Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Qupperneq 6

Frjáls verslun - 01.07.2002, Qupperneq 6
RITSTJÓRNARGREIN Messað yfir athafnamönnum I prédikunarstólum guðshúsa er nú messað yfir mönnum úr atvinnulífinu. Séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur sagði í prédikun sinni fyrir nokkrum vikum: „Hvað býr að baki því markmiði að hrifsa til sín með klóm og kjaftí allt sem hægt er að hremma?" Taki hver til sín sem vill, en flestír töldu að hann væri að deila á stofnfjáreigendurna fimm í Spron. En næst var komið að Guðna Agústssyni land- búnaðarráðherra, sem er flestum mönnum fremri að koma fyrir sig orði, að stíga í predik- unarstólinn á Hólum í Hjaltadal og messa svo eftír væri tekið líkt og forsætísráðherra og fleiri hafa gert á Hólahátíðum undanfarin ár. Laun forstjóra og jöfnuður í þjóðfélaginu urðu honum að umtalsefni. Hann sagði að sér sýndist sem komið væri fram „sjálftökulið" sem skammtaði sjálfu sér og nýrri aðalsstétt laun og átti þar við laun tekjuhæstu forstjóranna í landinu. Hann sagði síðan: „Hver segir að forstjórar í þjónustufyrirtækjum samtímans eigi að meta sig svo mikils að þeir hafi forsætísráð- herra landsins í hlutverki hásetans?" Hólaræða Guðna Mikið hefur verið gert úr Hólaræðu Guðna í fjölmiðlum og er það vel. Spurningin um jöfnuð og réttíáta tekjuskiptingu sem og laun forstjóra og annarra launaþega, er eilíft þrætuepli um heim allan. Markaðsöflin eru af flestum talin best til þess fallin að ákveða laun fólks á fijálsum vinnu- markaði. Þótt þingmenn og ráðherrar semji ekki um kaup sitt og kjör þá hækka laun þeirra í takt við almenn laun í landinu. Aður en framkvæmdastjóri ræður mann í vinnu spyr hann sig að því hve mikil verðmæti hann muni búa tíl og eru launin þá í samræmi við það. Þeir sem aðhyllast frjáls markaðsöfl líta svo á að það sé fyrir mestu að kakan stækki; að athafnasemi einstaklinga fái notið sín og að það sé forsenda þess að allir getí fengið hærri laun og notíð bættra lífskjara, þótt sumir fái meira en aðrir. Ennfremur að réttíætanlegt sé að beita sköttum tíl að jafiia tekjur og halda útí samhjálpinni, þótt takmörk séu auð- vitað fyrir skattpíningunni. Forstjórar eru launamenn Langflestir forstjórar á íslandi hafa tekjur á bilinu 800 tíl 1.200 þúsund krónur á mánuði og meðaltekjur tuttugu efstu forstjóranna eru 1.700 þúsund krónur á mánuði og hafa á síðustu tíu árum hækkað um 14% umfram almennar launa- hækkanir í landinu. Forstjórar eru í lang- flestum tilvikum fyrst og fremst launamenn, en „sjálftökulið“ eru þeir ekki. Fulltrúar hlut- hafa, stjórnir fyrirtækja, ákveða laun forstjóra og hafa örugglega laun annarra forstjóra til hliðsjónar í upphafi. En það hvort forstjórinn heldur starfi sínu tíl lengdar, en tíð forstjóra- skiptí einkenna vinnumarkaðinn, fer eftir því hvort hann auki verðmæti hluthafanna, hvort hann vinni fyrir kaupinu sínu. Hugsun hluthafa snýst um ávöxtun hlutafjárins og þess vegna ergir það þá oft hvers vegna forstjórar séu með laun sín á þurru á meðan þeir, hluthafarnir, beri ævinlega tapið. Eftír Enron og Andersen í Vesturheimi spyrja hluthafar sig raunar æ oftar að því hvort brellum sé beitt tíl að fegra bók- haldið. En á meðan karlinn í brúnni fiskar, rær á réttu miðin, er þeim sama þótt hann hafi tvö- eða þreföld laun forsætísráð- herra. Guðni aftengi tímasprengjuna Þótt launamenn eigi margir hveijir orðið eilitíð af hlutabréfum þá beinist óánægja þeirra núna mest að þvi hvers vegna auðugir eigendur fiármagns greiða aðeins 10% af fiármagnstekjum sínum í skatta á meðan launþegar greiða hátt í 50% af launum sínum í skatta. Þessi mismunun er tifandi tímasprengja og hana þarf að aftengja sem fyrst. Þar geta áhugasamir ráðherrar um þessi mál komið launamönnum til hjálpar og lækkað beinu skattana, jafnað muninn. Það er hið heilaga mál sem þolir enga bið. Og þar má mönnum ekki verða á í messunni. Þess vegna verður vandlega hlustað á Guðna næst þegar hann messar. Jón G. Hauksson rrm J - ILLlJ Stofinuð 1939 Sérrit um viðskiþta-, efnahags- og atvinnumál - 64. ár Sjöfn Guðrún Helga Geir Óla/sson Hallgrimur Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson auglýsingastjóri blaðamaður útlitshönnuður RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttír BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir UÓSMYNDARI: Geir Ólafsson UMBROT: Hallgrímur Egilsson ÚTGEFANDI: Heimurhf. M heimur RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA: Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@heimur.is ÁSKRIFTARVERÐ: kr 7.700,-10% afsláttur ef greitt er með kreditkorti. LAUSASÖLUVERÐ: 799 kr. DREIFING: Heimur hf., sími 512 7575 FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Gutenberghf. LITGREININGAR: Heimur hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir ISSN 1017-3544 6
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.