Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2001, Side 10

Frjáls verslun - 01.08.2001, Side 10
RITSTJÓRNARGREIN Hinir miklu foringjar fólksins Þegar síminn hringir þá er það stundum svo að fólk hleypur til og svarar. En upphlaup og óðagot ýmissa stjórnmálamanna vegna dræmra undir- tekta almennings og fagfjárfesta í útboði á hluta- bréfum í Landssíma íslands á dögunum vekur furðu. Yfirlýsingagleði sumra þeirra sýnir betur en nokkuð annað hve umræða um stjórnmál ristir oft grunnt hér á landi. Darraðardansinn hófst afar óvænt á því að Sturla Böðvarsson, samgönguráð- herra og yfirmaður Símans, hóf að kenna Búnaðar- bankanum, sem annaðist útboðið, um að hafa ekki staðið sig í stykkinu við söluna og að það væri bankanum að kenna hve dræm þátttaka almenn- ings og fagfjárfesta hefði verið. En síðan tók ekki betra við. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, kvað ríkið hafa stórtapað á því að selja Símann ekki síðastliðið vor, eins og rætt hefði verið um á Alþingi. Og gömlu góðu klisjurnar létu ekki á sér standa. Sjálfstæðismenn, með Hrein Loftsson, formann einkavæð- ingarnefndar, í fararbroddi, áttu að hafa frestað útboðinu á Síman- um og selt sál sína í þeim eina tilgangi að hjálpa óskilgreindum vin- um sínum hjá Islandssíma. Össur bryddaði að vísu upp á nýjum frasa, „hollvinafélagi sjálfstæðismanna”, en hefur áður notað orðið einkavinavæðing. og Svanfríði, líður illa yfir þvi að almenningur og lif- eyrissjóðir skyldu ekki hafa keypt hlutabréf í Síman- um þegar markaðurinn var uppsprengdur fyrir einu og hálfu ári. Þá væri það nefnilega almenningur, fólkið á götunni, sem sæti uppi með verðfallið á bréf- unum en ekki rikið. Vissulega er það sárt íyrir leikna kauphallarhéðna að geta ekki selt hlutabréf sín þegar þau eru í toppi - og eflaust eru þeir marg- ir sem sjá eftir því að hafa ekki losað um eitthvað af bréfum sínum í gullæðinu fyrir einu og hálfu ári. En að hafa áhyggjur af því að vera ekki búinn að koma einhverjum hlutabréfum yfir á almenning áður en þau lækka í verði er mjög sérstakur hugsunarháttur hjá stjórnmálamönnum! Og hvað með það þótt fyrsti áfanginn í sölu Símans, 16% til almennings og 8% til fagíjárfesta, hafi fengið dræm- ar undirtektir? Annar áfanginn í sölunni, 25% til kjölfestufjárfestis, sýnist ætla að ganga betur. Ríkið lítur líka greinilega á Landssím- ann sem góða eign - sem og hann er. Hann er verðlagður á 40 millj- arða vegna þess að ríkið reiknar út að hann skili framtíðarhagnaði upp á um 3 milljarða á ári næstu þrettán til íjórtán árin. Fyrst Sím- inn er svona góð eign og framtíðarhagnaðurinn svo mikill til hvers þá að örvænta og rjúka upp til handa og fóta þótt undirtektir hafi verið dræmari en menn áttu von á. „Omurlegur farsi“ Svo kom hver skörungurinn á fætur öðrum. Sverrir Hermannsson alþingismaður sagði í eldhúsdagsumræðum á Alþingi að sala Símans væri „ömurlegur farsi”. Sagði hann að rik- inu bæri skylda til að fá sem hæst verð fýrir þetta fýrirtæki og bætti því við að forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hefðu lýst því yfir að þeir hefðu ekki getað litið framan í einkavini sína hefði týrirtækið verið selt tyrir tveimur árum þegar verðgildi þess var tvöfalt hærra en núna. Sverrir er augljóslega með það nákvæmlega útreiknað hvað almenningur hefði verið tilbúinn til að greiða tyrir Landssímann fýrir tveimur árum! Svaniriður Jónasdóttir alþingismaður spyr síðan að því á vefsíðu sinni „hvað þessi greiði Sjálfstæðisflokksins við Islandssíma kostaði þjóðina í verðfalli á Landssímanum”. Það er athyglisvert hvað þessum miklu foringjum fólksins, Össuri, Sverri Fjallið er farið Eflaust hefði verið betra að selja kjölfestutjár- festi fyrst og almenningi síðan. En meginástæðan fýrir dræmum undirtektum í þessu máli er sú að almenningur er að sleikja sárin eftir að hafa gengið í gegnum iýrstu íslensku hlutabréfakreppuna. Hlutabréfavísitalan er núna á svipuðu róli og fyrir nær fimm árum, fjallið er farið. Með því að selja bréf í öðrum fyrirtækjum á lágu verði til að kaupa í Símanum hefðu margir verið að innleysa veru- legt tap af hinum seldu bréfum. Stundum er það áhættunnar virði, ef menn halda að nýfjárfestingin skili meiri arðsemi en sú gamla. En almenningur er einfaldlega ekki með fullar hendur tjár um þessar mundir til að kaupa hlutabréf. Það þarf líka að borga þessi bréf, ekki satt? Jón G. Hauksson ri ífi LS , n _/. a 3 *i 30 Stofnuð 1939 Sérrit um viðskiþta-, efnahags- og atvinnumál - 63. ár Sjöfh Guðrún Helga Geir Ólafsson Hallgrímur Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson auglýsingastjóri blaðamaður útlitsteiknari RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson AUGLYSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir UÓSMYNDARI: Geir Ólafsson UMBROT: Hallgrímur Egilsson ÚTGEFANDI: Heimurhf. RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA: ÁSKRIFTARVERÐ: 3.790 kr. fyrir 6.-11. tbl. - 10% lægra áskriftarverð ef greitt er með kreditkorti. LAUSASÖLUVERÐ: 1.995 kr. DREIFING: Heimur hf„ sími 512 7575 FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Graflk hf. IJTGREININGAR: Heimur hf. - Ölt réttindi áskilin varðandi efni og myndir Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@talnakonnun.is ISSN 1017-3544 10
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.