Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1960, Side 63

Faxi - 01.12.1960, Side 63
F A X I 207 Keflavíkur-sálmur Skopkvæði það, er hér birtist, var ort í tilefni af atburði, er gerðist hér haustið 1931, og birtist í 1. tbl. Spegilsins 1932. Hafði Jónas Jónsson boðað, að hann mundi flytja erindi um byggingarmál í samkomuhúsinu í Keflavík (Skildi). En nokkrir Keflvíkingar vildu heldur heyra pólitískar umræður, og sóttu Ólaf Thors, og birtist hann, þegar Jónas var að byrja erindi sitt. Skoraði hann á Jónas, að tala heldur um stjómmál og varð úr þessu hörku pólitískur fundur, en þeir Jónas og Ólafur voru þá höfuðandstæð- ingarnir í íslenzkum stjórnmálum. — Höfundur kvæðisins er hið þekkta kýmnisskáld, Sigurður Z. ívarsson, er orkti mikið í Spegilinn á þeim árum. Hefur blaðið fengið leyfi aðstandenda skáldsins til þess að birta þetta skemmtilega kýmnikvæði. Einar Magg heitir ungur sveinn, aðgætinn vel og stilltur; jafnaðarmaður hjartahreinn, háleitur gæðapiltur. — Fasið er stundum frekt. — Ættaður austan úr sveitum. sem ekki’ er nú dónalegt. Um fundarsálirnar fór hann þar Felixar rökum slingum. Ólaf og Jónas báða bar blóðrauðum svívirðingum. Óvæginn á þeim tók. Einar er ágætis piltur. Einar er teólóg. Keflavík heitir herlcg borg héma suður á landi. Um aldir hefur þar engin sorg orðið mönnum að grandi, þangað til hér í haust að landhclgis-bíllinn ljúfi um lágnætti þangað skauzt. Innihald skrítið bíllinn bar, ballest af heldra tagi: hvorki meira né minna var en mörlandinn, Hriflon frægi. — Eitthvað hér undir bjó. — Grásleppur allar urðu andvaka í Garðasjó. Fundarsalurinn fylltist skjótt fáklæddum sæmdarmönnum. Jónasi mjög — um miðja nótt — mælskunnar hæst í önnum fiapðist fyrsta sinn. Hurð var úr tengslum tekin, Thorsarinn ruddist inn. Ólafur Thors er öðlings mann. Ættum við marga slíka — ! — ? - Af köllunum fiskinn kaupir hann — kannske atkvæðin líka — til tjóns fyrir sjálfan sig, en hagnaðar fyrir hina. Hans sál er dásamlig. Heiftarmenn fylltust fúlum reyk, fóru með harki og braki. Jónas komst út við illan Ieik, Elinmundar á baki. Óli óvígur lá. Með gríðarstórt glóðarauga guðsmanninn einhver sá. Sál mín, ver aldrei upp með þér, einn er til heitur staður. Margur um hánótt enginn er atkvæða fiskimaður. Sofi í sælli ró þyrsklingar upp’ í þara og þorskar í reginsjó. Elinmund nokkurn ört með sann indæUs pilt má grcina, húsvilltan sjálfan Hriflu-mann hýsti og veitti beina, og gerði ’onum mikið gott. Þar var af 1000 sortum: Þurrt, kalt, heitt, blautt og vott. Óli forhertur orðið tók. Aumingja Jónas flúði. Ólafur kroppinn allan skók, úr sér mælskunni spúði: „Hvað er að gcrast hér, er verið enn að stcla atkvæðunum hér frá mér? í bælið læddist nú bóndi hver bólhelgis til að njóta. Konan vaknaði vond og þver veltandi sér til fóta, og breiddi hátt yfir haus, mcð ónot af öllu tagi og undir-brekána-raus. Keflvíkingar með kurt og pí kúrðu í bælum fínum — enginn skal gera grín að því hjá glóðvolgum konum sínum — sem sjálfsagt er einna bezt — og undir brckánum breiðum blund höfðu loksins fest. Hvcr kaupir fiskinn hér á strönd? Hver stjanar ykkur kringum? Eg, sem er ykkar önnur hönd á öllum jarðncskum þingum og atkvæðin ykkar á.“ Þá ómaði utan úr salnum: Amcn, Hallelújá'. Fornemuð eins og vonlegt var vítti hún orðum skærum nætur-útgöngur allskonar og uppþot úr bólum kærum. Ef ekki róið er cktafólk á að lúra uppí — og skemmta sér. Þeim í skyndi í brúnir brá, burtu þeir voru hraktir ráðskonunum og frúnum frá, fram úr þeir hlupu naktir. Guðað var gluggann á. Fundarboðandi bljúgur barði að hverjum skjá. Hriflon ætlaði að halda fund um hánótt, orsaka vcgna. Ólafur Thors á enga lund átti um l>að að fregna, hverja sál liann þar á. Nú átti á næturþeli að ncma þær honum frá. llriflon úr sínu horni skreið, hryggðarmynd veikra burða. Samstundis yfir Ólaf lcið, sem ekki var nokkur furða. Hrifloni hægðist þá. Andríki úr sér hellti. unz Ólafur svcfni brá. Ólafur Jónas aldrei má óhræddur sjónum líta. Jónas má Ólaf aldrei sjá, undan sér gjörir flýta. í orðscnnum yfirleitt ósigur bíða báðir, báðum fær miður veitt. Næsta dag gæftir gjörðust á gjörvöllum Reykjaskaga. f Kcflavík cnginn blundi brá þó birti og tæki’ að daga. Hádegissólin hlý sofandi formenn signdi. — Sjódýrin áttu frí. — Fleira af þessum fundi hlauzt Framsóknar mjög í anda. Bráðgáfaður — í bílnum skauzt — bæði til munns og handa Hriflungur lieim til sín. — Syng nú ei meir að sinni sálar-angistin mín. Z.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.