Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 37

Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 37
Tjón hafa vaxið ört á undanförnum árum og þá ekki í fjölda heldur v verðmætum. k tjón verða, hvernig þau eru varin fyrir stórum tjónum og hvern- ig endurtryggingavernd þeirra er háttað. Þessum spurningum verður reynt að svara í þessari grein. Frjáls verslun hefur einnig tekið saman lista yfir tíu stærstu tjón fyrirtækja af völdum bruna og sjóskaða á eða við ísland á síðustu áratugum. Listinn er ekki tæmandi. Erfitt er að finna upplýsingar um öll tjón, sérstaklega eftir því sem frá líður, og er hugsanlegt að önnur tjón eigi heima neðst á þessum lista en þau sem valin eru í þessari grein. Töl- urnar eru áætlaðar, ýmist byggðar á blaðagreinum, opinberum gögnum eða öðrum heimildum, en allar eru þær framreiknað- ar og því samanburðarhæfar. Inn á listann eru ekki tekin bílslys, flugslys eða sfys af völdum náttúruhamfara, t.d. snjóflóða, sem bætt eru af viðlagatryggingum. Tryggingafélög vernda sig gegn stórum áföllum með því að endurtryggja sig. Ekki gilda neinar ákveðnar reglur um slíkar tryggingar eða val á endurtryggjendum og fer þetta m.a. eftir því hvað verið er að tryggja, hvar það er tryggt og hvort það er tryggt hjá einum eða fleiri aðilum. Þannig gildir ekki það sama um fasteignir, bíla og skip, svo að dæmi séu nefnd, og heldur óliklegt er að skip, afli, veiðarfæri eða farmur séu tryggt hjá einum og sama aðilanum. Þegar endurtrygginga er þörf fara íslensku félögin oft í gegnum miðlara, t.d. í London. Endur- tryggjendurnir geta verið fáir eða margir þannig að áhættan dreifist á fleiri aðila, allt eftir aðstæðum hverju sinni. Endur- h'yggjendurnir eru reyndar mikið til þeir sömu hjá öllum íslensku tryggingafélögunum og gjarnan eru þeir í hópi þeirra stærstu í heiminum. Sem dæmi má nefna Munich Re, Sviss Re, GE-Frankona og ýmis fyrirtæki í Frakklandi og Norður- löndunum. Við endurtrygginguna er fyrirkomulagið þá þannig að tryggingafélögin hér heima eru með ákveðna eigináhættu og eru svo tryggð fyrir afganginum. Kostnaðurinn á þjóðlélaginu Ekki er gott að segja nákvæm- lega hvaða afleiðingar stór tjón hafa en þó er rétt að hafa í huga að öll tjón geta haft keðjuverkandi áhrif með einum eða öðrum hætti, skýrt dæmi um það eru hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001 sem hafa haft áhrif hér á landi eins og annars staðar í heiminum. Iiklegra er að mörg stór tjón með 37

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.