Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Qupperneq 23

Frjáls verslun - 01.07.2002, Qupperneq 23
Pétur Blöndal, alþingismaður og einn fimm eigenda stofnfjár Spron sem komU með afar óvænt tilboð til annarra stofn- fjáreigenda um að kaupa allt stofnfé sjóðsins þremur dögum fyrir boðaðan fund stofnfjáreigenda í Spron sem halda átti 25. júní sl. Sprengju var varpað. Næstur fyrir aftan Pétur í biðröðinni er Jón Snorri Snorrason, forstjóri B&L. I þriðja lagi: HVERS KONAR „EIGN“ ER EIGIÐ FÉ SPARISJÓÐANNA? tök sumarsins hafa ýft upp þá spurningu hvers konar „eign“ eigið fé sparisjóðanna sé, ekki síst stofnféð. Og er eigið féð söluvara þótt öllum finnist blasa við samkvæmt ákvæðum stjórn- arskrárinnar að stofnféð sé söluvara? En er það svo? Hugmyndir stjórnar Spron fyrir hinn fyrirhugaða fund 25. júní um að breyta félaginu í hlutafélag var á þá leið að stofiifiáreigendur fengju 485 milljónir króna, eða um 11,5% hlut af eigin fénu, en sérstök sjálfs- eignarstofnun, Spron-sjóðurinn ses., átti að eignast 3.715 milljónir, eða um 88,5% hlut í þessari skiptingu var miðað við markaðsverð upp á 4,2 mifljarða. Eigið fé Spron um síðustu áramót var hins vegar talsvert lægra, eða 3.192 mifljónir króna, og skiptist það þannig að endurmetið stolhfé var 485 milljónir króna og annað eigið fé 2.707 milljónir króna. Takið eftir að stjórn Spron átti að skipa stjórn þessa nýja eignarhaldsfélags, Spron-sjóðsins ses., þannig að í reynd hefði hún stýrt og ráðið yfir langstærsta hluthaf- anum í félaginu. Margir hafa sett spurningarmerki við það. Enn- fremur má spyrja sig hversu auðvelt það hefði verið fyrir einstaka stofntjáreigendur - sem væru orðnir hluthafar - að selja hlutabréf sín á almennum markaði þegar þeir væru í svo miklum minni- hluta, með um 11,5% hlut á móti 88,5% hlut Spron-sjóðsins ses. S!] í fjórða lagi: HVAÐ HEFÐIBÚNAÐARBANKINN ORÐIÐ AÐ GREIÐA? Ymsir hafa spurt um hvað Spron-máflð snúist í raun. Er það um völd yfir fé og fyrirtæki sem á sig sjálft? Hugmyndir stofnfjár- eigenda um að fá meira en uppreiknað nafnverð fyrir stofnfé sitt? Baráttu Búnaðarbankans um að komast yfir Spron? Eða snýst það um þá hugmynd að gera félag, sem á sig sjálft, að hlutafélagi? Eða hugmyndir einhverra „vondra karla“ í röðum stofnfjáreigenda um að ná Spron undir sig og afhenda Búnaðarbankanum áratuga ávöxtun á silfurfati? Það vekur auðvitað athygli hversu mikifl hiti og tilfinningasemi var í þessu máli frá upphafi. Stjórn Spron settí sig þegar á mótí hugmyndum stofiiljáreigendanna fimm sem vildu kaupa aflt stofnfé stofntjáreigenda Spron, 485 milljónir króna, á genginu 4,0 og framselja það Búnaðarbankanum fyiir tæpa 2 mifljarða króna. Sjálfir hafa fimmmenningarnir sagt að ekkert annað hafi vakað fyrir þeim en að fá meira en uppreiknað nafnverð fyrir stofnfé sitt. Þá verður ekki undan þvi horft að eilífar kviksögur hafa verið á gangi í viðskiptalífinu um að Kaupþing, en þar er Spron stærsti hluthafinn, hafi verið með það í kortunum hjá sér að sameinast Spron eftir hlutafélagavæðinguna. Fyrir Bún- aðarbankanum vaktí það auðvitað eitt að yfirtaka Spron og sam- eina Búnaðarbankanum. En hvað hefði Búnaðarbankinn orðið að greiða? Hann hefði orðið að greiða stothtjáreigendum tæpa 2 millj- arða (miðað við gengið 4,0 sem síðan var hækkað í 5,5) og auk þess hefði hann orðið að greiða Spron-sjóðnum ses. um 3.715 mifljónir. Samtals um 5,7 milljarða króna. Að vísu má spyija sig að því hvort Spron-sjóðurinn ses. hefði ekki viljað fá hærra verð fyrir hlut sinn en nafnverð, alveg eins og stofntjáreigendurnir. Kannski er rétta gengið 8 eða 9 en ekki 5,5. Hvað um það; með því að komast yfir fé stofnfjáreigenda hefði Búnaðarbankinn skipað nýja stjórn Spron og líka stjórn Spron-sjóðsins ses. og það hefði síðan komið í hlut þessara nýju stjórna að ganga frá sameiningunni. I staðinn hefði Búnaðarbankinn fengið við- skiptavini og starfsmenn Spron yfir til sín - sem og eigið fé hans. Það var fyrst og fremst „arðvænlegur" sparisjóður sem Búnaðar- bankinn var á höttunum á eftir til að auka eigið fé sitt. 33 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.