Frjáls verslun - 01.07.2002, Page 64
Hvaða gildi hefur sýning eins og Sjávarútvegssýningin fyrir sjávarútveginn
og hver er staöa íslensks sjávarútvegs að þínu mati?
Rakel Olsen, stjórnarformaður
Sigurðar Ágústssonar;
Eg fer sjaldan á svona sýningar og hef því ekki skoðun á gildi þeirra
íyrir greinina, í mínum huga er þetta fyrst og fremst aðferð iyrirtækja
til að markaðssetja framleiðslu sína og fyrir menn að sýna sig og sjá aðra.
Staða sjávarútvegs eins og hún snýr að okkar fyrirtæki í dag er ekki
sérlega björt. Rækjuverð í sögulegu lágmarki samfara miklu framboði á
mörkuðum okkar. Þá hefur hörpudiskskvótinn í Breiðafirði verið skor-
inn niður um 50% á sl. tveim árum svo við erum heldur óhress með stöðu
okkar þessa dagana. S9
Gunnar Svavarsson, forstjóri SH:
Islenska sjávarútvegssýningin er í raun ekki dæmigerð sýning fyrir SH
að taka þátt í enda höfum við ekki gert það undanfarin ár. Fyrirtækið
og dótturfélög þess taka hins vegar þátt í ýmsum sýningum á mörkuðum
erlendis enda snúast þær í kringum sjávarafurðir eða önnur matvæli. I ár
er hins vegar ætlunin að venda okkar kvæði í kross og vera með bás hér
heima.
Meginstarfsemi SH á íslandi fer fram hjá SH-þjónustu ehf., sem
aðstoðar við innkaup dótturfélaga og sér um flutningamál, hefur umsjón
með gæðamálum og selur umbúðir til sjávarútvegsfyrirtækja. Fyrirtækið
mun kynna þessa þjónustu sína gagnvart viðskiptavinum á Islandi. Þá
hefur SH og dótturfyrirtæki þess nýlega tekið í notkun nýtt útlit á vöru-
merki félagsins, Icelandic, og heiti fyrirtækjanna hafa verið samræmd.
Þannig er heiti á SH hf. á ensku nú Icelandic Group Plc. og erlendis bera
flest fyrirtækin svipuð nöfn s.s. Icelandic USA Inc. í stað Coldwater
Seafood Corporation, Icelandic Iberica, Icelandic Japan o.s.frv. Þessar
breytingar verða kynntar á sýningunni. SU
•• r
Gunnar Orn Kristjánsson, forstjórí SIF:
Islenska sjávarútvegssýningin hefur fyrst og fremst gildi fyrir íslenskan
sjávarútveg almennt og kemur honum betur á kortið. Hér koma margir
erlendir aðilar sem eru í þessum iðnaði og kynnast því helsta sem er að
gerast, bæði hér heima og erlendis.
Hvað varðar sjávarútveginn og stöðu hans, þá sýnist mér hún almennt
vera góð og í góðum farvegi. 33
Huað finnst þeim?