Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Page 62

Frjáls verslun - 01.07.2002, Page 62
Hún er sannkölluð hefðarkona, „lady Pat,“ segir fólk um Patriciu Foster. Þetta er kona með mikla útgeislun, afburða dugleg og hefur vit á við- skiptum. Hún er alltaf vel til höfð og kemur í einu og öllu fram eins og hefðarkona og þarf aldrei að berjast um athygli. Hún bara fær hana og það meira að segja í þessum karlaheimi sem sjávarútvegur er óneitanlega.“ Þetta er konan á bak við Sjávarútvegssýninguna. Auð- vitað hefur hún ekki unnið ein en hún á svo sannarlega stóran hlut í að hafa gert sýninguna að því sem hún er í dag. „Islendingar kynntust Patriciu fýrst á sýningu í Bella Center árið 1983,“ segir Bjarni Þór Jónsson, íslenskur sölustjóri Sjávarútvegssýningarinnar. „Þar voru þá staddir m.a. Eiríkur Tómasson, sem átti Fiskifréttir, og Þórleifur Olafsson, ritstjóri Fiskifrétta. Þessir herramenn spurðu Pat hvort hún væri ekki til í að koma til Islands og skoða möguleika á að setja hér upp sjávarútvegssýningu þar sem hér væri nokkuð góður markaður og tækifæri. Patriciu leist vel á hugmyndina og það varð úr að hún kæmi hingað til lands og kíkti á aðstæður." „Hún er afspyrnu ákveðin og dugleg kona,“ segir Bjarni. „Sem dæmi um það get ég sagt að á íýrstu sýn- ingunni sá ég um sölu til íslenskra framleiðslufyrir- Það gustar um Patriciu Foster. Hún er sögð hafa mikla útgeislun og alltaflíta vel út en undir niðri sé kjarni úrstáli. Hefðarkonan Patricia tækja en við skiptum svæðinu í íslenskan og erlendan hluta. Ég hafði m.a. til umráða og sölu sviðið á Laugardalshöllinni og hafði staðið í samningaviðræðum við hóp Vestmannaeyinga sem ætluðu að taka það en áttu eftir að skrifa undir samning. Þá hringdi Pat í mig og tilkynnti mér að hún væri með á sínum snærum erlent fyrirtæki sem vildi fá sviðið og að hún vildi ganga frá þeirri sölu. Hún var nokkuð ákveðin í símann eins og hennar var von og vísa en ég firrtist við þessar fréttir og tilkynnti henni að ef hún ætlaði sér að vinna svona, ganga inn á mína samninga og brejda þeim, gæti hún bara selt sjálf á alla sýninguna. Ég hef sjálfsagt verið svolítið hvass í símann þvf daginn eftír mættí Pat hingað. Hún hafði þá tekið fyrstu flugvél til landsins og svo beið hún allan daginn eftír mér á meðan ég var á fundum tíl að hitta mig um kvöldið. Svo varð auðvitað bara gott úr þessu en eftír þetta gekk samstarfið eins og best verður á kosið.“B!l Þjóðarbásarnir að má með sanni segja að alþjóðlegt andrúmsloft ríki á Sjávarútvegssýningunni í Kópavogi. Þar hafa verið settir upp sérstakir þjóðarbásar, þar sem sýnendur frá ein- stökum löndum sameinast um pláss. Þannig geta gestir fundið anda þjóðanna leika um sig í norska, sænska, danska, færeyska og enska básnum en einnig verða Kóreumenn með bás og svo ítalir, Þjóðverjar, Frakkar og fleiri þjóðir. Forsvarsmenn sýningarinnar segja vaxandi áhuga fólks utan Skandinavíu á sýningunni og að hún sé nú þegar komin í hóp stærstu og fjölsóttustu sjávarútvegssýninga í heimi. IH

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.