Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 18

Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 18
FORSÍÐUGREIN - SALANÍ ÍSLANDSBANKA á yfirverði öll hlutabréf Straums (um 11%) í Tryggingamiðstöðinni og seldi obbann af þeim aftur til félaga í eigu ijöl- skyldu Sigurðar heitins Einarssonar, útgerðarmanns í Eyjum. Fjölskyldan hafði áður verið með ráðandi hlut í Tryggingamiðstöðinni og tryggði með kaupunum yfirráðin á ný. A þeim tíma sagði Jón Asgeir að sér íyndist sala Straums á bréfunum „mjög skrítin" og að hún myndi hafa eftirmála þar sem hann vissi að fleiri hefðu haft áhuga á bréf- unum. En vitað var að hann og Þorsteinn Már ætluðu sér hlut Straums í Trygg- ingamiðstöðinni og þá hafði Kaupþing sýnt því áhuga að eignast 20% hlut í félag- inu. Auðvelt er að skilja sárindi Jóns Asgeirs og Þorsteins Más í TM-málinu. Um síðustu áramót var Ovalla Trading, sem er í eigu Bónusfjölskyldunnar og Austursels, félags í eigu Hreins Loftsson- ar lögmanns, með 18,02% hlut í Trygg- ingamiðstöðinni og réð þar í raun ríkjum. Meirihlutann í sjö manna stjórn Trygg- ingamiðstöðvarinnar mynduðu þeir Hreinn Loftsson stjórnarformaður, en hann var á þeim tíma líka stjórnarfor- maður Baugs, Jón Ásgeir, Þorsteinn Már og Þorgeir Baldursson, stjórnarmaður í Baugi og forstjóri prentsmiðjunnar Odda. Svo viss var Jón Ásgeir um yfir- ráðin í Tryggingamiðstöðinni að fært var í tal við Gunnar Felixson forstjóra hvort hann vildi ekki láta af störfum. I hámælum var í viðskiptalífinu á þessum tíma að arftakinn yrði Hreiðar Már Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Kaup- þings, en mjög náið samstarf kvað vera á milli hans og Jóns Ásgeirs. Þegar Islandsbankamenn höfðu samband við Búnaðarbankamenn var ekki annað að skilja þeim megin en að stuðningur við Jón flsgeir og Þorstein Má stæði ekki til. Það vantaði samt eitthvað upp á, þetta gekk ekki alveg upp. Ljóst þótti að Kristín Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Granda, myndi víkja úr stjórn Straums fyrir nýjum fulltrúa Jóns flsgeirs og Þorsteins Más. Pókerinn hefur gengið út á að ná völdum bæði í Tryggingamiðstöðinni og Straumi og nota þessi félög til að komast í hóps mjög smárra hluthafa nýtist ekki. Þess má geta að fjölskylda Sigurðar heitins Einarssonar í Eyjum hefur stutt Kristján Ragnarsson til kjörs í stjórn íslandsbanka, þ.e. núverandi meirihluta bankaráðs, og því voru TM-atkvæðin (4,34% hlutur) í raun næstum 9 prósenta leikur í baráttunni, þ.e. meirihlutinn myndi missa 4,34% og þau færu yfir á Jón Ásgeir og Þorsteinn Má. Flestir líta svo á að hefðu þeir Jón Ásgeir og Þorsteinn Már náð yfirtökum í Islandsbanka hefðu þeir verið sérlega líklegir til að beita eigin bréfum bankans sér í hag á aðal- fundum í stað þess að hafa þau hlutlaus. Að því gefnu að Jón Ásgeir og Þorsteinn Már hefðu tapað mjög naumlega á aðal- fundi í íslandsbanka í vor þrátt íýrir að hafa Tryggingamiðstöðina innanborðs, er afar líklegt að Tryggingamiðstöðin hefði hins vegar hafið kerfisbundin kaup á yfirverði á bréfum í bankanum til að ná völdum og að efnt hefði verið til nýs hlut- hafafundar, eins og sýndi sig að gert var í Straumi. Vanir að ráða öllu sem þeír vllja En hver er ástæða þess að Jón Ásgeir og Þor- steinn Már hafa haft svo mikinn áhuga á að ná völdum innan Islandsbanka, Straums og Tryggingamiðstöðvarinnar? Valdagræðgi, kynni einhver að segja. Ekki fer á milli mála að hér fara einhverjir áræðnustu og duglegustu menn við- skiptalifsins, menn sem láta að sér kveða. Halda má því fram að þeir séu vanir að ráða öllu innan sinna lýrirtækja, Baugs og Samheija, og geti einfaldlega ekki tekið þátt í íýrirtækjarekstri, eins og innan Islandsbanka, þar sem þeir ráða ekki för. Þeir eru báðir miklir keppnismenn og reknir áfram af miklum metnaði. Engu að síður eru þeir taldir nokkuð ólíkir, þannig er Þorsteinn Már sagður „varfærnari og jarðbundnari" og ekki eins áræðinn þótt áræðinn sé. TM-atkvæðin voru 9 prósenta leikur Tryggingamiðstöðin er sjötti stærsti hluthafinn í íslandsbanka, með hlut upp á 4,34% og hefði hann sjálfsagt verið notaður til að styðja Jón Ásgeir og Þorstein Má á aðalfundi Islandsbanka sl. vor hefði komið til kosninga og hefði fjöl- skyldan í Eyjum ekki komist yfir hlut Straums í Tryggingamiðstöðinni. Sitt sýnist hverjum um hvort sá stuðningur hefði dugað þeim til að komast í meirihluta í íslandsbanka. En að því gefnu að stjórn íslandsbanka hefði ekki beitt eigin hlut, Straums og VÍB (alls um 8,4% atkvæða), ef komið hefði til kosninga, má sjá það fýrir að núverandi meirihluti hefði verið með rúm 29% atkvæða á móti rúmum 28% atkvæðum arms Jóns Ásgeirs og Þorsteins Más - og er þá TM hluturinn inni í þeirri tölu. Með öðrum orðum; það hefði orðið ansi mjótt á mununum. Tuttugu stærstu hluthafarnir í Islandsbanka eiga rúm 66% hlut. I þessum vangaveltum um kosningar, sem aldrei urðu, er hér enn og aftur gert ráð fyrir að atkvæði hins breiða meirihluta í I og öðrum fyi og nýta þau I i 'aldakujm.......... Að kaupa og kaupa án þess að selja Allir hafa spurt sig að því hvernig þeir og félög þeirra hafa getað keypt og keypt í öðrum íýrirtækjum á undanförnum árum án þess að þurfa að selja neitt á móti. Það hefur bókstaflega ekkert lát verið á Ijár- festingum þeirra, eitthvað sem fáir hafa botnað í hvernig væri hægt og spurt sig í leiðinni hvort ekki færi að koma að skulda- dögum. Ljóst er að salan í íslandsbanka núna fer að stærstum hluta í að greiða skuldir hjá Kaupþingi. Ekki fer á milli mála að þeir félagar, sérstaklega Jón Ásgeir, hafa haft mjög greiðan aðgang að ijármagni hjá Kaupþingi og spilað leiki sína með fjármagni þaðan. Raunar hefur mörgum þótt nóg um hve tengslin á milli Kaupþings og Jóns Ásgeirs eru sterk. 18

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.