Frjáls verslun - 01.07.2002, Síða 36
QuðPún Gísladóttir sekkur við No
Tjónið sem varð þegar Guðrún Gísladóttir
sökk við Lófóten var gríðarlegt.
Með því hvarf ekki aðeins
skip í hafið, heldur líka
hátæknibúnaður
og verksmiðja.
Mynd: Eidar Knutsen
Tjón fyrirtækja geta oröió gríðarleg efskip sekkur
eda eldsvoði kemur upp. Hafa stór tjón einhver
áhrifá afkomu tryggingafélaga? Hvernig vernda
tryggingafélögin sigfyrir stórum áfóllum? Við
birtum hér lista yfir 10 stærstu tjón á og við
Island á síðustu árum og áratugum og reynum
að svara þessum spurningum.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Tvö stór tjón hafa orðið hjá fyrirtækjum i íslensku atvinnulifi
á mjög skömmum tíma. Eitt stærsta tjón sögunnar varð upp
úr miðjum júní þegar eitt tæknivæddasta og stærsta skip
íslenska fiskiflotans, flölveiðiskipið Guðrún Gísladóttir, sökk við
Lófóten í Noregi. Tjónið var gífurlegt og má líkja við það að
fiskiskip, verksmiðja og afli hverfi saman í hafið. Skipið var húf-
tryggt fyrir 2 milljarða króna hjá TM en tjónið í heild sinni með
afla og veiðarfærum nemur 2,2 milljörðum króna og á þá hugs-
anlega eftir að taka ýmsan kostnað með í reikninginn. Trygg-
ingamiðstöðin ber um 5 prósent af tjóninu, eða um 100 milljónir
króna, afgangurinn fellur á erlenda endurtryggjendur.
Skömmu síðar varð bruni í Fákafeni 9 í Reykjavík þar sem
tólf fyrirtæki voru til húsa og og urðu fyrirtæki í Fákafeni 11
einnig fyrir tjóni. Ekki er ljóst hvert endanlegt tjón er en ætla
má að það hlaupi á hundruðum milljóna króna. Þannig nemur
tjónið hjá versluninni Betra baki einni saman um 50 milljónum
króna. Ljóst er að tjónið dreifist á nokkur tryggingafyrirtæki.
Flestöll fyrirtækin, sem urðu fyrir brunanum, voru tryggð fyrir
þessu tjóni og flest voru þau með lausafjár- og rekstrarstöðvun-
artryggingu. Enginn mannskaði varð, hvorki í Fákafeni né
þegar Guðrún Gísladóttir sökk.
Endurtrygflingar eru verndin í framhaldi af umljöllun tjölmiðla
að undanförnu hafa vaknað ýmsar spurningar, t.d. um það
hvort tryggingafyrirtækin verði fyrir miklum skelli þegar stór
36