Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Page 16

Frjáls verslun - 01.07.2002, Page 16
FORSÍÐUGREIN - SflLflN í ÍSLANDSBflNKfl Firnahörð harátta á bak við tjöldin um meirihlutann í Fjárfestingarfélaginu Straumi varð til þess að skriðan mikla fór af stað og að þeir Jón Asgeir Jóhannesson og Þorsteinn Már Baldvinsson ákváðu að segja skilið við hluthafahóþ Islandsbanka ogselja hluti sína í bankanum sem og í Straumi. Straumur erjitla þúfan“íþessu stóra máli! Eftír Jón G. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson Hluthafafundi aflýst!" Það fór tiltölulega lítið fyrir þessari frétt í fjölmiðlum um að hluthafafundi, sem halda átti í Fjárfestingarfélaginu Straumi miðviku- daginn 20. ágúst, hefði verið aflýst aðeins rúmri klukku- stund áður en halda átti fundinn. En þarna kraumaði undir. Að tjaldabaki voru hörð átök Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns Baugs, og Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, við íslands- banka um yfirráð í Sraumi. Þau ydirráð hefðu með tím- anum hugsanlega gefið þeim færi á að ná undirtök- unum í Islandsbanka og öðrum fýrirtækjum - og nýta þau hvert af öðru til byggja upp kröftuga valdakeðju. En fléttan féll. Þeir Jón Ásgeir og Þorsteinn Már töpuðu slagnum og má segja „að oft velti lítil þúfa þungu hlassi“. Framhaldið þekkja allir; þeir reiddust mjög og ákváðu að segja skilið við hluthafahóp Islandsbanka og Straums og selja hluti sína og annarra félaga þeim tengdum í þessum félögum. Islandsbanki tryggir söl- una og nemur salan í Islandsbanka um 11,3 milljörðum króna og Straumi um 2,0 milljörðum. Þar með er þriggja ára saga Orca-hópsins á enda. Sagan er öll! Straumur reyndist „litla þúfan“ og eftir standa þau Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er mikill kappsmaður. Um leið og þeir Jón Asgeir urðu undir í Straumsmálinu pá var að sjómannasið strax sett í jullan gír um hvernig þeir gœtu selt hluti sína og annarra, sem þeim tengdust, í Islandsbanka og Straumi. Þeir vildu út! tíðindi að gamli íslandsbankaarmurinn í hinum sameinaða banka Islandsbanka og FBA hefur náð algjörum yfirtökum í stjórn bankans. Hluthafafundurinn í Straumi Til hluthafafundarins í Straumi var boðað að ósk tveggja hluthafa, Fjárfars ehf. og Dúks hf., en þetta eru fyrirtæki Jóns Ásgeirs. Mönnum var í fýrstu ekki fýlli- lega ljóst hvers vegna hann krefðist hluthafafundarins og það í þeim tilgangi að kjósa nýja stjórn. Ný stjórn tók þar við sl. vor þegar Bjarni Ármannsson, Ari Edwald og Jón Halldórsson hættu og við tóku Olafur B. Thors, formaður stjórnar, Jón Ásgeir og Kristín Guðmundsdóttir, tjármálastjóri hjá Granda. Talið var útilokað að þeir Jón Ásgeir og Þorsteinn Már Bald- vinsson, forstjóri Sarnherja, næðu meirihluta. En hvað voru þeir þá að fara? Það hlaut eitthvað að búa að baki. Þeir voru með um 25% hlut á bak við sig í Straumi á móti tæpum 25% hlut Islandsbanka. Eitt var á hreinu, þeir gátu náð völdum í Straumi með fulltingi Búnaðarbankans sem er næststærsti hluthafinn og með 12,2% hlut. Búnaðarbankinn og JÓn Ásgeir Þegar íslandsbankamenn höfðu samband við Búnaðarbankamenn var ekki annað á þeim að skilja en að stuðningur við Jón Ásgeir og Þorstein Má stæði ekki til. Það vantaði samt eitthvað upp á, þetta gekk ekki alveg upp. Það sýndi sig líka þegar á hólminn var komið að það bjó meira að baki; Jón Ásgeir og Þorsteinn Már höfðu tryggt sér stuðning 16

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.