Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Qupperneq 33

Frjáls verslun - 01.07.2002, Qupperneq 33
NÆRMYND BRYNJÚLFUR BJflRNflSON þá lófatölvu. Brynjólfur hefur aldrei verið mikið fyrir að troða sér fram en það getur auðvitað talist kostur ekkert síður en galli. Þrátt fyrir það er Brynjólfur mjög laginn við að kynnast fólki enda mjög áhugasamur um flestar hliðar mannlífsins. Helga Birna segir að flölskyldan og vinir geri oft grín að því að hann hljóti að vera á leið í stjórnmál því hvert sem farið er gengur hann um og heilsar fólki og er fljótlega kominn djúpt í samræður við viðkomandi. Þannig er hann talinn nokkuð forvit- inn en slfku svarar Brynjólfúr einatt með því að „maður fræðist ekki nema með því að spyrja.“ Stjórnandi Brynjólfur er sérstaklega skipulagður stjórnandi, sem vill hafa reglu á hlutunum og vinnur mjög markvisst og kerfisbundið að árangri. Hann þykir faglegur stjórnandi og hefur verið talinn í hópi hæfustu atvinnustjórnenda landsins. Hann er ákveðinn og vinnur alla hluti af festu, metnaði og öryggi. Kristín Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Granda, hefur unnið með Brynjólfi sl. átta ár og er mjög ánægð með samstarfið. Hún segir að hann hafi góða yfirsýn yfir starfsemina, fylgist vel með því sem er að gerast í fyrirtækinu og greini vandamálin mjög auðveld- lega. „Það er mjög gott að vinna með honum. Hann treystir sam- starfsmönnum sínum fullkomlega fyrir þeirra ábyrgðarsviði, leyfir mönnum að vinna verkefnin að fullu og taka þær ákvarðanir sem þarf að taka til að klára hlutina,“ segir hún og bætir við að það sé mikið missir fyrir íslenskan sjávarútveg að svo öflugur sfjórnandi hverfi úr atvinnugreininni en auðvitað sé mjög gott fyrir Símann að fá hann til starfa. Brynjólfur var vel liðinn meðal starfsmanna hjá Granda, hann gekk um fyrirtækið a.m.k. einu sinni í viku og spjallaði við starfsmennina. Af spjalli við fyrrverandi samstarfsmenn hans má ráða að undirmenn hans og samstarfsmenn hafi vitað nákvæmlega hvar þeir hafi haft hann því að hann hefur tamið sér að draga skýr mörk. Hann lætur engan velkjast í vafa um hvert þeirra verk- eða valdsvið er. Brynjólfur er sagður dug- legur í valddreifingu. Hann gefur samstarfsmönnum sínum mikið sjálfstæði og rými og ætíast jafnframt til mikils af þeim. Mjög lítil mannaskipti hafa verið kringum Brynjólf hjá Granda því að flestum hefur liðið vel í kringum hann og hafa margir viljað halda þar áfram í starfi. Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður SH, hefur átt sam- leið með Brynjólfi um margra ára skeið og milli þeirra hefur þróast góð vinátta. Róbert segir að Brynjólfur hafi haft mun meiri áhrif á vinnubrögðin í íslenskum sjávarutvegi síðustu 20 árin en menn geri sér almennt grein fynr. Þegar hann byijaði í Granda þá hafi hann komið með ný vinnubrögð inn í greinina, t.d. í sambandi við uppgjör, áætlanir og snyrtilega og skýra framsetningu. Þessi vinnubrögð hafi aðrir síðan tekið upp. Róbert segir að Brynjólfur sé „sérstaklega góður fynr liðsheild- ina“, hann hafi góð áhrif hvarvetna þar sem unnið sé í hóp, menn beri mikið traust til skoðana hans, jafnvel þó hann sé ekki endilega sjálfur með afgerandi forystu í hópnum. Hann sé glöggur og vinnusamur „og ég hef sagt að hann sé einn af betri stjórnendum í íslensku atvinnulífi. Þegar Brynjólfur er annars vegar þá gerast hlutirnir ofstækislaust. Hann er sérstaklega góður í skoðanaskiptum og mjög tillögu- og úrræðagóður," segir Róbert. Áhugamál Brynjólfur rennir fyrir lax nokkrum sinnum á sumri en hefur ekki stundað golfið eins mikið hin