Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Page 17

Frjáls verslun - 01.07.2002, Page 17
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, hejur ekki aðeins mátt þola hvassa vinda vegna húsleitar lögreglu hjá Baugi. Hann tapaði slagnum um Straum og íslandsbanka á dögunum. Hann taldi sig með gjörunnið spil í þókernum um Straum. En það endaði á annan veg; Straumur batt enda á þriggja ára bankaœvintýri hans og Orca-hóþsins! FORSÍÐUGREIN - SflLflN í ÍSLANDSBANKA og Jóns Asgeirs í þessum hildarleik. En öllum að óvörum - ekki síst Þorsteini Má - seldi Ker (Olíufélagið) sinn hlut, 3,4%, í Straumi til íslandsbanka og eignuðust Sjóvá- Almennar þau bréf síðan ásamt fleirum frá Isiandsbanka. Þá keyptu Sjóvá-Almennar bréf í Straumi af Þorsteini Vilhelmssyni, fjárfesti og fyrrum Samhenamanni, og Magnúsi Kristinssyni, útgerðarmanni í Eyjum. Alls eign- uðust Sjóvá-Almennar 5,38% hlut en áttu engan fyrir. Þetta dugði. Þáttaskil urðu í málinu. Jón Asgeir og Þor- steinn Már áttu ekki lengur möguleika á að ná meirihluta í Straumi eftir að Búnaðarbankinn og Ker voru frá málinu. í stað þess að hafa stuðning sjö af átta stærstu hluthöfunum í Straumi, um 37% atkvæða, voru þeir með stuðning fimm þeirra og 22% atkvæða. Jafnframt var keppinauturinn, Islandsbanki, kominn með um 30% atkvæða eftir að Sjóvá-Almennar komu inn í Straum. Aformin um yfirráðin í Straumi höfðu mistekist. Straumhvörf oo straumrof Eftir stóðu Jón Ásgeir og Þorsteinn Már reiðir mjög. Fyrir þá voru þetta ekki aðeins straumhvörf í máli Straums heldur straumrof í öllu íslandsbankamálinu! Samdægurs var að sjómannasið sett í fullan gír um hvernig þeir gætu selt hluti sína og annarra, sem þeim tengdust, í íslands- banka og Straumi. Þeir vildu út! Sagt er að það hafi gengið „býsna hratt fyrir sig“ innan Islandsbanka að taka ákvörðun um að sölutryggja hlutaféð, um 11,3 milljarða króna viðskipti í íslandsbanka, og um 2 millj- arða í Straumi. Sömuleiðis er sagt að innan Kaupþings sé „engin svakaleg óánægja" með að fá alla milljarðana til baka sem farið hafa í að fjármagna umsvif Orca-hóps- ins síðastliðin þijú ár, en sú upphæð mun vera komin á áttunda milljarð með öllum flármagnskostnaði. Flétta þeirra Þorsteins Más og Jóns Ásgeirs um að ná völdum í Straumi var lokaspil þeirra í miklu stærri póker til að ná völdum í íslandsbanka. Það hafa allir litið svo á að þessi póker hafi gengið út á að ná völdum í bæði Tryggingamiðstöðinni og Straumi og nota þessi Búnaðarbankans og kauprétt á hlut bankans í Straumi að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum. Við blasti því að gengi allt upp hjá Jóni Ásgeiri og Þorsteini Má fengju þeir tvo fulltrúa í stjórn á móti einum fulltrúa íslandsbanka því mjög smáir hluthafar nýta yfirleitt ekki atkvæði sín á svona fundum. Ljóst þótti að Kristín Guðmundsdóttir myndi víkja úr stjórn fyrir nýjum fulltrúa Jóns Ásgeirs og Þorsteins Más sem væntanlega hefði orðið Eiríkur S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kaldbaks á Akureyri. En nú færðist fyrst tjör í glímuna og tekist var á af afli. Skyndilega ákváðu Búnaðarbankamenn að vera hlutlausir og gátu það í krafti ákveðinna skilyrða sem voru í samkomulaginu um kaup- rétt Jóns Ásgeirs á Straumsbréfum bankans. Er fullyrt að Búnaðarbankamenn hafi misst trúnað bæði íslandsbankamanna félög til að fjárfesta kerfisbundið og komast þannig í meirihluta í íslandsbanka og öðrum fyrirtækjum og nýta þau hvert af öðru til að styrkja valdakeðjuna - þótt það kostaði jafnvel lækk- andi gengi bréfa í þessum félögum og flótta annarra hluthafa í burtu. Eftir sölu þeirra í Islandsbanka og Straumi er pókerinn búinn. Það er hætt að gefa við spilaborðið og menn eru staðnir frá borði. „Litla þúfan“ í Tryggingamiðstöðinni Þetta er ekki í fyrsta sinn á árinu sem Straumur er „þúfan“ sem veltir þungu hlassi. Straumur lék aðalhlutverkið þegar Tryggingamiðstöðin gekk þeim Jóni Ásgeiri og Þorsteini Má eftirminnilega úr greipum föstudaginn 1. mars sl. þegar Landsbankinn keypti afar óvænt 17

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.