Frjáls verslun - 01.08.2001, Page 55
Róbert Wessmann, framkvœmdastjóri Delta, og Hauke Sie, forstjóri Pharmamed, á rábstefnu sem fyrirtækin stóðu fyrir á Möltu.
sem gæti verið samkeppnishæfari en verksmiðjan á íslandi.
Heima erum við í þeirri stöðu að ná varla að anna eftirspurn
því að sala okkar hefur vaxið það mikið og félagið sjálft hefur
vaxið úr 700-800 milljónum árið 1998 í sex milljarða á næsta
ári. Þar sem Pharmamed er einungis inni í rekstrartölum júlí
til desember þá er þessi velta miðuð við samstæðuuppgjör á
12 mánaða grunni," segir Róbert.
Til Bandaríkjanna innan tveggja ára Tæplega 80 prósent af
tekjum Delta koma erlendis frá og gerir fyrirtækið ráð fyrir
að sá hlutur fari vaxandi. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru 40
talsins í 20 löndum, fyrst og fremst í Vestur-Evrópu, og er
markaðurinn í Þýskalandi langstærstur. Pharmamed gefur
þægilega viðbót markaðslega séð en fyrirtækið er nú þegar
inni á mörkuðum sem Delta hefur áhuga á. „Við eigum eftir
að sækja inn á markaðinn í Austur-Evrópu. Verksmiðjan okk-
ar heima var byggð með það í huga að geta farið inn á Banda-
ríkjamarkað og það teljum við okkur geta gert innan eins og
hálfs til tveggja ára. Svo eru margir aðrir markaðir sem við
getum unnið á en erurn lítið sem ekkert farin að skoða, t.d.
Miðausturlönd, Austurlönd fjær og Suður-Ameríka. I Austur-
Evrópu eru Eystrasaltslöndin og Rússland þannig að það er
okkar sýn að sækja inn á fleiri markaði og auka þannig um-
svif okkar með árunum," segir Róbert.
- Er Delta að stíga skref inn á þessa braut með kaupunum á
Pharmamed?
Já, við erum nánast ekkert inni á mörkuðunum í Eystrasalts-
löndunum en Pharmamed er það. Fyrirtækið er líka í við-
skiptum við Ungverjaland og nokkur önnur lönd en býður
ekki upp á nýju lyfin eins og við gerum. Við getum því nýtt
sölustarfsemi Pharmamed til þess að selja okkar lyf og
þannig getum við flýtt aðeins fyrir Delta.“
Styrkja sölustarfsemina Eitt af fyrstu verkefnum hjá
Pharmamed var breyting á stjórnskipuritinu og hefur fyrsta
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, aðstoðarframkvœmdastjóri og
forstöðumaður útflutnings- og þróunarsviðs hjá Delta, Þorsteinn
Loftsson, prófessor í lyfjafræbi við HÍ, og Sigrún Edda Eðvarðsdóttir,
aðstoðarmaður framkvœmdastjóra og aðstoðarframkvœmdastjóra.
framleiðslan, töflur fýrir danska fýrirtækið GlaxoSmithKline,
nú verið færð frá verksmiðjunni á íslandi til Möltu og er unn-
ið að því að færa aðra framleiðslu þangað. Hvað önnur verk-
efni varðar ber uppbyggingu á þróunarstarfsemi einna hæst
en Fjalar Kristjánsson, sá sem stýrði gæða- og rannsóknar-
sviði Delta, er fluttur til Möltu og mun leiða þróunarvinnuna
þar næstu tvö árin. Verið er að kanna möguleikana á að koma
upp sérstakri rannsóknarstofu og tilraunaðstöðu hjá Pharma-
med og kemur fljótlega í ljós hvort af því verður. „Slík aðstaða
er fýrir hendi í dag en ef við ætlum að vinna þróunar- og rann-
sóknarvinnuna þannig að vel sé og auka afköstin enn frekar
þá viljum við hafa aðstöðuna í samræmi við það. Við höfum
því verið að líta í kringum okkur og okkur hefur verið boðin
aðstaða handan við götuna ef við viljum. Þar yrði fyrst og
fremst rannsóknarstofa og þróunaraðstaða fýrir okkar lyf,“
útskýrir Róbert.
55