Frjáls verslun - 01.07.2002, Blaðsíða 46
Einbýlishúsin, sem fyrirtæki Tryggva reisir, eru sérstaklega glœsileg eins og sjá má á
þessari mynd.
tæki Bandaríkjanna og gengur reksturinn mjög vel en Centex
Corporation er skráð í kauphöliinni í New York. Velta samstæð-
unnar nemur 8 milljörðum Bandaríkjadala, eða um 700 milljörð-
um króna. Eins og kunnugt er hefur hlutabréfamarkaðurinn í
Bandaríkjunum verið á niðurleið en á sama tíma hefur fasteigna-
markaðurinn og hefur fasteignaverð í Kaliforníu hækkað um 20
prósent Hjá Centex Homes er fjárhagsárið frá 1. apríl til 31. mars
og segistTryggvi eiga von á því að hagnaðarmet verði slegið hjá
sér á næsta ári, hagnaðurinn nemi 20-25 milljónum Bandaríkja-
dala, eða um 2 milljörðum króna.
Samstæðan hefur alls um 15 þúsund starfsmenn, þar af eru
um 4.000 manns starfandi hjá Centex Homes en það fyrirtæki
hefur starfsemi í 23 ríkjum Bandaríkjanna. HjáTryggva starfa 50-
60 starfsmenn, ef undirverktakarnir eru ekki taldir með, þar af
eru 23 sem eru beinlínis hans undirmenn. Tryggvi hefur hækkað
hratt í tign og fimmfaldað tekjur sínar frá upphafi og það án þess
að hafa nokkru sinni þurft að biðja um kauphækkun. Hann segist
ekkert vera á leiðinni heim í bráðina, hann sé með góðar tekjur og
farinn að hafa það mjög gott en auðvitað geti verið gaman að hafa
aðsetur heima til að dveljast yfir sumarið þegar hann fer á eftir-
laun. Tryggvi var fyrst aðstoðarhverfisstjóri í tvö ár og svo hverfis-
stjóri í tvö og hálft ár í Bakersfield þegar hann óskaði eftir því að
vera fluttur til Los Angeles. Þar hefur hann nú starfað í fimm og
hálft ár, fyrst sem hverfisstjóri og svo sem framkvæmdastjóri í
þijú ár. Þeir eru tveir framkvæmdastjórarnir sem stýra uppbygg-
ingu á húsum í sjö hverfum í tveimur sýslum, Ventura og Los
Angeles-sýslunni en þó fyrst og fremst í þeirri síðarneihdu. Mark-
miðið er að bygga 450 einbýlishús á næsta ári, 550 stykki árið
2004 og 700 árið 2005.
Erfitt að finna land „Það hefur verið mikil eftirspurn efúr húsum
á þessu svæði og við höfum ekki haft undan að sinna henni. Við
erum t.d. núna ekki byijaðir að byggja sýningarhúsin í nýju
hverfi og samt er fólk þegar farið að skrá sig á kaupendalista,“
segir hann og bendir á að mikill hörgull sé á lóðum á þessu svæði
og það hafi haft sín áhrif. „Það er orðið erfitt að finna land inni í
borginni, borgin er alltaf að stækka og það er mikil eftirspurn
eftir landi,“ segir hann en telur að það hafi bætt úr skák að Ford
verksmiðjurnar hafi verið með fyrirtæki í byggingageiranum,
sem hafi átt lóðir tilbúnar undir framkvæmdir fyrir 700 hús.
„Þetta fyrirtæki ákvað að selja lóðirnar og kom helmingur þeirra
í okkar hlut. Við keyptum lóðir undir 350 hús í flórum hverfum
og erum byrjaðir að byggja tvö hverfi og erum að byija á því
VIDTflL TRYGGVI HELGASON
þriðja í september. Lóðir hér eru mjög dýrar, kosta
um 150 þúsund Bandaríkjadali, eða um 15 milljónir
króna fyrir hvert hús.“
- Hvemig fer þessi starfsemi fram?
