Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Síða 39

Frjáls verslun - 01.07.2002, Síða 39
STORTJÓN HJfl TRYGGINGAFÉLÖGUNUIVI Gunnar Felixson forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar: Endurtryggingar í lagi Það gefur auga leið að eðli tryggingafélaga er þannig að tjón gerast og aldrei eftir fyrirfram gerðu mynstri. Þau geta gerst hvenær sem er. Það er að sjálfsögðu ekki gott að verða fyrir stóru tjóni en það sem skiptir höfuðmáli er að endurtryggingar félagsins séu í lagi. Þannig dreifast stórtjónin á lengri tíma og áhrif þeirra raska ekki rekstri félagsins. TM er traust fyrirtæki með endurtryggingar í afar góðu lagi og því hafa stærri tjónin ekki eins mikil bein og skyndileg áhrif á rekstur félagsins," segir Gunnar Felixson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar. „Annað er að stærri tjónin dreifast bæði á rekstur félagsins yfir mörg ár og jafnframt, án þess þó að ég geti mælt það nákvæmlega, hafa þau vafalaust líka áhrif á kjör annarra félaga. Nær öll íslensku félögin endurtryggja á sömu og svipuðu mörkuðum og þar af leiðandi getur tjón, sem eitt tryggingafélag verður fyrir, Mka haft áhrif á hin. Þetta hefur sem sagt áhrif á markaðinn í heild sinni. Eðli trygginga er það að dreifa tjónum á langan tíma og marga aðila.“ [ffl Pétur Már Jónsson framkvæmdastjóri hjá VÍS: Áhrif á skipa- tryggingar? áhrif á þá vátryggingavernd sem unnt er bjóða. Einnig hafa mörg stór tjón hérlendis þau áhrif að endurtryggingafélögin kreljast hærra iðgjalds fyrir endurtryggingar hér. Þar sem endurtrygg- ingaiðgjöld eru töluvert stór hluti kostnaðar við rekstur vátrygg- ingafélaganna er líklegt að slíkar hækkanir endurtrygginga leiði til hækkana á verði vátrygginga hérlendis.“ HD Einar Sveinsson forstjóri Sjóvár-Almennra: Frekar fjöldinn en stærðin Lítil tjón geta verið jafn íþyngjandi fyrir tryggingafélögin og stór tjón. Þetta á sérstaklega við þegar litið er til tíðni þeirra. Endur- tryggingavernd félaganna er lítil sem engin í shkum tilvikum. Þess háttar tjónatíðni hefur þar af leiðandi meiri áhrif á afkomuna og vátryggingaiðgjöldin en eitt stórt tjón, auk þess sem það kann að skipta máh um hvers konar vátryggingar er að ræða,“ segir Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár-Almennra. Einar telur ekki gott að segja til urn á þessari stundu hvaða áhrif tjónið vegna Guðrúnar Gísladóttur og brunans í Fákafeni kunni að hafa. „Það er vel hugsanlegt að þessi tjón hafi einhver áhrif. Það er ljóst að þau hafa mjög afgerandi neikvæð áhrif á afkomu viðkomandi vátryggingagreina og kunna því að leiða til einhverra iðgjaldshækkana. Hér er þó um einstaka mjög alvar- lega tjónsatburði að ræða en tíðni þeirra er sem betur fer lítil. Endurtryggingakjör vátryggingafélaganna munu þó að líkindum versna þannig að þau verða að greiða meira fyrir endurtrygg- ingaverndina. Ymis önnur atriði geta líka haft áhrif, t.d. langtíma endurtryggingasamningar við erlend félög, markaðsaðstæður úti í heimi og svo mætti áfram telja. Stór tjón geta alltaf átt sér stað og við þeim eru félögin búin. Eg tel því að það sé frekar tíðnin en stærðin sem skipti máli.“ SH Eins og við sjáum þetta í dag virðist sem stórum tjónum fari íjölgandi. Rekstur fynr- tækja er orðinn til muna tæknivæddari og verð- mætari tæki og búnaður eru í minna húsrými en áður var. Þess vegna verður tjón oft stærra í dag þótt ekki sé stærra húsrými að brenna en áður. Þá er orðið til muna algengara að fynr- tæki séu með rekstrarstöðvunartryggingu en áður var og það bætist við hið beina tjón af brunanum. Einnig er verðmætari búnaður um borð í íslensku skipunum," segir Pétur Már Jónsson, framkvæmdastjóri atvinnutrygginga- sviðs hjá VIS. „I raun er fyrirkomulag vátrygginga alþjóð- legt. Atburðir erlendis geta haft áhrif á kostnað vegna endurtrygginga sem íslensk félög þurfa að bera. Þá geta atburðir erlendis einnig haft MewUM -setur brag á sérhvern dag! 39
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.