Frjáls verslun - 01.07.2002, Síða 44
Tryggvi Helgason, fv. landsliðsmaður Islendinga í sundi og núverandi framkvœmdastjóri hjá LA/Ventura-deild þriðja stærsta byggingafyrirtœkis
í Bandaríkjunum, Centex Homes. „Mitt starfer að gæta þess að hverfisstjórarnir haldi áætlun í framkvœmdum og að öllum kröfum okkar sé
fullnœgt. Ég fylgist einnig með því að ekki sé farið fram úr fjárhagsáœtlun við framkvæmdirnar, “ segir hann.
Framkvæmda
hjá þriðja slærsta byggingafyrirtæki
r
Eg er yfir hverfum og hverfisstjórum.
Mitt starf er að gæta þess að hverfis-
stjórarnir haldi áætlun í fram-
kvæmdum og að öllum kröfum okkar sé
fullnægt. Ég fylgist einnig með því að
ekki sé farið fram úr fjárhagsáætlun við
framkvæmdirnar. Ég ræð hverfisstjóra
og ef þeir standa sig ekki þá verð ég að
bregðast við því. Ef viðskiptavinurinn er
óánægður og ekki tekst að leysa það þá
er kallað á mig. Centex Corporation er
gríðarlega stórt fyrirtæki með marg-
háttaða starfsemi undir sínum hatti, ekki
bara í fasteignabyggingu og -sölu heldur
líka í öðrum greinum, bæði tengdum og
ótengdum byggingaframkvæmdum, t.d. við framleiðslu eininga-
húsa, fjármögnun við fasteignakaup, rekstur tryggingafélags og
meindýraeyðingu, svo að dæmi séu nefnd. Samstæðan á lika eitt
byggingafyrirtæki í Bretlandi, sem var keypt fyrir tveimur árum.
Oftast erum við með sömu undirverktakana í vinnu hjá okkur,
menn sem við höfum góða reynslu af, en stundum þarf að ráða
nýja menn og þá aðstoða ég við það. Það eru 30-35 verktakafyrir-
tæki sem vinna við hvert hús sem við
byggjum svo að þessi starfsemi er mjög
sérhæfð hérna,“ segir Tryggvi Helgason,
framkvæmdastjóri Los Angeles/Ventura
deildar fasteignafýrirtækisins Centex
Homes í Bandaríkjunum.
Græna kortið út á sundið Fæddur er
hann og uppalinn á Selfossi, starfaði sem
lærlingur hjá byggingafyrirtæki bróður
síns, Gunnars Helgasonar, í Vestmanna-
eyjum og lauk sveinsprófi í smíðum.
Tryggvi æfði sund en tók sér hlé í eitt og
hálft ár meðan hann bjó í Eyjum. Þar
styrktist hann svo við allan burðinn og
erfiðisvinnuna að honum gekk ennþá betur þegar hann fór
aftur að synda. Honum var komið í samband við menntaskóla í
Norður-Svíþjóð sem sérhæfði sig í íþróttamönnum. Þar bjó
hann á heimavist með 16 öðrum sundmönnum og 16 skíða-
mönnum og æfði sund undir leiðsögn þjálfara sem sinnti bara
þessum litla hópi. Tryggvi bjó í þijú ár í Svíþjóð. Hann fór með
sænska landsliðinu á Olympíuleikana í Los Angeles í Bandaríkj-
Tryggvi Helgason, sem margir
muna eftir sem einum fræknasta
/
sundmanni Islendinga, hefur
starfab sem framkvœmdastjóri hjá
þriöja stærsta byggingafyrirtæki
Bandaríkjanna í nokkur ár. Hann
stýrir uppbyggingu á einbýlishús-
um í Los Angeles og nágrenni.
Effir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: úr einkasafni
44