„Þetta er þannig að við kaupum land eða lóðir undir
80-120 einbýlishús. Oftast eru lóðirnar tilbúnar til
byggingaframkvæmda en stundum kaupum við
landið hrátt og þá þarf að byija á þvi að jafna út,
legga skólp, rafinagn, götur o.s.frv. Oftast byijum
við á því að byggja þrjú sýningarhús og höfum svo
söluskrifstofú með okkar sölufólki í einu þeirra. Ut
frá þessu byijum við að selja og byggja. Eg er aðeins
með 23 starfsmenn undir mér því að við fáum undir-
verktaka til að bjóða í framkvæmdirnar og byggja
húsin. Við framkvæmdastjórarnir stjórnum hins
vegar verkinu og sjáum til þess að húsin séu byggð
að okkar kröfum og skilyrðum og að þau uppfylli þarfir viðskipta-
vinarins. Við byrjum að meðaltali á fimm til átta húsum í hveijum
mánuði í hveiju hverfi en svo tekur það allt að fimm til sex mán-
uðum að fullklára hvert hús. Hverfisstjórarnir geta því verið með
allt upp í 48 hús í byggingu í einu,“ svarar hann.
Bytjgir 22.500 stk. á ári Centex Homes skilar húsunum ávallt
fullbúnum að innan og utan, „það er bara að mæta með lykilinn og
tannburstann en yfirleitt klárum við ekki lóðirnar, nema þá
stundum fyrir framan húsið ef þess er sérstaklega óskað,“ segir
Tryggvi. Mikið er lagt upp á því að allar áætlanir standist gæðin
séu í fullkomnu lagi og að húsið sé tilbúið til afhendingar á
umsömdum tfrna. Hverfisstjórarnir eru í beinu sambandi við við-
skiptavinina, þeir fylgjast með framkvæmdunum og leiða við-
skiptavinina áfram, aðstoða þá og gæta þess að allt, sem þeir hafa
valið sér, sé sett í húsið eins og það á að vera o.sirv. Nokkrum
dögum fyrir afhendingu fær viðskiptavinurinn tækifæri til að
skoða húsið mjög nákvæmlega og gera athugasemdir. Ef eitthvað
þarf að laga þá er það gert Framkvæmdastjórarnir gera síðan
gæðakönnun á hveiju húsi áður en það er endanlega afhent. Ekki
er gengið frá afsali nema húsið sé í topplagi og viðskiptavinurinn
sé 100 prósent ánægður.
Centex Homes-fyrirtækið byggir og selur um 22.500 hús á ári,
þar af verða húsin hjá Tryggva um eða yfir 400 talsins á þessu ári.
Boðið er upp á níu mismunandi hús í hveiju hverfi en húsin eru
yfirleitt aldrei eins frá einu hverfi til annars. Hvert hús kostar frá
420-800 þúsund dollurum, eða um 40-80 milljónir króna. Flest
húsin eru 200300 fermetrar að stærð en stundum eru þau um eða
yfir 400 fermetrar. Meira er yfirleitt lagt í sýningahúsin enda eru
þau notuð til að kynningar gagnvart viðskiptavinum. Tryggvi seg-
ir að nýlega hafi eitt sýningarhúsið verið selt fyrir 1,4 milljónir doll-
ara, eða 120 mifljónir króna. Það hús hafi verið vel fyrir ofan með-
allag. Húsin kaupir yfirleitt vel menntað fólk og fólk í efri stéttum
þjóðfélagsins, td. læknar, lögfræðingar, stjórnendur og fólk í sjálf-
stæðum atvinnurekstri. Sjálfúr býr Tryggvi að sjálfsögðu í Centex
Homes-húsi í úthverfi Los Angeles.
- Ertu sestur þama að?
, Já, mér líður mjög vel hérna. Eg er farinn að hafa það gott. Konan
mín, Wenda Windle-Helgason, er fædd og uppalin hérna og nýút-
skrifuð úr hjúkrunarnámi. Eg hugsa að ég verði hérna áfram. Eg
er vanur þessu góðra veðri hérna og er ánægður með fyrirtækið
og fyrirtækið virðist ánægt með mig.“ SS
46