Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 60
Ellen Ingvadóttir er kynningastjóri íslensku sjávarútvegssýningarinnar.
og segir Ellen sig hafa rekið í rogastans þegar hún sá
alla tæknina á fyrstu sýningunni. „Þá var tölvuvæðing-
in komin inn í vinnslu og fiskveiðar og ég hugsaði með
mér: Nú erum við komin á endapunkt, við náum varla
lengra á þessu sviði! Fyrir sex árum hugsaði ég það
sama og svo aftur fyrir þremur árum og alltaf verður
tæknin meiri þannig að ég veit ekki við hveiju á að bú-
ast nú. Enda er brú í skipum að verða eins og stjórn-
borð í geimskipi - eða eins og ég ímynda mér það,“
segir Ellen og glettnin skín úr augum hennar.
Frumkvöðlar Hjónin Patricia Foster og John Legate
voru upphafsmenn þess að koma á sjávarútvegssýn-
ingu hér á landi. „Þau sáu möguleikana sem hér
bjuggu,“ segir Ellen. „Við íslendingar erum mjög fram-
arlega í hópi þróunarsamfélaga og sýningin kristallast í
því, enda byrjaði hún strax stór, í samanburði við aðrar
íslenskar sýningar og hefur þróast áfram í þá áttina. Eg
veit ekki hvaða takmörk sýningin hefur en nú er sýn-
ingarsvæðið með öllu um 13.000 fm undir þaki, sem er
talsvert stærra en áður var. Fjöldi bílastæða hefur verið
aukinn mjög og öll aðstaða er til fyrirmyndar, enda get
ég leyft mér að segja að sjávarútvegssýningarnar eru
glæsilegustu sýningar sem haldnar eru hér á landi.“
Orðsporið Víða um heim - og auðvitað hér á íslandi
- segja menn að þessi sýning sé ein þeirra sem bókstaf-
lega megi ekki missa af. Flestir sem á einhvern hátt
koma nálægt sjávarútvegi, vinnslu eða þjónustu í kring
um hann, vita af sýningunni og gildi hennar sem kynn-
ingar- og sölusýning er ótvíræð. „Þó við vitum auðvitað
ekki nákvæmlega hvað fram fer á milli sýnenda og
gesta, segir það sig sjálft að fyrirtækin nota þetta tæki-
færi bæði til að mynda og viðhalda persónulegu sam-
Framfarirnar ótrúlegar
Ellen Ingvadóttir kemur víða við í íslensku þjóðfélagi. Hana
mátti finna í áhöfn víkingskipsins íslendings á leið til
Ameríku, á lögreglustöðinni eða í dómsölum að túlka
skrítin mál, en hún er löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi,
og í góðra vina hópi þar sem smitandi hlátur hennar heyrist
langar leiðir.
Eitt af því sem Ellen hefur tekið sér fyrir hendur um ævina
er að vera blaðafulltrúi Islensku sjávarútvegssýningarinnar
sem orðin er fastur punktur í tilverunni á Islandi. Sýningin nú
er sú þriðja sem hún starfar að og segir Ellen miklar breyt-
ingar hafa átt sér stað á þeim níu árum sem hún hefur komið
nálægt henni. „Við vorum með sýninguna í Laugardalshöllinni,
enda þjónaði hún sínum tilgangi vel,“ segir Ellen. „Svo kom að
því að breytingar urðu á aðstæðum varðandi sýningarhaldið.
Þá leituðum við til Kópavogsbæjar og nú erum við í annað sinn
þar og teljum aðstöðuna fyrsta flokks. Enda hefur Kópavogs-
bær gert vel í því að koma til móts við þarfir okkar og allt
gengið eftir sem lofað hefur verið.“
Sjávarútvegssýningin hefur alla tíð verið mikil tæknisýning
bandi við viðskiptavini sína og auðvitað eiga sér stað viðræður
um kaup og kjör - enda sýningin öðrum þræði sölusýning. I
kringum sjávarútveginn er gríðarlega mikil þjónusta og því er
lögð áhersla á að hún er samsýning sjávarútvegsfyrirtækja,
fiskvinnslufyrirtækja og fyrirtækja í þjónustugreinum."
Nýjungar Stöðugt er verið að bæta þjónustuna við sýningar-
gesti og eitt af því sem nú gerist er að hægt er að bóka sig fyrir-
fram á netinu. „Það er til mikilla þæginda fyrir fólk að panta á
netinu. Viðkomandi fær sent barmmerki og þarf ekki að bíða í
biðröð, heldur getur farið inn á sýninguna á „hraðbraufsegir
Ellen. „Margir erlendu gestanna hafa notað sér þetta og einnig
íslenskir en vegna sýningarinnar eru öll hótelherbergi á höfuð-
borgarsvæðinu að verða upppöntuð." Að sögn hennar binda
aðstandendur sjávarútvegssýningarinnar miklar vonir við nýja
forbókunarkerfið en það auðveldar m.a. sýnendum að sjá
hverjir eru gestir á básum þeirra og stuðlar þannig að auknum
tjáskiptum, auk þess sem allt aðgengi gesta verður fljótara og
þægilegra. H!1