Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2001, Page 76

Frjáls verslun - 01.08.2001, Page 76
SETIÐ FYRIRSVÖRUM ingar Delta og nú síðast kaup á fyrirtæki á Möltu og síðast en ekki síst útboð deCode í Bandaríkjunum, en þótt gengisþróun fyrirtækisins á eftirmarkaði hafi ef til vill ekki verið sú sem hluthafar óskuðu þá tókst fyrirtækinu að afla sér rekstrarijár fyrir öflugustu vísinda- og rannsóknarstofu hér á landi.“ 3. Fylgjandi vaxtalækkun? „Eg tel að vextir verði að lækka enda þegar orðið vart samdráttar í hagkerfmu. Núverandi vaxtastig hamlar verulega rekstri allra fyrirtækja í landinu og er þar með orðið ógnun við framtíðar hagvöxt, að auki er ekki hægt að búast við að hlutabréfamarkaður taki við sér hér á landi fyrr en vextir lækka. Það kæmi mér ekki á óvart þótt vextir lækkuðu um tvö prósent fyrir áramót." 4. Er botninum náð á hlutabréfamarkaðnum? „Verð hluta- bréfa hangir saman við annars vegar vaxtastig og hins vegar rekstrarárangur fyrirtækjanna. Sú krafa um ávöxtun sem gerð er til hlutabréfa tekur mið af þeirri ávöxtun sem hlýst af öðrum kostum, einkum ríkisskuldabréfum, sem leggja grunninn að ávöxtunarkröfu annarra eigna. Það er ekki mik- il von til að hlutabréfamarkaðurinn taki við sér fyrr en eftir að vextir hafa lækkað. Hvað varðar afkomu fyrirtækja hefur íjár- munamyndun í mörgum atvinnugreinum verið góð, þótt eig- infjárhlutfall fyrirtækjanna sé slæmt eftir mikið gengistap af erlendum lánum.“ 5. Er ástæða til að óttast djúpa efnahagslægð í heiminum? „Það er fátt sem bendir til djúprar efnahagslægðar í heimin- um á þessari stundu. Sum Asíulönd eins og t.d. Japan eru þó í langvinnri kreppu en það er ekki skollin á kreppa í Banda- ríkjunum þótt þar hafi hægt á vexti. Á íslandi eru farin að sjást töluverð samdráttareinkenni en með réttri hagstjórn er hægt að komast hjá kreppu.“ 9. Breytist gengi krónunnar verulega á næstu tólf mánuðum? „Eg tel líklegast að gengi krónunnar muni styrkjast á næstu tólf mánuðum, en að sú styrking verði hæg á meðan ljárfest- ar öðlast trú á krónunni á ný. Eg tel að sveiflur á gengi krón- unnar verði minni næstu mánuði en verið hefur síðastliðið ár.“ - Sigurður Einarsson. S5 Guðmundur Hauksson, sþarisjóðsstjóri Sþron: „Eftirsþurn eftir lánum er meiri á uþpgangstímum og því er eðlilegt að fjármála- fyrirtœki reyni að mœta óskum viðskiþtavina sinna. “ rríslenska krónan er mikill óvissuþáttur í augum erlendra fjárfesta. Ef við opnum þennan markað betur - og tökum t.d. upp evru - má vænta mikils áhuga erlendra fjárfeSta.“ - Guðmundur Hauksson. 6. Forgangsverkefni stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum næstu tólf mánuðina? „Helsta markmið stjórnenda ís- lenskra fyrirtækja er hagræðing, lykilatriðið er að íslensk fyr- irtæki nái að stækka til að ná sömu stærðarhagkvæmni og keppinautar þeirra erlendis. Þegar við metum íslensk fyrir- tæki berum við þau gjarnan saman við önnur íslensk fyrir- tæki en aðalmælistikan á þau ætti að vera erlendir keppinaut- ar. Heimamarkaðurinn á Islandi er svo lítill að fyrirtæki verða að ná að hasla sér völl utan hans til að verða myndug." 7. Eru lánastofhanir of útlánaglaðar á uppgangstímum - en skrúfa síðan of harkalega fyrir útlán á samdráttartímum? „Það er eðlilegt að útlánastefna bankanna sé í sífelldri endur- skoðun i ljósi reynslunnar. Sennilega hefur eiginfjárhlutfall og lausaljárstaða íjármálastofnana verið orðin of lág nú í góð- ærinu sem gerir það að verkum að mögulegur stuðningur þeirra við fyrirtæki verður minni í niðursveiflu.“ 8. Verða erlendir bankar stórir hluthafar í íslenskum lána- stofnunum? „Eg er ekki endilega viss um að erlendir bank- ar vilji Ijárfesta í bönkum hér á landi með það að markmiði að sameinast þeim, enda hefur reynslan sýnt að samrunar íjár- málastofnana yfir landamæri eru snúnir. Hins vegar er vel lík- legt að erlendir Ijárfestar, þar á meðal bankar, vilji nýta sér þau tækifæri sem eru í íjármálaþjónustu hér á landi og ljár- festa í bönkum.“ 1. Mest á óvart í viðskiptalífinu á árinu? „Tímasetning á vaxtalækkun og afnám vikmarka krónunnar hjá Seðlabanka Islands sl. vor.“ 2. Jákvæðustu tíðindin úr íslensku viðskiptalífi á árinu? „Fyrir sparisjóðina var mikilvægt að fá lögum breytt sem auð- veldar þeim að auka eigið fé sitt. Einnig vil ég benda á áfram- haldandi útrás íslenskra fyrirtækja erlendis sem mjög já- kvæða þróun.“ 3. Fylgjandi vaxtalækkun? „Vextir þurfa að lækka mikið hér á landi. Að öðrum kosti er samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja stefnt í voða og öll nýsköpun á sér erfitt uppdrátt- ar. Þá er hætt við að almenningur muni gera hærri kröfur um laun í ljósi minni kaupmáttar. Stjórnvöld þurfa hins vegar að senda skýr skilaboð um aðgerðir í ríkisfjármálum áður til að skapa traust almennings á efnahagslífmu. Að öðrum kosti er hætt við að vaxtalækkun muni veikja íslensku krónuna, sem aftur veldur aukinni verðbólgu og þar með glatast markmið vaxtalækkunarinnar." 4. Er botninum náð á hlutabréfamarkaðnum? „Olíklegt verður að telja að botninum sé náð, einkum í ljósi síðustu at- burða í heimsmálum. Hins vegar má ætla að góð kauptæki- 76
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.