Frjáls verslun - 01.07.2002, Page 19
FORSÍÐUGBEIN - SflLfiN í ÍSLANDSBANKA
Fá lægra gengi en Jón Ólafsson Umsamið gengi bréfanna í
Islandsbanka, sem bankinn hefur núna tryggt sölu á, er 5,175
og umfang viðskiptanna um 11,3 milljarðar. Raungengið mun
þó nær því að vera um 4,8 til 4,9, eða eins og það var á markaði
skömmu áður en samkomulagið var gert. Munurinn þarna á
milli felst í því að arður fylgir til kaupenda og ná greiðslur
sölunnar til maíloka 2003. Fyrirkomulag sölutryggingaiinnar er
með þeim hætti að 32,5% hlutafjárins verða seld eigi síðar en 16.
september nk. og 67,5% verða seld eigi síðar en 15. janúar 2003.
Síðastliðið vor var rætt um að til að Orca-hópurinn kæmi út á
sléttu vegna kaupa í FBA þyrfti hann að fá gengið 4,4 miðað við
allan þann Jjármagnskostnað sem kaupunum hefur fylgt. Vænt-
anlega tekur íslandsbanki eitthvað fyrir sinn snúð fyrir að selja
pakkann og þá lækkar raungengið til hópsins enn frekar. Það er
því enginn stórgróði sem kemur út úr þessum viðskiptum Orca-
hópsins. Þess má geta að Jón Olafsson fékk hærra gengi, eða
um 5,0 þegar hann seldi hlut sinn í Islandsbanka fyrr á árinu.
Hvað tekur við hjá Jóni flsgeiri og Þorsteini Má? Flestir spyrja
sig núna hvað taki við hjá þeim Jóni Ásgeiri og Þorsteini Má
þegar bankaævintýrið er úti og þeir búnir að greiða Kaupþingi
til baka lánin sem tekin voru vegna þess arna. Vindar munu
örugglega blása um þá áfram - þetta eru menn sem gustar af.
Augljóst er að Jón Ásgeir hefur núna langmestan áhuga á
Arcadia í Bretlandi, fjárfestingu sem kann að verða stóri lottó-
vinningurinn fyrir Baug. Utrás Baugs verður það sem Jón
Ásgeir einbeitir sér núna mest að. Þorsteinn Már er í tiltölu-
lega afslöppuðum málum og mun örugglega einbeita sér af
frekari krafti í sjávarútveginum. LífejTÍssjóður Norðurlands og
Samheiji eiga hvor um sig 17% í eignarhalds- og Jjárfestingar-
félagi Kea, Kaldbaki. Þar er Þorsteinn Már sagður í raun ráða
öllu. Raunar er Kaldbakur einn þriggja Jjárfesta sem hafa
áhuga á að kaupa í Iandsbankanum þannig að bankaáhugi
Þorsteins Más hefúr ef til vill ekki máðst alveg út þrátt fyrir
brotthlaupið úr hlutahafahópi íslandsbanka. 33
Uti er ævintyri
Isamkomulaginu á milli íslandsbanka og sex hluthafa, sem
samtals eiga 21,78% hlut í bankanum, um að bankinn sölu-
tryggi alla eignarhluti hluthafanna í íslandsbanka, er um-
samið gengi við söluna 5,175 og nemur umfang viðskiptanna
11,3 milljörðum króna. Seljendur hlutaJjárins eru FBA Hold-
ing S A, Sjöfn hf., Ovalla Trading Ltd., Eignarhaldsfélagið ISP
ehf., Fjárfestingarfélagið Krossanes ehf. og Oddeyri ehf.
Samhliða hefur íslandsbanki gert samkomulag við fimm
félög um kaup bankans á öllum eignarhlutum félaganna í
Fjárfestingarfélaginu Straumi hf., eða um 21,9% af heildar-
fénu. Umfang þeirra viðskipta nemur um 2 milljörðum króna.
Seljendur eru Fjárfar ehí, Kaldbakur hf., Eignarhaldsfélagið
ISP ehf., Fjárfestingarfélagið Krossanes ehf. og Dúkur.S!]
■ * H&l
f
wms"
1
h}á.SýGnfhhiMi
■
Engjateigi 5 • 105 Reykjavík • Sími 581 2141
19