Frjáls verslun - 01.08.2001, Page 64
FYRIRTÆKIN fl NETINU
Bókamgry
Már W. Mixa, sjóðstjóri hjá SPH, jylgist með gengi sinna
manna í Bretlandi á trulswolves.com.
Mynd: Geir Olafsson
Már Wolfgang Mixa er sjóðstjóri hjá Sparisjóði
Hafnarijarðar, sph. „Netið er daglegur þáttur 1
lífi manns, bæði í starfi og leik. Ég kíki oft á
það, jafnvel líka um helgar,“ segir hann. Már gefur
hér nokkur dæmi um góðar vefsíður.
bonds.is „Hér er að finna upplýsingar um verð
skuldabréfa og ávöxtunarkröfur á þeim auk þess sem
þarna er að finna nýjustu fréttir og rannsóknir varð-
andi íslensk skuldabréf."
thS.ÍS ,Á vef Þjóðhagsstofnunar eru ýmsar gagn-
legar upplýsingar varðandi hagstærðir á íslandi. Ég
nota þessa síðu mikið við rannsóknir, sérstaklega á
hagstærðum á Islandi."
yardeni.COm „Aðalhagfræðingur Deutsche Bank
er með þessa síðu og þarna er að fmna samanburðar-
tölur á ávöxtun hlutabréfa og skuldabréfa og greinar-
góðar upplýsingar um „strategískar" ákvarðanir fjár-
festa og sjóða varðandi eignasamsetningu.“
tmlSW0lveS.com „Ég er „nörd“, held með liði sem
er ekki einu sinni í efstu deildinni í Bretlandi og þetta
er sá vefur sem ég fer inn á til að fylgjast með gengi
minna manna. Þetta er óopinber aðdáendavefur Ulf-
anna í Bretlandi sem þýðir að þarna er að finna órit-
skoðaðar upplýsingar, það helsta varðandi gengi liðs-
ins og hvað aðdáendur hafa að segja. Ég kíki á þessa
síðu tvisvar til þrisvar í viku.“
blOOmberg.com/COlumns/ ,Á þessari síðu er að
fmna mikið af áhugaverðum greinum sniðnar að
áhugasviði hvers og eins. Dálkahöfundarnir benda
oft á önnur sjónarmið en þau sem virðast augljós við
fyrstu sýn.“ [53
www.nsa.is Vefur Ný- ™
sköpunarsjóðs atvinnu-
lífsins er skýr, einfaldur
og greinargóður í upp-
byggingu svo að af ber.
Vefurinn gefur strax
mjög skýra möguleika
og þægilegt aðgengi, t.d.
að upplýsingum um sjóð-
inn, verkefni hans, þjón-
ustu, starfsmenn o.s.frv. ★ ★★
Þegar kafað er dýpra eru stuttar en greinargóðar leiðbeiningar sem
leiða notandann áfram. Sérlega auðvelt er að ferðast um þennan vef og
ná í þær upplýsingar sem þar er að finna. Grafíkin er einföld en falleg,
dökkblár, grár, hvítur og loks gulur til að gefa smá krydd. 53
www.flaga.is Vefur
Flögu hf. er áferðarfal-
legur og góður fyrir fag-
fólk en kveikir ekki í
gestum, sem óvart
rekast þar inn. Eftir því
sem best verður séð gef-
ur vefurinn allar nauð-
synlegar upplýsingar en
allur texti er á ensku og
vefurinn því greinilega
ætlaður erlendum markaði. Grafíkin er einföld og smekkleg en
kannski er vefurinn of hvítur og grár. Þetta mætti brjóta upp án þess
að ofgera. Lítið er um myndir. Um þennan vef hefur verið sagt: Þurr
upplýsingabæklingur á Netinu. S3
www.kveikir.is Flott
grafík, svo mikil að jaðr-
ar við að vera truflandi,
en vefurinn sjálfur er
hressilegur og
skemmtilegur. Engum
leiðist í þessari heim-
sókn og kannski kemur
hressileikinn niður á
upplýsingagildinu. A
forsíðunni er kennslu-
stund í notkun nafnsins, Kveikja, og sjálfsagt veitir ekki af. Galli er
að þurfa að skrolla niður til að sjá fréttirnar. Þátturinn „Okkar álit“
hefur verið áhugaverður á stundum. Kveikir.is ber með sér að þar
innanhúss er mikil áhugi á grafík. Minna virðist fara fyrir áherslu á
upplýsingar. 33
★ ★
X Lélegur
'jc Sæmilegur
★ ★★ Gðður
★ ★★ '$C Frábær
Miðað er við framsetningu og útlit, upplýsinga- og fræðslugildi, myndefni og þjónustu.
64
Guðrún Helga Sigurðardóttir.
ghs@heimur.is