síðustu ár. Þau hjónin eiga sumarbústað í Fljótshlíðinni og leggja þar stund á skógrækt. Brynjólfur spilar badminton tvisvar í viku yfir vetur- inn ásamt íjórum félögum og teflir skák einu sinni f mánuði með skólabræðrum úr viðskiptafræðinni í HI. Hann les mikið og safnar bókum. Hann hefur mikinn áhuga á menningar- málum og hefur lagt þó nokkuð upp úr því að taka þátt í lista- og menningarstarfsemi, svo sem með setu í stjórn Reykjavík - menningarborg. Hann hefur nokkra innsýn í leiklistina enda fóru þeir bræður mikið með afa sínum í leikhúsið í æsku. Brynjólfúr lék 12 ára gamall lítið hlutverk í leikritinu Beðið eftir Gódot í Iðnó en í því leikriti fóru Brynjólfur, afi hans, og Arni Tryggvason með aðalhlutverkin. Hann fór líka með stórt hlut- verk í skólaleikriti á námsárum sínum í Verslunarskólanum. Leikritið hét Allra meina bót og var eftir þá Patrik og Pál, sem var dulnefni bræðranna Jóns Múla og Jónasar Arnasona. Hlut- verk Brynjólfs var gamli maðurinn á sjúkrahúsinu, sem Magnús Gunnarsson í hlutverki doktor Svendsons var að rembast við að lækna. Brynjólfur hefur verið konsúll Chile á íslandi frá 1994 og reyndar lært spænsku en Grandi á í fyrir- tækjum í Chile og Mexíkó. Hann æfði og keppti á skiðum sem krakki og unglingur, var liðtækur markmaður í knattspyrnu en lét boltaíþróttirnar þó mikið til vera. Vinír Brynjólfur er vinmargur maður. Hann er m.a. með æskuvinum sínum og mökum í félagsskap sem kallar sig Káta krakka, KK í þeim hópi er m.a. æskuvinur hans, Finnur Björg- vinsson arkitekt Hann er einnig í skákklúbbi sem samanstendur af við- skiptafræðingum og er orðinn 30 ára gamall. I þeim hópi eru Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Bykó, Stefán Friðfinnsson, forstjóri Islenskra aðalverktaka, Halldór Vilhelmsson, fram- kvæmdastjóri hjá Flugleiðum, Gísli Benediktsson, viðskipta- fræðingur hjá Nýsköpunarsjóði, Snorri Pétursson, viðskipta- fræðingur hjá Nýsköpunarsjóði, Agúst Einarsson, fv. forstjóri Lýsis, og Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsöl- unnar. Sá síðastnefndi er einnig æskuvinur Brynjólfs af Miklu- brautinni. Brynjólfur er í svokölluðum Eimreiðarhópi sem hittist reglulega og er hópur sjálfstæðismanna. Badminton-hópinn skipa, auk Brynjólfs, Olafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, Hörður Sigurgestsson, fv. forstjóri Eimskips, Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri, og Björn Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri í dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu. Samstarfsmenn úr Granda eru Kristín Guðmundsdóttir fjár- málastjóri, Svavar Svavarsson framleiðslustjóri, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Urðar Verðandi Skuldar, en hann var áður forstjóri Faxamjöls, og Arni Vil- hjálmsson, stjórnarformaður Granda. Aðrir góðir vinir eru Magnús Gunnarsson, formaður banka- ráðs Búnaðarbanka Islands, Róbert Guðfinnsson, stjórnarfor- maður SH, Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater í Banda- ríkjunum, Kristján Ragnarsson, formaður LIU, Valur Valsson, forstjóri Islandsbanka, Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, Víglundur Þorsteinsson, forstjóri BM Vallár, Hörður Sigur- gestsson, stjórnarformaður Flugleiða, sem á sumarbústað í ná- grenni við sumarbústað Brynjólfs í Fljótshlíðinni, og Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, en eiginkona Sigurðar og eig- inkona Brynjólfs eru vinkonur. Þá hefur Brynjólfur verið í nánu sambandi við Bakkavararbræður, Agúst og Lýð Guð- mundssyni.SJ 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.