Frjáls verslun - 01.07.2002, Síða 32
NÆRMYND BRYNJÓLFUR BJflRNflSON
forystumaður í félagslífi og í starfi innan Sjálfstæðisflokksins.
Hann sat í stjórn Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga árin
1976-1980, sem formaður síðustu tvö árin. Hann sat í varastjórn
Árvakurs 1969-1986 og var í stjórn Stjórnunarfélags íslands
1973-1977. Brynjólfur var um nokkurra ára skeið í stjórn Félags
íslenskra bókaútgefanda og stjórn Félags íslenskra iðnrekenda.
Hann var í stjórn Verslunarráðs íslands í Jjögur ár frá 1980 og
var formaður landsnefndar Alþjóða verslunarráðsins um mið-
bik níunda áratugarins. Hann hefúr verið mjög virkur í sam-
tökum atvinnurekenda, tvisvar setið í framkvæmdastjórn
Vinnuveitendasambands Islands með tíu ára millibili og verið í
stjórn Samtaka atvinnurekenda í sjávarútvegi. Hann hefur setið
í stjórn íjölda fyrirtækja, þ. á m. Iðnaðarbanka íslands, íslands-
banka, Eignarhaldsfélags Iðnaðarbankans, Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunnar hf., LÍÚ, SH, Samtaka fiskvinnslustöðva, Ála-
foss, Faxamarkaðar, Faxamjöls, Bakkavarar, Hraðfrystihúss
Eskifjarðar og AB auk þess að hafa setið í stjórn Hafr annsókna-
stofnunar, Þróunarfélags íslands og nokkurra fyrirtækja í eigu
Granda erlendis. Brynjólfur hefur einnig setið í stjórn Menn-
ingarsjóðs útvarpsstöðva og nefiid um Reykjavík - menningar-
borg Evrópu árið 2000.
PersÓna Brynjólfur þykir viðkunnanlegur maður, léttur og
skemmtilegur. Hann þykir hafa háttvísa, hlýja og vinalega fram-
komu. Sumir viðmælenda Frjálsrar verslunar ganga svo langt
að tala um Brynjólf sem algjöran „fyrirmyndarmann“. Bjarni,
bróðir hans, segir að Brynjólfur sé sjálfsöruggur og metnaðar-
fullur maður sem veit hvað hann vill og þannig hafi hann alltaf
verið. „Það hefur alltaf verið góð vinátta milli okkar bræðranna.
Fyrir utan stríðnina sem strákur þá er mér minnisstætt hversu
vel hann passaði upp á sitt. Það mátti enginn koma inn í her-
bergi hans nema með hans leyfi og hann gekk mjög nákvæm-
lega frá öllu á skrifborði sínu. Hafði allt í röð og reglu. Ef það
kom í ljós að strokleðrið á skrifborðinu sneri með vörumerkinu
upp en ekki niður þá gekk hann fram í því að vita hver hefði
farið inn í herbergi hans í leyfisleysi," segir Bjarni.
Brynjólfur þykir þægilegur í umgengni, góður félagi og
traustur vinur. Eitt aðaleinkenni hans er hversu skipulagður
hann er í öllum hlutum, hvort heldur í vinnu eða einkalífi.
Þannig setur hann t.d. aldrei saman nýjan hlut án þess að lesa
leiðbeiningarnar fyrst. Helga Birna, dóttir hans, segir að alltaf
sé gott að leita til hans og ræða málin, jafnvel þótt hann sé ekk-
ert sérstaklega vel inni í hlutunum. Hann gefi sér alltaf tíma til
að setjast niður og ræði þá málin á skipulegan hátt, nánast eins
og í fyrirtæki, enda sé hann fljótur að greina aðalatriði frá auka-
atriðum og þannig fljótur að finna lausnir.
Hjá Brynjólfi er allt klippt og skorið og honum hentar ekk-
ert hálfkák. Hann er mjög samviskusamur og hefur verið sér-
lega agaður og metnaðarfullur frá barnæsku. Hann er sagður
hafa mikið jafnaðar- og langlundargeð og hann lýkur ekki upp
á nef sér án þess að mikið hafi gengið á áður. Helga Birna segir
að hann sé sérlega laginn við að telja menn á sitt band enda sé
oft leitað til hans til að miðla málum manna á meðal, hvort sem
er innan atvinnulifsins eða meðal vina.
Gallar Brynjólfur er harður og ákveðinn í skoðunum og
stefnu og hann getur verið mjög dómharður. Hann tók fræðin
mjög bókstaflega í skóla og honum hætti til að vera stífur á sinni
meiningu en það hefur þó slipast með árunum. Helga Birna
telur að einn af hans helstu göllum sé hversu lokaður hann geti
verið en það hafi þó breyst mikið til batnaðar á síðustu árum.
Brynjólfur er sagður svo nákvæmur að jaðri við smámunasemi.
Hann vill að hlutirnir gangi örugglega fyrir sig og getur orðið
svolítið pirraður ef það gengur ekki eftir. Hann hefur áhuga á
nýjum tækjum og tækni en heldur þó gjarnan í gamla mátann.
Sem dæmi má nefiia að Róbert Guðfinnsson reyndi mikið að fá
hann til að nota lófatölvu í stað hefðbundinnar dagbókar en það
var ekki fyrr en nýlega að Brynjólfur fékkst til þess og fékk sér
UþpjÍjJfiJF JjjlJjJJJUuUJj
Fæddur í Reykjavík 18. júlí 1946.
Menntun: Cand. oecon. frá HÍ1971, MBA í rekstrarhagfræði
frá University of Minnesota 1973.
Starf: Forstjóri Landssíma íslands.
Fyrsta Starfið: Sendill hjá fataverksmiðjunni Dúk hf., sem faðir
hans rak.
Fyrstu launin: 500 krónur eftir sumarið.
Fjölskylda: Eiginkona Brynjólfs er Þorbjörg Kristín Jónsdóttir
rekstrarhagfræðingur. Brynjólfur á fimm börn og
von er á því sjötta nú í byrjun september.
Ahugamál: Laxveiði, badminton, bækur, skógrækt, skák.
Brynjólfur er talinn harður og ákveðinn í skoðunum og stefnu og hann getur verið mjög dómharður. Hann tók fræðin mjög bókstaflega í skóla
og honum hœtti til að vera stífur á sinni meiningu en það hefur þó slíþast með árunum. Mynd: Geir Ólafsson
32