Frjáls verslun - 01.08.2001, Síða 24
Hjónin Friðrik Karlsson gítarleikari og Steindóra Gunnlaugsdóttir hafa hallað sér að viðskiþt-
um í Englandi. „Nœsta stig í þessu ferli eru búðarkeðjur við stórar verslunargötur. Þau hafa
þegar fengið franskan Jjárfesti sem hefur bœði fé og áhuga á þessu sviði. I haust verður Feel
Good útibú oþnuð í Osló. “ FV-mynd: Sigrún Davíðsdóttir.
I viðræðum við Sainsbury
Eftir Sigrúnu Davíðsdóttur í London
Hjónin Friðrik Karlsson gítarleikari og Steindóra Gunnlaugs-
dóttir hafa hallað sér að viðskiptum í Englandi. Þau selja
andlega tónlist Friðriks og stefna að því að opna tíu „vellíð-
unarhorn“ í stórverslunum undir heitinu Feel Good. Fjrir margt
löngu komust kjörbúðir að því að þær þyrftu að hafa barnahorn.
Svo voru það salatbarir. Nú keppast kjörbúðakeðjur í Bretlandi
við að bjóða upp á heilsu- og fegrunarvörur með andlegri vídd.
Hjónin Steindóra Gunnlaugsdóttir og Friðrik Karlsson gitarleik-
ari hafa undanfarin ár verið að bygga upp vörumerki í þessum
geira og standa nú í samnmgaviðræðum við Sainsbury keðjuna
um sölu á tónlist, sem Friðrik semur, og fleiri vörum, sem þau
eru að þróa. Uppsprettan er tónlistin annars vegar og hins vegar
löngun Friðriks og Steindóru til að láta eitthvað gott af sér leiða.
Þau Friðrik og Steindóra fluttu út í mars 1996. Friðrik hefur
spilað með Madonnu og öðrum þekktum tónKstarmönnum.
Auk stúdíóvinnu hefur Friðrik verið fastráðinn í söngleikjum
Andrew Lloyd Webbers, nú síðast í The Beautiful Game, en
hyggst nú hætta leikhúsvinnunni til að fá rneiri tíma fyrir annað.
En hvað með Mezzoforte? „Nei, við erum ekki hættir,“ segir
Friðrik. „I haust kemur út geisladiskur á Norðurlöndum og þá
spilum við líklega eitthvað saman.“
Vísirinn að viðskiptaáhuganum voru geisladiskar Friðriks
með andlegri tónlist, sem hann gaf sjálfur út undir heitinu River
of Iight, en nokkrir þeirra hafa einnig verið seldir á Islandi. Það
kom þeim á óvart að þar hafa diskarnir samtals selst í um tíu þús-
und eintökum og jafnvel trónað á vinsældalista. „En markaður-
inn hér er um 60 milljónir og það segir sig sjálft að möguleikarn-
ir eru aflt aðrir" bætir Friðrik við.
Frá heimilisiðnaði yfir í fyrirtaeki Allt byrjaði þetta eins og gjarn-
an er hjá þeim sem selja upp eigin rekstur. Þau Steindóra gerðu
aflt sjálf, hún sá um skrifstofustörfin virka daga, kynningarefnið
var gert í heimflistölvunni og helgarnar fóru í að standa á bás á
vörusýningum. Fyrst fóru þau á sýningar fyrir nýaldarvörur, en
nú eru það sýningar fyrir heilsu- og fegrunarvörur.
milljörðum punda en heilsu- og snyrti-
vörugeirinn veltir 12 milljörðum," bend-
ir Friðrik á. Samhflða þessu vaknaði
hugmyndin að selja eitthvað með tón-
listinni og þar urðu ilmkertin ofan á.
A einni svona sýningu kom starfs-
maður Sainsbury við hjá þeim. Kona
hans er jógakennari og varð mjög hrifin
af tónlistinni. Sainsbury var að hugleiða
að setja upp „Well-being“ horn í búðum sínum og í það horn
munu vörur Friðriks og Steindóru væntanlega fara. Gjafavöru-
markaðurinn er annar markaður, sem þau eru að skoða, eru að
prófa sig áfram með gjafapakka með tónlist og kertum. Mark-
aðssetninguna hafa þau þróað sjálf, en hika ekki við að segja að
þau hafi lært mikið af reynslunni. Og umsvifin hafa vaxið. Nú eru
þau með skrifstofu og lager úti í bæ, halda sig þó á torfunni í litla
bænum sunnan við London þar sem þau búa. Þau hafa ráðið
þrennt í vinnu, anna ekki lengur öllu sjálf. „Við erum þekkt á
þessum fáu kaffihúsum, sem eru hér í nágrenninu, af því við för-
um saman þar í „business lunch“,“ segir Steindóra hlæjandi.
Sölumennskan er líka stunduð þar, diskarnir þeirra seldir þarna.
Ut í heim Friðrik undirstrikar að tónflst hans sé ekki aðeins til-
raun til að gera öðruvísi tónlist, heldur byggi á leit hans sjálfs að
andlegum gildum. Hann hefur farið á ýmis námskeið og heillað-
ist af svokallaðri NLP nálgun, Neuro Iinguistic Programming og
setti upp fyrirtæki ásamt David Shephard, sem stundar þau
fræði. Þeir gera geisladiska, þar sem David talar um efni eins og
streitu og viðbrögð gegn henni og Friðrik gerir tónlistina undir
taflð. Friðrik hefur lika verið beðinn um að skrifa og halda fyrir-
lestra um tónflst sína. Fyrir þessu hefur leikhúsvinnan vikið, þó
Friðrik spifl áfram í lausamennsku. Nýlega opnuðu þau það sem
þau kafla Feel Good Corner í verslunarmiðstöð í Norður London
og þó reynslan sé stutt lofar hún góðu. Þau stefna því á að opna
tíu svona horn. Auk tónlistar og kerta selja þau litla gosbrunna,
ýmiss konar ilmvörur og hafa lika áhuga á kryddi. Vörurnar láta
þau útbúa í Tyrklandi þar sem tyrkneskur vinur þeirra hefur
hjálpað þeim að finna réttu samböndin.
Næsta stig í þessu ferli er búðarkeðja við stórar verslunargöt-
ur. Þau hafa þegar fengið franskan flárfesti sem hefúr bæði fé og
áhuga á þessu sviði. I haust verður Feel Good útibú opnað í Osló
sem Sigurjón Einarsson veitir forstöðu. Ætlunin er að halda
áfram á hinum Norðurlöndunum. „Hugmyndir okkar eru tekn-
ar úr ýmsum áttum, en það er enginn að gera nákvæmlega það
sama og við,“ segir Friðrik. „Þær tengjast áhugasviði okkar og
lífsstil. Annars væri þetta ekkert gaman.“ 33
FRÉTTIR
„Viðbrögðin voru ótrúleg," riijar
Steindóra upp. ,Áður komu svona einn
og einn á básinn hjá okkur. Nú var allt í
einu biðröð og á fyrstu sýningunni, sem
við fórum á af þessu tagi kláruðum við
allan lagerinn um hádegi fyrsta daginn.
Og við sem héldum að við værum með
nóg fyrir þijá daga.“
Það er mikill vöxtur í snyrtigeiran-
um, margir þar bjóða upp á einhvers
konar andlega vidd og tónlist Friðriks
hitti í mark þar. „Það er giskað á að
breski tónlistarmarkaðurinn velti 4
24