Frjáls verslun - 01.07.2002, Síða 35
OPERfl SOFTWflRE JÓN VON TETZCHNER
Norsk-íslenska hugbúnaðarfyrirtœkið Opera Software hefur styrkt stöðu sína í efnahagsprengingum
undanfarinna ára. Fyrirtækið hefur tvöfaldað veltu sina, fjölgað starfsfólki og náð mikilvœgum samn-
ingum við stórfyrirtæki á borð við Symbian, IBM og franska fyrirtækið Canah Technologies.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Starfsemin hefur gengið ágætlega síðustu árin. Við
ætluðum reyndar að vaxa meira í fyrra en við gerðum en
við uxum samt. Við vonuðumst líka eftir meiri sölu en
við getum ekki kvartað ef haft er í huga að mörg fyrirtæki
misstu dampinn algjörlega. Þau lögðu mikla vinnu í vörur
sem aldrei náðu á markað. Við bjuggum til vörur fyrir fyrir-
tæki eins og Nokia, Motorola o.fl. sem aldrei komust á
markað og það var leiðinlegt en það var aldrei nein „krísa“ í
fyrirtækinu. Við náðum ýmsum mikilvægum samningum, t.d.
við Symbian sem við erum alltaf að styrkja. Mikilvægast er að
ná vörum inn á markaðinn og það hefur
tekið langan tíma en núna er loksins
ýmislegt farið að gerast," segir Jón S. von
Tetzchner, framkvæmdastjóri Opera
Software í Ósló, sem þróar og framleiðir
Opera vafrann.
Jón segir að í efnahagsþrengingum
undanfarinna ára hafi markaðnum
seinkað um tvö ár en áætlunum Opera
hafi aðeins seinkað um eitt ár „þannig að
við höfum styrkt okkar stöðu. Við höfum
verið uppteknir af því að taka þátt í því
sem er spennandi á markaðnum og það
hefur okkur tekist, t.d. Nokia 9210-
símanum. Ymsar breytingar hafa verið
gerðar á nýjustu útgáfunni, t.d. er
vinnsluminnið meira, en mikilvægast er
að Opera er á þessum síma. Verðið á
markaðnum hefur lækkað, þannig er
mögulegt að búa til öflugri tæki á lægra
verði og því sjáum við fram á að Opera-
hugbúnaðurinn komist fyrr í ódýrari
símana en við höfðum búist við. Stærri
markaðir eru að opnast og samkeppnin
er að aukast en við höfum styrkt okkar
stöðu á símamarkaðnum,“ segir hann.
Slafrænt Sjónvarp Margt hefur verið að
gerast hjá Opera og þá ekki síst utan við
PC-markaðinn, í lófatölvum, símum, staf-
rænu sjónvarpi o.s.frv. þar sem talið er að
stærsti markaðurinn verði í framtíðinni.
Fyrirtækið hefur tekið að sér að þróa
vafrann í samstarfi við IBM þannig að
hann skilji talað mál og svo hefur fyrir-
tækið einnig náð mikilvægum samningi
við franska fyrirtækið Canal+ Techno-
logies um þróun fyrir stafrænt sjónvarp.
„Þetta er stór samningur, reyndar sá
mikilvægasti fyrir okkur í krónum talið,
og mikilvægi hans getur aukist enn
frekar. Canal+ Technologies lofa okkur
80-100 milljónum norskra króna, eða um einum milljarði
íslenskra króna, og fyrst þeir lofa svo hárri upphæð þá er ljóst
að þeir telja þetta samstarf afar mikilvægt. Við höfum verið að
gera samninga við stærri og minni fyrirtæki en samningurinn
við Canal+ Technologies er sá mikilvægasti og hann getur
orðið ennþá mikilvægari því að fyrirtækið hefur keypt hluti í
EchoStar sem ætlar sér samruna með DirectTV í Bandaríkj-
unum. Samtals eiga þessi tvö fyrirtæki stærstan hluta „para-
bol“ markaðarins og þess vegna er ekki víst hvort þetta
verður leyft. Samningurinn, sem var undirskrifaður við kaup
á EchoStar-hlutunum, talar um not á
forritum frá Canal+ Technologies."
Veltan tvöfaldast Velta Opera Software
var svipuð árið 2001 og árið 2000, eða um
27 milljónir norskra króna eða um 300
milljónir íslenskra króna, og tapið var í
samræmi við áætlanir, yfir 30 milljónum
norskra króna. „Það var það versta. Við
ætluðum að vaxa mikið og höfðum því
gert ráð fyrir miklu tapi. Tekjurnar voru
minni og útgjöldin sömuleiðis en því
miður var tapið eins og við gerðum ráð
fyrir." Utlit er fyrir að velta fyrirtækisins
tvöfaldist á þessu ári því að samningarnir
við Canal+ og IBM færa fyrirtækinu tekjur
auk þess sem notendur eru fleiri, auglýs-
ingarnar skapa tekjur og svo eru samn-
ingar fyrir hendi við ýmis önnur fyrirtæki,
t.d. Google. Ymislegt bendir til þess að
rekstur Opera komi vel út í ár og tap verði
lítið sem ekkert, jafnvel hagnaður. Áætl-
anir gera svo ráð fyrir því að hagnaður
verði á næsta ári. Starfsmennirnir eru nú
um 130 talsins.
I viðtali Frjálsrar verslunar við Jón í árs-
byijun 2001 kom fram að fyrirtækið stefni
á markað síðla þess árs eða árið 2002. Jón
segir að hugsanlega verði farið á markað á
næsta ári. „Við viljum hafa reksturinn í
plús þegar við förum á markað. Okkur
hefur ekki langað á markað fram að þessu
og höfum beðið en nú fer að verða tíma-
bært að huga að því,“ segir hann og telur
allar líkur á því að norski markaðurinn
verði fyrir valinu. Það sé að mörgu leyti
best að hafa einhvern heimamarkað.
Markaðsvirði Opera Software var
áætlað 4,5 milljarðar árið 2000 og árið
2001 var það áætlað 1,2 milljarðar
norskar, eða ríflega 12 milljarðar
íslenskra króna. 33
Velta Opera Software var
svipuð árið 2001 og árið
2000, eða um 27 milljónir
norskra króna eða um
300 milljónir íslenskra
króna, og tapið var í
samræmi við áætlanir,
yfir 30 milljónir norskra
króna.
Samningurinn við Canal+
Technologies er mjög
mikilvægur og getur
orðið ennþá mikilvægari
því að fyrirtækið hefur
keypt hluti í EchoStar
sem ætlar sér samruna
með DirectTV í Bandaríkj-
unum. Samtals eiga þessi
tvö fyrirtæki stærstan
hluta „parabor- markað-
arins og því er spurning
hvort þetta verður leyft.
35