð eg þig í kirkjugarði á Stað. Svo endar œvi hver, en öllu lífi kœrt, er scekir mögn í svefn, að sofna rótt og vœrt. í muna líður mörg ein minning geislarík. Ó, Ijósu jól við leik hjá Línu frœnku í Vík. Þótt síðar syrti að um sund og heimabyggð, var œtíð um þig bjart af ástúð þinni og tryggð. Og sólskinssumur þrenn eg sjúkur hjá þér bjó, og lítið skáld úr skurn til skerja svam og fló. Þig átti margur að, sem œvihraunið tróð, þú vildir öllu vel og varst því öllu góð. Um himinn bjarmi brýzt sem bros í gegnum tár, og útsœr Ijómar yzt að eilífð draumablár. Sá guð, er gaf þér styrk og gleði í hverri raun, hann blessi œttarbyggð við brim og gjá og hraun. Frœndi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.